Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.12.1977, Side 17

Símablaðið - 01.12.1977, Side 17
Morgunkaffió drukkið viö sundlaugina i Þjórsárdal. saga Jóns Gíslasonar, póstfulltrúa, sem þekkir þessar slóðir og sögustaði allra manna best og kann að segja frá. Var ferðafólkið 'honum mjög þakklátt fyrir þann fróðleik, sem hann veitti. Fararstjórn höfðu á hendi þeir Sæmundur Símonar- son og Júlíus Pálsson, sem kunnu sitt fag. En söng- og gleðistjóri var Jón Kárason, sem aldrei bregst á því sviði, en hann var gestur okkar. Yfir borðum á Þingvöllum voru nokkrar ræður fluttar. M.a. tók til máls aldursforseti deildarinnar, frú Ása Theodórs, og mælti af miklum skörungs- skap. Hún minnti m.a. á athyglisverða kröfu, sem gerð var til símameyja þegar hún gekk í þjónustu Símans á ísafirði fyr- ir 70 árum. Þeim var þá gert að láta um- sókn sinni fylgja siðferðisvottorð. Hennar siðferðisvottorð gaf Hannes Hafstein. Ræða Ástu er birt hér í blaðinu. Síðan var haldið heim með endurminn- ingar um skemmtilega ferð og með hug- anin fullan af áleitnum spurningum um sögu horfinnar byggðar og mannlífs í Þjórsárdal til forna. II Þjórsárdalur hefur löngum haft mikið aðdráttarafl. Eftir að bílaöldin rann upp verða hópferðir þangað tíðar og einkum þó eftir að sögubærinn á Stöng var grafinn upp. Það er margt, sem þessu aðdráttarafli veldur. Fjallahringurinn með ógnarveldi Heklu í ískyggilegri nálægð er tilkomu- mikill. Sérkennilegir og fagrir fossar eru víðsvegar um dalinn og í hlíðum hans, svo sem Háifoss, einn hæsti foss á landinu og Hjálparfoss. Gjáin í Rauðá með Gýgjarfoss, er töfraheimur út af fyrir sig, og eitt undursamlegasta náttúrufyrir- brigði hér á landi. Hin kalda auðn dalsins orkar líka á huganin, hraun og vikursandar, sem kaf- fært hafa blómlega byggð. Um þær ham- farir, sem þar hafa átt sér stað, vitum við lítið, en hugurinn leitar að svari við þeirri spurningu. Nokkrar staðreyndir höfum við þó til að styðjast við. Það er talið, að dalurinn hafi verið grösugur og skógi vaxinn á land- námsöld, og' byggð þar fljótt blómleg. En náttúruöflin lögðu þessa blómlegu byggð í innri hluta dalsins í auðn og færði fjölda bæja í kaf í öskufalli og ‘hraungosi. En hver urðu þá örlög þessa fólks, sem þarna bjó. Jarðfræðilegar rannsóknir varpa að vísu nokkru ljósi á eyðileggingu landsins, og byggðarinnar. En saga fólksins, sem þar bjó er týnd að mestu. Þar verður hugaflug hvers og eins að fylla í eyðurnar. En þær eyður bíða eftir skáldi, sem hlotið hefur þá snilligáfu, sem til þarf, að geta náð tökum á því efni. Því víst er það, þó fáar heimildir séu skráðar, að inni á milli fjalla Þjórsárdals hafa átt sér stað miklir atburðir, bæði í náttúruhamförum og örlögum fólks. Meðal þess fáa, sem skráð er frá fyrri tíð um þessa atburði er þjóðsagan ein. í einum bænum í dalnum á að hafa orðið sá atburður, að ung stúlka fékk aðvörun í draumi á þá leið, að ef hún vildi lífi halda skyldi hún bregða við fljótt og flýja. Hana greip svo mikill ótti, að hún tók reiðskjóta og keyrði hann sporum niður dalinn. Eftir langa reið varð henni litið til baka og sér hún þá að innri hluti dalsins er eitt eldhaf. í þessum hamförum á skógurinn að hafa SIMABLAÐIÐ 43

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.