Símablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 20
biður mig að fara þangað yfir síldartímann.
Ég gat auðvitað ekki sagt nei fyrst hann
treysti mér. Ég fór með togara til Siglu-
fjarðar. Þar var Jósef Blöndal stöðvar-
stjóri og stöðin í gömlu húsi sem seinna
brann.
Ég hafði haft með mér nokkrar krónur
að heiman svo ég tók ekki kaupið mitt
fyrr en ég fór frá Siglufirði. Blöndal
greiddi mér kaupið í gulli. Það kom alltaf
öðru hvoru gull í kassann og var þetta
elskulegt af Blöndal að gera mér veruna
á stöðinni á Siglufirði eftirminnilegri fyrir
vikið.
Til að komast heim til ísafjarðar, varð
ég að fara fyrst til Akureyrar og taka skip
þaðan. Þegar ég var ko-min um borð j
skipið á Akureyri, sá ég hvar Direktörinn
og stöðvarstjórinn á Akureyri voru að
koma um borð. Ég hugsaði með mér að
vera ekki að flækjast þarna uppi svo ég
fór niður í minn klefa. Næsta morgun hitti
ég Direktörinn og hann sp-urði og spurði
um Siglufjörð og stöðvarnar þar í kring.
Það var ótrúlegt hvað hann virtist þó
þekkja allt út í æsar.
Þarna sem ég er að tala við Direktörinn,
þá segir hann: „Nú er Ásdís að fá launa-
hækkun“. Ásdís vann á Akureyri, hún var
dóttir Guðlaugs sýslumanns þar og varð
síðar kona séra Friðriks Rafnar.
Axel S. Öskarsson
Ég svara því til, að ég væri ekkert hissa
á því, Ásdís væri bæði dugleg og búin að
vinna lengi.
Þá spyr Direktörinn: „Ætlið þér ekki
að sækja um launahækkun?“ Á þessum ár-
um átti fólkið sjálft að sækja um launa-
hækkun.
Ég brosti og sagði, að Direktörinn gæti
verið alveg rólegur, því það ætla ég ekki
að gera.
Þegar skipið kom til ísafjarðar, kom
Magnús Thorberg um borð til að taka á
móti yfirboðara sínum.
Næsta dag þegar ég var komin til vinnu
kom Magnús og sagði: „Mikið ansi hefur
þú verið þægileg við Direktörinn á leið-
inni.“ Jæjar?“ segi ég. „Já þú átt að fá
launahækkun. ‘‘ Ég sagðist ekki hafa sótt
um neina launahækkup. „Það er nú sama“,
segir Magnús, „og það á ekki að bíða til
áramóta, þú átt að fá hana frá næstu mán-
aðarmótum.“
Nú þetta er meir en ég vissi, en það
munar um hverja krónuna og viltu heilsa
Direktörnum frá mér með þakklæti næst
þegar þú talar við hann.
Nú er má að linni. Ég óska öllu símafólki
heilbrigði og gleði og s-érstaklega unga
fólkinu starfsgleði, hana má ekki vanta ef
vel á að vinna. Stofnuninni óska ég þess, að
hún megi alltaf vera þjóð sinni til sóma.
Axel S. Óskarsson var skipaður stöðvar-
stjóri í Neskaupsstað 1. nóvember 1977.
Axel er fæddur 20. febrúar 1933 í Nes-
kaupsstað. Hann lauk landsprófi fré Eiða-
skóla 1950, og eftir að hafa Iokið prófi frá
Loftskeytaskólanum árið 1954 starfaði
hann nokkur ár sem loftskeytamaður á
togurum.
Störf hjá Pósti og síma hóf Axel árið
1963, sem loftskeytamaður við loftskeyta-
stöðina í Neskaupsstað. Hann var símrit-
ari og síðar varðstjóri við loftskeytastöð-
ina þar til 1. ágúst 1976 er hann var settur
stöðvarstjóri í Neskaupsstað.
SÍMABLAÐIÐ