Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 33

Símablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 33
StöbuveLtingar: Reynir Sigurþórsson var skipaður Um- dæmisstjóri í Umdæmi IV, 15. ágúst s.l. Reynir er fæddur 28. febrúar 1930 í Reykjavík. Hann Iauk gagnfræðaprófi frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði 1974. Eftir loftskeyta skólapróf árið 1948 stund- aði hann sjómennsku þar til árið 1956, en þá hóf hann störf hjá Pósti og síma, sem loftskeytamaður við Fjarskiptastöðina í Gufunesi, síðar sem símritari, yfirsímrit- ari og varðstjóri eftir tiiheyrandi nám- skeið. Reynir starfaði við Loranstöðina að Gufuskálum árin 1961 til 1966, á þessum árum fór hann tvisvar til Bandaríkjanna til náms starfi sínu á Loranstöðinni við- víkjandi. Hann var settur Umdæmisstjóri að Brú veturinn 1968—1969 og skipaður stöðvar- stjóri í Neskaupsstað í júní 1970 og gegndi því starfi þar til í júlí 1976 er hann var settur yfirmaður Símamálaskrifstofu Pósts og síma. Reynir Sigurþórsson Á meðan Reynir starfaði á Lóransstöð- inni að Gufuskálum var hann formaður F.Í.S. deildarinnar þar og átti um tíma sæti í fræðslunefnd B.S.R.B. Ritari í stjórn deildar Stöðvarstjóra Pósts og síma var Reynir í þrjú ár. Ingibjörg Ottesen var skipuð stöðvar- stjóri Pósts og síma á Stokkseyri 1. febrúar 1977. Ingibjörg er fædd 28. maí árið 1948. Hún hóf störf hjá Pósti og síma, sem bréfberi á símstöðinni á Hvolsvöllum, árið 1974. Sama ár varð hún talsímavörður á símstöð- inni og gegndi því starfi þar til hún var skipuð stöðvarstjóri á Stokkseyri. Ingibjörg Ottesen SIMABLAÐIÐ 59

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.