Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 34

Símablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 34
T veir stórir Það eykur mjög á ánægjuna við að dvelja í sumarbúðum F.Í.S. að Apavatni, að þar geta dvalargestir stundað veiði í vatninu. Veiðin er að sjálfsögðu afar misjöfn og þeir urriðar og bleikjur, sem þar veiðast eru víst oftast nær af smærri gerðinni. Þó bar svo við í sumar sem leið, að þar veiddist fjögurra punda urriði, sem var 52 cm að lengd. Það var Árni Frímannsson, símaverkstjóri, sem veiddi þennan væna fisk. Árni meö þann stóra. Stöhuveiting: Gunnlaugur Guðmundsson var skipaður stöðvarstjóri Pósts og síma í Garðabæ 1. maí 1977. Gunnlaugur er fæddur 25. júní 1923 á ísafirði. Hann hóf störf við póstafgreiðsl- una ísafirði í ársbyrjun 1945 og var skip- aður póstafgreiðslumaður 1. júlí sama ár og póstfulltrúi 1957. Gunnlaugur starfaði á ísafirði til 1. sept. 1975 er hann var skip- aður fulltrúi við póstútibúið R-5 að Lauga- vegi 120 í Reykjavík. Gunnlaugur GuÖmunds- son 60 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.