Símablaðið - 01.12.1977, Side 38
M in.mngargreLnar
GUÐMUNDUR JÓHANNESSON
Guðmundur Jóhannesson fyrrverandi
innheimtugjaldkeri Landssímans lést
að morgni þess 11. september s.l., 83
ára að aldri.
Hann hóf langan og farsælan starfs-
feril sinn hjá Landssímanum 25 ára
gamall að loknu námi við Loftskeyta-
skólann árið 1919, en hann varð þá
stöðvarstjóri Loftskeytastöðvarinnar í
Flatey á Breiðafirði.
Árið 1931 fluttist Guðmundur til
Reykjavíkur og starfaði við Loftskeyta-
stöðina þar um skeið og síðar á skrif-
stofu aðalgjaldkera.
Árið 1944 var stofnuð ný innheimtu-
deild Landssímans í Reykjavík og var
Guðmundur þá skipaður forstjóri henn-
ar.
Það innheimtufyrirkomulag á síma-
gjöldum, sem þá var tekið upp, olli
miklum úlfaþyt í höfuðborginni. En
segja má, að sú óánægja hjaðnaði ótrú-
lega fljótt og var það eingöngu því að
þakka, að til hins nýja starfs hafði val-
ist réttur maður.
Með sinni meðfæddu háttvísi, lipurð
og sannsýni tókst Guðmundi á ótrúlega
stuttum tíma að gera Innheimtu Lands-
símans að einni vinsælustu deild stofn-
unarinnar, enda var honum það áskpap-
að, að þurfa aldrei að efast um tiltrú
yfirmanna sinna.
Guðmundur var ákaflega félagslynd-
ur maður, þó hann hefði sig ekki í
frammi á því sviði, eins og efni stóðu
til.
Hann var þó lengi í fremstu röð
þeirra félagsmanna í F.I.S., sem áhrif
höfðu á framgang mála og olli því ekki
síst hin óhlutdræga málsókn hans og
hlýja framkoma.
Hann taldi aldrei eftir sér að leggja
Símablaðinu lið, enda var hann vel rit-
fær maður og kunni skil á mörgu.
Um skeið var hann formaður F.l.S.
og í ritstjórn Símablaðsins átti hann
oft sæti.
Guðmundur var föngulegur á velli og
glæsimenni í sjón.
Þar sem hann fór duldist engum, að
á ferð var öðlingsmaður í þess orðs
bestu merkingu.
Ég þakka þér, Guðmundur, fyrir
langa og snuðrulausa samfylgd.
A.G. Þormar.
SÍMABLÁÐIÐ