Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1977, Síða 32

Símablaðið - 01.12.1977, Síða 32
Ársfundur N.T.S. Dagana 23. til 26. nóv. s.l. var haldinn í Danmörku ársfundur Nordisk telesekre- tariat. Fundarstaðurinn var gömul krá í litlu sveitaþorpi, sem heitir Menstrup, skammt frá Næstved á suður Sjálandi. Fundinn sóttu fulltrúar frá öllum 6 aðild- arfélögum N.T.S., þar á meðal formaður F.f.S. Aðalumræðuefni fundarins voru launa- mál og gerðu fulltrúar 'hvers félags grein fyrir þróun þeirra hjá sér frá síðasta árs- fundi og borin voru saman ýmis samnings- ákvæði, svo sem um vinnutíma, orlof og þ.h. Einnig reglur um dýrtíðar-uppbætur o.fl. Rætt var um verkfallsrétt og í því sambandi var mikið spurt um nýafstaðið verkfall B.S.R.B. og framkvæmd þess, enda hafði það vakið mikla athygli á Norður- löndunum og verið talsvert í fjölmiðlunum meðan á því stóð. Þá var rætt um skipulagsbreytingar á stofnunum, en það virðist hafa farið eins og eldur í sinu um Norðurlöndin að breyta skipulagi stofnananna. Bornar voru saman aðferðir við þessar breytingar og kom þá í ljós að þátttaka félaganna í því starfi var allsstaðar mikil nema hér hjá okkur, en eins og kunnugt er virðist það 'hafa verið keppi'kefli þeirra, sem hér stjórnuðu þessu starfi að halda F.Í.S. algjörlega utan við það og sömuleiðis að láta hinn almenna starfsmann sem minnst um breytingarnar vita. Það var því lærdómsríkt að kynnast öðrum viðhorfum í þessum efnum, t.d. til- skrifum danska póst- og símamálastjórans, Poul Hansen til sinna starfsmanna, þar sem hann skýrir breytingarnar og leggur á- herslu á atvinnulýðræði og þátttöku starfs- manna og þeirra fulltrúa í stjórnun fyrir- tækisins jafnframt því sem hann óskar eftir að heyra frá starfsmönnum um hvern- ig þeir meti breytingarnar. Þá leggur hann áherslu á að nýja skipulagið feli í sér opn- ari vinnutilhögun en áður, tillitssemi og skilning í stað fyrirskipana og eftirlits. Rætt var um aðild N.T.S. að Nordisk Tele- konferance, en þar ræða símastjórnirnar ýmis sameiginleg málefni. Talið var æski- legt að starfsmenn ættu þar fulltrúa til að fylgjast með og hafa áhrif á gang mála og var ákveðið að vinna áfram að því að N.T.S. fengi aðild þar að. Einnig var rætt um lög, sem gilda um vinnuvernd og vinnustaði (arbejdsmiljö) á Norðurlöndunum en í þremur þeirra hafa nú verið sett ný lög í þessum efnum. Ekki vannst tími til að ræða málið ítar- lega en mikið af efni var ýmist lagt fram eða verður sent síðar. Þá vannst heldur ekki tími til að ræða um þá menntun starfsmanna, sem símastjórnirnar sjá um og þýðingu þess að taka þátt í henni, en það hafði verið ætlunin. P.T.T.I. sem flest félögin eru aðilar að hefur gert könnun og var ákveðið að taka þetta mál til nánari umfjöllunar á næsta ársfundi. Allur var þessi fundur hinn gagnlegasti og um leið mjög ánægjulegur enda allar móttökur Dana hinar bestu. Ákveðið var að næsti ársfundur N.T.S. verði í Svíþjóð að ári. Á. G. 58 SIMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.