Símablaðið - 01.12.1977, Qupperneq 16
Ferð í
Þjórsárdal
Sæmundur Símonarson, Jón Gíslason og Andrés G. Þormar.
I
Sú var tíðio, að ekkert sumar leið svo
að ekki væri farin hópferð, ein eða fleiri,
á vegum F.Í.S. af starfsfólki Landssímans,
hér í Reykjavík.
Einnig voru slíkar hópferðir oft farnar
af starfsfólki annarra stærstu símstöðv-
anna.
Voru þetta oftast eins-dags-ferðir til
sögufrægra staða, eða þangað, sem náttúru-
fegurðin dró fólk til sín.
Ekki ósjaldan voru þetta þó tveggja daga
ferðir og þá ekki verið að gista á dýrum
gististöðum, heldur 1 tjöldum eða við
ferskan töðuilm x heyhlöðum.
Þeim fækkar nú óðum, sem muna þess-
ar fyrstu ferðir, en margar hópmyndir á
síðum Símablaðsins geyma minningar um
þær og þann þátt, sem þær á sínum tíma
áttu í því að skapa þá samstöðu, sem ein-
kenndi félagslífið.
Þessi þáttur í félagslífinu hefur fallið
niður, enda örðugra um vik nú í svo fjöl-
mennri stofnuw og dreifðum vinnustöðum.
En 24. ágúst s.l. var þráðurinn tekinn upp
að nýju. Þá var það hin nýstofnaða „öld-
ungadeild" sem lagði land undir fót og
hélt á slóðir Gauks Trandilssonar og Þuríð-
ar á Steinastöðum.
Um fimmtíu manns tóku þátt í þessari
ferð, eða allir þeir félagar, sem því gátu
við komið, ásamt mölkum. Ferðast var í
einum bíl frá Landleiðum.
Þarna var saman komið gamalkunnugt
fólk og minnti stemningin í bílnum fljót-
lega á þá gömlu og góðu daga, nema hvað
nú var setið í mjúkum sætum í stað harðra
bekkja.
Ekið var beina leið austur í Þjórsárdal
og staðnæmst við hina myndarlegu sund-
laug þar og morgunkaffið drukkið úti í
grænni náttúrunni. Síðan voru fornaldar-
bæirnir skoðaðir og gjáin, þar sem Gaukur
og húsfreyjan á Stöng munu hafa átt
stefnumót sín.
Þá voru Búrfellsmannvirkin skoðuð og
síðan haldið til baka með endurnýjaðar
minningar úr Þjórsárdal, og kaffi drukkið
í Árnesi, í boði F.Í.S.
Síðan var haldið sem leið liggur framhjá
Skálholti, um Laugarvatn, yfir Lyngdals-
heiði til Þingvalla og var þá kominn
kvöldverðartími.
En þar hafði Júlíana Erlendsdóttir, sem
eitt sine fyllti hóp símameyja, en er nú
gestgjafi á Þingvöllum, séð um að hafa
tilbúinn ágætan kvöldverð, sem henni voru
færðar þakkir fyrir. Ferð.þessi mun verða
okkur öllum minnisstæð, þar var á enginn
þreytublær aldraðs fólks, heldur fjör og
gleði samstillts hóps. Eitt af því, sem gerði
ferðina minnisstæða, var hin ágæta leið-
42
BIMABLAÐIÐ