Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1977, Page 40

Símablaðið - 01.12.1977, Page 40
Með frú Ingibjörgu er gengin óvenju- lega vel gerð kona. Er þar sama hvort litið er á gáfnafar, líkamlegt og andlegt þrek eða hjartalag. Hún var stórbrot- inn höfðingi, sígefandi og gleðjandi aðra, mundi ávallt eftir öllum — öllum nema sjálfri sér. Við samstarfsfólk hennar þökkum samleiðina og færum ástvinum hennar samúðarkveðjur. Magnús Eyjólfsson ÓLAFUR ADOLPHSSON Vinur minn, Ólafur Adolphsson yfir- símritari, lést á heimili sínu Drápuhlíð .31 mánudaginn 7. nóvember 1977. Hann var fæddur í Reykjavík 11. desember 1939, sonur hjónanna Guðrúnar Elís- dóttur og Adolphs Bergssonar lögfræð- ings. Ólafur var næstyngstur átta syst- kina og lifa þau hann ásamt aldraðri móður, en föður sinn missti hann í barn- æsku. Ólafur útskrifaðist úr Loftskeyta- skólanum árið 1959 og stundaði ýmis störf þar til hann réðst til Landssímans árið 1961. Vann hann fyrst á Radióverk- stæði Landssímans og síðan við hálofta- athuganir, sem Landssíminn sá um, þar til þær voru lagðar niður, og nú síðast við flugþjónustuna í Gufunesi. Ölafur kvæntist árið 1964 þýskri konu Christ- ine Schmidt. Þau slitu seinna samvist- um og fluttist Christine til Þýskalands með soninn Geir, sem fæddist 19. júní 1968. Tók hann það mjög nærri sér, að sjá á eftir syninum svo langt í burtu. Ólafur hafði mjög gaman af börnum og hafði einstakt lag á því að setja sig inn í þeirra viðhorf. Aldrei var hann tíma- naumur þegar börn voru annars vegar. Ólafur var ákafur íþróttaunnandi og stundaði frjálsar íþróttir og handbolta á sínum yngri árum. Spilaði hann með meistaraflokki K.R. í handbolta um ára- bil. Einnig var hann ágætur skákmaður, og eru þær orðnar óteljandi skákirnar, sem við höfum tekið saman gegnum ár- in. Hann tefldi líka með góðum árangri með skáksveit Landssímans í keppnum, sem hún tók þátt í. Hann var og all- snjall bridgemaður og vann til fjölda verðlauna innan stofunarinnar sem ut- an. Að mála með olíulitum hafði hann mikið yndi af, og prýddu myndir eftir hann hans viðkunnanlega heimili. Minn- isstætt við heimili hans var blómarækt- in. Þar voru blóm allsstaðar sem hægt var við oð koma. Það var líka hugsað vel um þau, endadöfnuðu þau eftir því. Sár er söknuður aldraðrar móður og systkina eftir góðum syni og bróður, og vinar eftir góðum vini. Blessuð sé minn- ing hans. Gylfi Gíslason. SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.