Símablaðið - 01.12.1977, Síða 41
SIGURÐUR ÁRNASON
Sigurður Árnason, símaverkstjóri
andaðist á Borgarspítalanum þriðju-
daginn 6. des. sl. að kvöldi, þann dag
hafði hann gengið að starfi sínu af
sama lifandi áhuga og jafnan einkenndi
hann, án þess nokkur merkti hvað að
dró.
Sigurður var fæddur á Seyðisfirði 22.
febr. 1911 og voru foreldrar hans Árni
Eyjólfsson og Þorgerður Brynjólfsd.
Faðir hans fluttist til Englands og fórst
með breskum togara í fyrri heimsstyrj-
öldinni, en Sigurður ólst upp með móð-
ur sinni í Óskoti í Mosfellssveit til 11
ára aldurs, en síðan voru þau til heim-
ilis hjá Guðnýju og Björnes símaverk-
stjóra, sem reyndust honum, sem for-
eldrar.
Sigurður byrjaði innan við tvítugt að
vinna hjá Landssímanum sem sendill,
en fljótlega fór hann að vinna við línu-
lagningar með Björnes. Síðan hefur
hann starfað við stofnunina og helgað
henni krafta sína óskifta, og stjórnað
mörgum meiriháttar fi-amkvæmdum.
Sumarið 1946 var hann verkstjóri við
jarðsímalagninguna um Borgarfjörð.
Sú verkstjórn aflaði honum þess trausts
yfirmanna sinna, sem hefur haldist ó-
skert síðan.
1. júlí 1945 var Sigurður skipaður
línuverkstjóri, en 1951 tók hann við
verkstjórn við Bæjarsímann í Rvík, er
Jónas Eyvindsson lét af því starfi. Ár-
ið 1955 var hann skipaður yfirverk-
stjóri við BR. og tæknifulltrúi 1/7 1976.
Bæjarsíminn í Rvík hefur ekki alltaf átt
vinsældum að fagna hjá kröfuhörðum
almenningi og símanotendum. En Jónas
Eyvindsson hafði í áratuga starfi verið
þar ómetanlegur milliliður, sem með
lipurð sinni vann óvenjulegt traust
þessara aðila. Við því starfi var ekki
vandalaust að taka. En það reyndist
fljótt svo, að Sigurður var þar réttur
maður á réttum stað. Sú dæmalausa
lipurð og hjálpsemi, sem honum var í
blóð borin, brást símnotendum ekki.
En ef til vill hafa þeir eiginleikar hans
gert honum starfið erilsamara og oft
mjög þreytandi, því öllum þótti gott
að leita til hans. En hann hafði mikla
gleði af að greiða úr vandræðum fólks,
ekki síst þess, sem ekki hafði þá að-
stöðu, að það gæti beitt „hærra valdi“.
Sigurður var mikill áhugamaður um
félagsmál, og alltaf reiðubúinn til að
leggja þeim lið sitt. Einkum minnist ég
þess, hve mörgum frístundum sínum
hann eyddi við ei-fiðasta og mesta átak
félagsins við framkvæmdirnar í Elliða-
hvammi á sínum tíma.
Með Sigurði er horfinn góður og heil-
SÍMABLAÐIÐ 67