Símablaðið - 01.12.1977, Page 34
T veir
stórir
Það eykur mjög á ánægjuna við að dvelja
í sumarbúðum F.Í.S. að Apavatni, að þar
geta dvalargestir stundað veiði í vatninu.
Veiðin er að sjálfsögðu afar misjöfn og
þeir urriðar og bleikjur, sem þar veiðast
eru víst oftast nær af smærri gerðinni.
Þó bar svo við í sumar sem leið, að þar
veiddist fjögurra punda urriði, sem var 52
cm að lengd. Það var Árni Frímannsson,
símaverkstjóri, sem veiddi þennan væna
fisk.
Árni meö þann stóra.
Stöhuveiting:
Gunnlaugur Guðmundsson var skipaður
stöðvarstjóri Pósts og síma í Garðabæ 1.
maí 1977.
Gunnlaugur er fæddur 25. júní 1923 á
ísafirði. Hann hóf störf við póstafgreiðsl-
una ísafirði í ársbyrjun 1945 og var skip-
aður póstafgreiðslumaður 1. júlí sama ár
og póstfulltrúi 1957. Gunnlaugur starfaði
á ísafirði til 1. sept. 1975 er hann var skip-
aður fulltrúi við póstútibúið R-5 að Lauga-
vegi 120 í Reykjavík.
Gunnlaugur GuÖmunds-
son
60
SÍMABLAÐIÐ