Símablaðið

Ukioqatigiit
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.12.1977, Qupperneq 28

Símablaðið - 01.12.1977, Qupperneq 28
en þetta var dugleg stúl'ka og hún fann sér æfistarf þar sem hún reyndist vel. — Telur þú starf þitt hafa verið skemmtilegt Jón? — Jú, blessaður góði. Ef frá eru talin fjögur til fimm ár af öllum þessum tíma, þá hefur þetta verið sérlega skemmtilegt æfistarf, stöðug uppbygging með ívafi ótal skemmtilegra atvika, sem of langt yrði upp að telja. — Hvaða ár voru þessi fjögur til fimm, sem þú undanskilur? — Það voru fyrstu ár sjálfvirkninnar. — Saknaðir þú svo mjög talsímakvenn- anna, sem þú varst að segja upp? — Mér hefur alla tíð fallið vel samstarf við konur. Uppsagnirnar fóru fram af gagnkvæmum skilningi og leystust farsæl- lega. Öllum sem ekki fóru beint í hjúskap- inn var útvegað starf við þeirra hæfi. En breyttir þjónustuhættir stöðvarinnar og málgleði símnotenda komu óþyrmilega við buddu þeirra og margar kvartanir bitnuðu vissulega á mér meðan ekki voru tiltæk kontroltæki. Sjálfvirk langlínuþjónusta milli Kefla- víkur og Reykjavíkurkerfisins var sú fyrsta í landinu. Þetta var brautryðjanda- starf, sem við urðum að inna af hendi. Það var ánægjulegt að öðrurn þræði, en kostaði oft áhyggjur, amstur og viðræður við fólk, sem ekki hafði búið sig undir sjálfstjórn eða agaða símanotkun. — Nokkuð að lokum Jón? — Ég vil nota þetta tækifæri og biðja blaðið að flytja mínar bestu kveðjur og iþakkir til míns ágæta samstarfsfólks hvar sem það er nú niðurkomið, einnig til yfir- manna minna í stofnuninni og félaga í F.Í.S. Ánægja í starfi Fyrirtækið Standard Telephone & Cable Ltd. í Englandi hefur gefið út hljómplötu, sem fjórir af æðstu mönnum fyrirtækisins hafa talað inn á. Þessi plata, sem gefin hefur verið út í tíu þúsund eintökum, heitir „Just for the Record“. Hún er liður í þeirri viðleitni fyrirtækisins, að fá það orð á sig að það sé besta fyrirtækið í Englandi að vinna hjá, en fyrirtæki þetta er á höttum eftir starfs- fólki. Þeir sem hafa áhuga á starfi hjá því fá senda plötu heim ásamt öðrum upplýs- ingum um fyrirtækið. Einn af hinum fjórum forstjórum, sem inn á plötuna tala, segir að þótt launin séu góð hjá Standard Telephone, þá telji hann launin ekki vera aðalatriðið þegar fólk sækir um vinnu. Hann telur að fólk þurfi ekki síður að finna fyrir ánægju í starfi sínu og það er einmitt þessi ánægja í starfi, sem Standard Telephone leggi áherslu á, að vekja með starfsfólki sínu. 54 SIMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.