Símablaðið - 01.12.1977, Qupperneq 21
Um ellilLfeyrLr
(Eftirlaun)
Aðalsteinn heitinn Norrberg skrifaði
þessa grein fyrir Símablaðið árið 1969. Þar
sem margt símafólk hefur óskað eftir þess-
ari grein, teljum við tímabært að birta
hana aftur.
Við báðum Einar Kr. ísfeld fulltrúa hjá
Tryggingarstofnun ríkisins, að yfirfara
greinina, ef um einhverjar breytingar væri
að ræða.
Svo reyndist ekki og þökkum við Einari
fyrir veitta aðstoð.
I lögum um lífeyrissjóð starfsmannr
ríkisins er ýmisleg ákvæði að finna sem
við símamenn þyrftum að kunna miklu
betri skil á og gæti Símablaðið váfalaust
hjálpað mikið til í þeim efnum.
Hér verður ek'ki rætt um þau mál af
neinni sérþekkingu, en það sem vakir fyrir
mér er að koma af stað umræðum meðal
starfsmanna um viss atriði. M skýrast.
málin og frekari upplýsingar má alltaf fá
hjá starfsmönnum lífeyrissjóðsins um það,
sem ógreinilegt er.
Sjóðurinn greiðir sjóðfélögum eililífeyri
og örorkulífeyri og eftirlátnum maka
þeirra og börnum lífeyri, allt samkvæmt
sérstökum ákvæðum laganna.
Hér verður lítillega rætt um einn þátt
þessara réttinda, sem við ávinnum okkur
með iðgjaldagreiðslum, ellilífeyrinn (sama
og eftirlaun). Eldri starfsmenn geta hagað
greiðslum á tvennan hátt og gætu haft
gagn af að hugleiða það atriði. Það getur
jafnvel haft töluverða fjárhagslega þýð-
ingu fyrir þá.
AÖalsteinn
Norrberg
í 12. gr. lífeyrissj óðslaganna er að finna
'hina svokölluðu 95 ára reglu, sem er svo-
hljóðandi: „Þeir sem gerðust sjóðfélagar,
áður en lög nr. 32, 11. maí 1955 tóku gildi,
ihaldi rétti þeim er lög nr. 101, 30. des.
1943, 12. gr., veittu þeim til að krefjast
greiðslu ellilífeyris úr sjóðnum, er saman-
lagður aldur þeirra og þjónustutími nem-
ur 95 árum, enda hafi þeir fullnægt þeim
skilyrðum, sem þeirri reglu fylgja sam-
kvæmt eldri lögum, þar á meðal um
greiðslu iðgjalda í lífeyrissjóðinn, unz
greindu marki er náð.“
Eldri sjóðfélagar geta valið á milli að
greiða samkvæmt þessari reglu eða eftir
hinni almennu reglu, sem allir er gerðust
sjóðfélagar eftir 11. maí 1955 gera Hin
almenna regla er í stuttu máli þannig, að
'hver sjóðfélagi, er greitt hefur iðgjöld til
sjóðsins í 5 ár eða lengur og er orðinn
fullra 65 ára að aldri, á rétt á árlegum
ellilífeyri úr sjóðnum. Þegar sjóðfélagi hef-
ur greitt iðgjöld til sjóðsins í 30 ár, falla
iðgjaldagreiðslur hans niður. Upphæð elli-
lifeyris er 1,6% til 2%af laununum fyrir
hvert iðgjaldagreiðsluár (fer eftir launa-
flokkum, en hér verður reiknað með 2%
til að gera dæmin einföld).
Eftir að iðgj aldagreiðslu lýkur (eftir 30
ár) og þar til sjóðfélaginn öðlast rétt til að
láta af störfum og fá ellilífeyri (65 ára)
bætist við 1% af launum fyrir hvert
starfsár. Eftir að hann hefur öðlast rétt til
að láta af störfum bætist við 2% fyrir
hvert starfsár.
Ellilífeyrir starfsmanns, sem byrjar t.d.
SÍMABLAÐIÐ