Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 23

Símablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 23
StöhuveitLngar, Birgir S. Hermannsson var skipaður for- stöðumaður Póstgíróstofunnar frá og með 1. des. 1976.: Birgir er fæddur á Akureyri 8. desem- ber 1940. Stúdentsprófi lauk hann frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1960 og cand oecon frá Háskóia íslands árið 1968. Störf hjá Pósti og síma hóf hann árið 1968 í Rekstursdeild (Aðalbókhaldi). Birgir hefur verið í stjórn Kjaradeildar ríkisstarfsmanna innan Félags viðskipta- fræðinga og hagfræðinga. frá stofnun henn- ar árið 1972, en stjómin er jafnframt samninganefnd félagsins í la.unamálum. Frá sama tíma hefur hann setið í launa- Birgir S. Hermannsson málaráði B.H.M., ýmist sem aðal- eða vara- fulltrúi. Birgir er nú annar tveggja fulltrúa Pósts og síma í samstarfsnefnd um gíróþjónustu. Jóhann Grétar Einarsson var skipaður stöðvarstjóri á Seyðisfirði 15.8. 1977. Jóhann er fæddur 21. júní 1939 á Seyð- irfirði. Gagnfræðaprófi lauk hann árið 1957 frá gagnfræðaskólanum á Eiðum. Loftskeytaprófi lauk hann árið 1959. Jóhann hóf störf hjá Pósti og síma á Seyðisfirði sem símsendill árið 1953 og vann við þau störf tvö sumur og einn vet- ur. Árið 1958 byrjaði hann í afleysingum, sem loftskeytamaður og árið 1963 var skipaður loftskeytamaður og símritari árið 1965. Það er athyglisvert að hinn nýi stöðvar- stjóri á Seyðisfirði hefir alla. tíð unnið við símstöðina þar. Jóhann Grétar Einarsson 5IMABLAÐIÐ 49

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.