Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 24

Símablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 24
íslenskur rafeLndaihnaóur Nefnd um rafeindaiðnað á íslandi, skammstafað NUR, hefur starfað á vegum Iðniþróunarsjóðs og er hlutverk hennar að kanna stöðu rafeindaiðnaðar á íslandi og meta þróunarmöguleika hans. I nefndinni eru þeir Björn Kristinsson, verkfr., Sæmundur Óskarsson, verkfr. og Þórir Einarsson, hagfr. Nefndin hefur sent frá sér skýrslu, sem nefnist „Rafeindaiðnaður á íslandi“. Þetta er allítarleg skýrsla og kennir þar margra grasa. Þegar rætt er um rafeindaiðnað á ís- landi er ekki úr vegi að vekja athygli á þætti Pósts og síma í framleiðslu fjarskipti- tækja. Landssími íslands hóf smíði fjarskipta- tækja árið 1934 og varð framleiðsla slíkra tækja stór þáttur í starfsemi Radíotækni- deildar. Er tímar liðu og starfsemin varð fjölbreyttari, greindust verkefnin og hefur starfað að þeim sérstök framleiðsludeild í fimm undirdeildum, þær eru: Hönnunar- deild, Sérsmíðadeild, Málmsmíðadeild, Samsetningardeild og Prófanadeild. Til skamms tíma var framleiðslan að mestu leiti f jarskiptatæki fyrir skip og bif- reiðar, en síðan voru einmig framledd ýmis tæki fyrir strandastöðvarnar og símasam- böndin, svo sem talbrýr, sendar, skiptibún- aður, tónbrýr fyrir ritsíma og nú hin síð- ari árin mikið af tækjum fyrir dreifikerfi hljóðvarps og sjónvarps. Það gefur auga leið, að það hlýtur að vera mikill akkur fyrir stofnunina að hafa á að skipa sérmenntað og þjálfað starfslið, sem getur hannað og smíðað hinn margvís- legasta tækjabúnað, sem stofnunin þarf á að halda hverju sinni. Þá er hér um íslenskan iðnað að ræða, sem sparar þjóðinni erlendan gjaldeyri. Nokkur sýnishorn af fjarskiptatækjum smíðuð hjá Pósti og síma Tahendir/viOtceki. ViOtceki fyrir 2182KHg. 50 SIMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.