Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 44

Símablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 44
Hermann GuÖmundsson, Jón Tómasson með stytt- una, Anna Böðvarsdóttir og Garðar Hannesson. Aðalfundur deildar stöðvarstjóra Pósts og síma var haldinn í Reykholti, Borgar- firði, dagana 13. og 14. ágúst 1977. Formað- ur deildarinnar, Hermann Guðmundsson, stöðvarstjóri á Akranesi, setti fundinn og bauð félaga og gesti velkomna. Gestir fundarins voru tveir úr stjórn F.Í.S., þeir Ágúst Geirsson, formaður og Bjarni Ólafs- son, gjaldkeri. Ennfremur Þorgeir Þor- geirsson, framkvæmdastjóri Umsýsludeild- ar Pósts og síma, en hann hafði orðið við beiðni deildarstjórnarinnar um að ihalda erindi á fundinum. Ýmsar tillögur voru samþykktar á fund- inum og ályktanir gerðar, m.a.: Að nauð- synlegt sé að hafa stigatöflu til viðmiðun- ar, þegar stöðvarstjórum er raðað niður í launaflokka. Tafla þessi sé unnin út frá umfangi stöðvanna og fullt tillit tekið til sérstöðu þeirra við gerð hennar. ítrekaðar voru fyrri kröfur um að stöðv- arstjórar Pósts og síma séu ekki flokkaðir lægra til launa en póstútibússtjórar í Reykjavík miðað við umfang. Lýst var yfir stuðningi við F.Í.S. um hækkaðar yfirvinnugreiðslur til stöðvar- stjóra, og taldi fundurinn að núverandi greiðslur væru ekki í samræmi við fram- lagða vinnu stöðvarstjóranna og því nauð- synlegt að fá lagfæringu þar á. Fundarmenn töldu mjög æskilegt og hag- stætt fyrir Póst og símamálastofnunina og viðskiptavini hennar að sem nánust sam- 70 vinna sé milli stöðvarstjóra annars vegar og forstjóra og umdæmisstjóra stofnunar- innar hinsvegar, við ákvörðunartöku og fram'kvæmd ýmissa mála, sérstaklega sem viðkomandi stöðvar ná yfir. í þessu sam- bandi vill fundurinn sérstaklega benda á, að mjög æskilegt væri að umdæmisstjórar héldu fund með stöðvarstjórum í umdæmi sínu einu sirrni til tvisvar á ári, til kynn- ingar og umræðu um þau mál, sem efst voru á baugi hverju sinni. Ennfremur tel- ur fundurinn nauðsynlegt að námskeið fyrir stöðvarstjóra verði haldin, svo oft sem þurfa þykir, til samræmingar á störf- um þeirra, ekki hvað síst með tilliti til þeirrar skipulagsbreitingar sem nú stend- ur yfir. í stjórn deildarinnar fyrir næstu tvö ár, voru kosnir Hermann Guðmundsson, stöðv- arstjóri á Akranesi, formaður, Anna Böðv- arsdóttir, stöðvarstjóri á Laugarvatni og Garðar Hannesson, stöðvarstjóri í Hvera- gerði. Til vara Ragnar Helgason, stöðvar- stjóri á Húsavík, Björgvin Lúthersson, stöðvarstj. í Keflavík og Marta B. Guð- mundsdóttir, stöðvarstj. á Brúarlandi. Full- trúar á Landsfund F.Í.S. 1978 voru kjörnir Hermann Guðmundsson, Garðar Hánnes- son og Björgvin Lúthersson. Til vara Hrefna Jónsdóttir, Anna Böðvarsdóttir og Guðbjörg Thorarensen. Aðstoðarmenn við útgáfu Símablaðsins voru kjörnir: Þórunn Pálsdóttir, stöðvarstj. Fáskrúðsfirði, Guðný SIMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.