Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2006, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 2006
Sport DV
19.35 íþróttamaður
..."'ársins á RÚV og Sýn.
Bein útsending frá
Grand Hótel en útsend-
ing Sýnar hefst kl. 20.40
19.50
1 Arsenal-Manchester
United á Enska boltan-
21.10 íþróttaárið
2005 á Sýn. Fréttamenn
stöðvarinnar fara yfir
árið í þessum þætti sem
er í opinni dagskrá.
Hjálmarsson, framkvæmdastjóri
KKI, að úrskurðar sé að vænta eft-
ir fundinn. Þar munu nefndar-
meðlimir fara yfir ljósmyndir og
myndbandsupptöku af atvikinu
sem myndatökumaður Njarð-
víkurliðsins tók upp. „Mynd-
bandið segir allt sem segja þarf -
okkar maður er með þetta atvik
upp á tíu," sagði EinarÁrni. Ljós-
myndirnar sem blaðamaður Vík-
urfrétta tók birtast hér í dag og er
ekki um að villast hvernig í pott-
inn er búið.
„Jeb Ivey er stálheppinn að
ekki fór verr. Þetta var stórhættu-
legt högg. Og það sem verra er að
AJ Moye sá sér ekki fært að biðjast
afsökunar á atvikinu fyrr en dóm-
ari leiksins neyddi hann til þess,"
sagði Einar Árni en þrátt fyrir
þessa tilstuðlan dómarans refsaði
hann Moye ekki fyrir atvikið.
Keflvíkingar hafa sjálfir kært
leikmann til aganefndar KKÍ fyrir
álíka brot eftir að David Sanders,
þáverandi leikmaður Tindastóls,
gaf Sverri Þór Sverrissyni kjafts-
högg. eirikurst@dv.is
Missir Essien af
Afríkukeppn-
inni?
Svo gæti farið
að Michael
Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur lagði í gær fram kæru á hendur
AJ Moye, leikmanni Keflavíkur, til aganefndar KKÍ. Eins og sést
greinilega á meðfylgjandi myndum gaf Moye öðrum bandarísk-
umleikmanni, Njarðvíkingnum Jeb Ivey, „kröftugt" olnbogaskot
eins og Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkurliðsins, komst
að orði í samtali við DV Sport í gær.
„AJ Moye er þarna búinn að ná
valdi á boltanum og var reyndar
búið að flauta villu á Ivey og leikur-
inn var stöðvaður. Þá gefur hann
Ivey kröftugt olnbogaskot - með
krepptum hnefa og þéttingsföstu
höggi," sagði Einar Ámi. „Það var
synd að dómaramir tóku ekki eftir
þessu og okkur fannst með öllu
óþarft að menn kæmust upp með
slíka hegðun."
Algerlega tilefnislaust
Olnbogaskotið kom í ijórða leik-
hluta þegar Njarðvík var með 30
súga forystu og hafði atvikið því ekki
teljanleg áhrif á framvindu leiksins
sem Njarðvík vann, 108-84. Þetta
var reyndar fimmti sigur Njarðvíkur
á liði Keflavíkur í jafn mörgum leikj-
um í vetur og flestir hafa þeir unnist
með miklum mun þar sem Ivey hef-
ur spilað stórt hlutverk í leik Njarð-
víkur.
„Þessir tveir leikmenn vom ekki
búnir að vera í neinum átökum í
leiknum sjálfum. Ég get ekki betur
séð en að þetta sé algerlega án til-
efnis," sagði Einar Ámi. Hann sagði
að Ivey hafi verið skoðaður bæði af
lækni sem og tannlækni. „Það er lík-
legt að hann hafi farið úr kjálkalið,
hugsanlega hafi liðbönd skaddast og
bitið skekkst. Við væmm ekki að
leggja fram kæm ef þetta væri eitt-
hvað léttvægt."
Myndband upp á tíu
Einar Árni bjóst þó við að Ivey
gæti æft með félögum sínum í
vikunni. í dag klukkan 17 hittist
aganefnd KKÍ og segir Hannes
Essien missi af
Affíkukeppni
landsliða sem
hefst í Egypta-
landi í mánuðin-
um. Essien var
illa tæklaður í leik
West Ham og Chelsea í gær og
var borinn af velli á 13. mínútu
leiksins. Enn liggur ekki end-
anlega ljóst fyrir hversu lengi
hann verður frá en það mun
væntanlega koma í ljós í dag.
ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐUR
SEÐLABANKA (SLANDS
KALKOFNSVEGI 1
150 REYKJAVÍK
ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐUR
auglýsir eftír umsóknum
um styrki úr sjóðnum á árinu 2006.
Samkvæmt skipuiagsskrá sjóðsins nr. 361 30. septemberl977,
sbr. auglýsingar um staðfestingu á breytingu á skipulagsskrá
fyrir Þjóðhátíðarsjóð, nr. 673 frá 12. september 2000 og nr.
987 frá 19. október 2005, er tilgangur sjóðsins„oð veita styrki
til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna
að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar,
sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf"
Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði
viðbótarframlög til þeirra verkefna, sem styrkt eru,
en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög
til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau.
Stefnt er að úthlutun á fyrri hluta komandi árs.
Umsóknarfrestur er til og með 28. febrúar 2006.
Eldri umsóknir ber að endurnýja.
Nálgast má umsóknareyðublöð á veffanginu
www.sedlabanki.is.
Nánari upplýsingar gefur ritari sjóðsstjórnar,
Sigfús Gauti Þórðarson, í síma 569 9600.
Reykjavík, 30. desember 2005.
ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐUR
Josemi til
Villarreal
Varnarmaður-
inn spænski Jos-
emi sem hefur
verið á mála hjá
Liverpool hefur
gengið til liðs við
Villarreal á Spáni. í skiptum
fyrir hann kemur Hollending-
urinn Jan Kromkamp en báðir
áttu þeir í tungumálaörðug-
leikum hjá sínum liðum og
ættu því skiptin að henta
þeim báðum vel.
Olnbogaskotið Leikurínn er
stöðvaður og AJ Moye veitirJeb Ivey
kröftugt oinbogaskot iandlit hans.
Njarðvík hefur lagt fram kæru til aganefndar KKÍ vegna atviks sem átti sér stað í
leik Njarðvíkur og Keflavíkur á föstudaginn síðastliðinn. AJ Moye gerðist þá að
því er virðist sekur um grófa, óíþróttamannslega hegðun er hann veitti Jeb Ivey
olnbogaskot en hugsanlegt er að hann hafi farið úr kjálkalið. Málið verður tekið
fyrir í aganefnd KKÍ í dag.
■ ■■ % ■ |
Njarðvikmgap kæra
flJ Mnvfi lypjp nlnhnnasknt
Barlst um boltann Jeb Ivey
(til vinstri) og AJ Moye berj-
ast um boltann og deerhir
dómarinn villu á ivey.
í
SKOTIÐ!
Leikurinn stöðvaður Leikmenn Njarð
vikur, Jeb Ivey og Guðmundur Jónsson,
horfaá dómara leiksins eftir að dæmd
var villa á Ivey og leikurinn stöðvaður.
1
kf
Dómari! Áhorfendur í stúkunni
bendá dómurum leiksins á hvað
hafi gerst. Unnusta Iveys er einnig
staðin upp, hún er dökkhærða
stúlkan fjærst á myndinni.
(#5)1 | f gólfinu Jeb Ivey liggur kylliflotur eftir högg Moye.
DV-mynd Víkurfréttir/Jón Björn