Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2006, Qupperneq 23
r-
DV Lífiðsjálft
fQssa [bScíia a9 [pOssa camáto
Flest börn sem væta rúm sitt hætta því með tímanum og meðferð er aðeins nauð-
synleg ef athæfið kemur barninu I uppnám. Þetta kemur fram (nýrri rannsókn
kanadískra vísindamanna. „Almennt séð pissa börn ekki undir vegna læknisfræði-
legra, andlegra eða tilfinningalegra vandamála," sagði Dr. Mark Feldman sem
leiddi rannsóknina. „Þetta getur hins vegar orðið að vandamáli ef foreldrarnir,
börnin eða læknar láta athæfið pirra sig." Feldman segir börn væta rúm sitt því
þau sofi sem fastast þegar þau þurfa á klósettið.
BARNAVÖRUVERSLUN - GLÆSIBÆ
simi 553 3366 - www.oo.is
„Stjúpforeldrarnir geta
orðið ágæt viðbót við
lífbarnsins en þú ert
alltaf mikilvægasta
manneskjan í lífi þess."
PUNKTAR FYRIR STJÚPBÖRN:
1. Vandamál fullorðinna eru ekki þér
að kenna
Mörg börn kenna sér um að foreldrar
þeirra ákváðu að skilja. Stundum
heyrðu þau foreldra sína rífast um
peninga, tiltekt og ýmislegt annað
sem þau gátu ekki komið sér saman
um. Börn halda þess vegna að ef þau
hefðu verið duglegri að laga til eða
ekki beðiö svona oft um peninga, þá
væri allt gott milli pabba og
mömmu. Ef þú hugsar þannig,
mundu þá að þú átt engan þátt í
skilnaði foreldra þinna. Þú hefur
enga stjórn á tilfinningum foreldra
þinna eða hvernig þeim kemur sam-
an fyrir eða eftir skilnaðinn. Skilnað-
ur foreldra þinna er ekki þér að
kenna!
2. Efþú vonast til að foreldrar þínir
taki saman að nýju, þá ert þú ekki
einn um það
Flest börn vona að pabbi og mamma
þeirra taki saman aftur og allt verði
eins og áður en þau skildu. Það ger-
ist þó sjaldnast. Þeim kom ekki vel
saman áður en þau skildu og þá er
ólíklegt að þeim komi nógu vel sam-
an núna til að búa saman aftur. Ef þú
ert í þessum sporum, hafðu í huga
að þú ert það dýrmætasta sem
pabbi þinn og mamma eiga. Það
breytist ekkert þó að þau vilji ekki
búa lengur saman. Mundu að þau
eiga þig saman og þér má þykja jafn
vænt um báða foreldra þina, alveg
sama hvar þeir eiga heima.
3. Hvað efþér líkar ekki við
stjúpforeldri þitt?
Stjúpforeldri er fólkið sem pabbi eða
mamma giftist eða býr með eftir
skilnaðinn. Sum börn þora varla að
láta sér líka vel við stjúpforeldri sitt,
þvi að þá finnst þeim þau vera að
svikja mömmu eða pabba. En þér
má alveg líka við stjúpforeldri þitt og
þú ert ekki að svíkja pabba eða
mömmu. Það er svo miklu notalegra
að kunna vel við fólk en að kunna illa
við það. Öðrum börnum líkar alls
ekki við stjúpforeldra sína og veistu
hvaö? Það er líka allt i lagi! En þú
verður að koma fram við stjúpfor-
eldri þitt eins og annað fólk og vera
kurteis. Komdu fram við stjúpforeldri
þitt eins og þú vilt að aðrir komi
fram við þig. Þér líður sjálfum betur
ef þú gerir það. Þér þarf heldur ekki
að líka við stjúpsystkini þín, en stjúp-
systkini eru börn stjúpforeldri þíns.
Þau eiga samt skilið kurteisi og virð-
ingu. Þau eru í sömu sporum og þú.
4. Talaðu um það sem angrarþig
Láttu vita ef eitthvað angrar þig!
Sum börn þora ekki að tala um það
sem amar að, þvi að þau eru hrædd
um að pabbi, mamma eða stjúpfor-
eldrið verði reitt eða þau fái ekki að
hitta foreldrið sem þau búa ekki hjá.
Taktu áhættuna á því að segja hvern-
ig þér líður, því að venjulega vill full-
orðna fólkið gera allt sem það getur
til að börnunum líði vel. Til þess
verður fullorðna fólkið að vita hvað
er að. Annars er ekki hægt að laga
hlutina. Það er leiðinlegt ef fullorðna
fólkið reiðist en þú getur ekki ráðið
þvi hvernig það bregst við, bara
hvernig þú segir hlutina. Reyndu að
tala um það sem angrar þig án þess
að hrópa og öskra. Byrjaðu á því að
biðja þann sem þú þarft að tala við
þig um tíma með þér og láttu vita að
þú þurfir að ræða alvarlega við hann.
Vertu eins skýr og róleg(ur) og þú
getur. Það hjálpar að horfa í augun á
þeim sem maður er að tala við. Þú
getur til dæmis beðið pabba - eða
mömmu - eða þann sem þú vilt tala
við - að koma með þér í göngutúr
eða bíltúr ef þú vilt vera í friði. Það
má líka loka sig af inni í herbergi og
ræða málin. Best er að reyna að tala
saman. Ef þér finnst það allt of erfitt
má líka skrifa bréf til þess sem þú vilt
tala við og rétta honum. Margir
krakkar eru flinkir á tölvur og geta
sent netpóst og aðrir kunna á MSN.
Aðalatriðið er að tala við einhvern
sem þú treystir og nota þá aðferð
sem þér finnst best! Stundum er
hægt að laga það sem angrar mann
og stundum ekki. En það hjálpar þó
oft að tala út um hlutina.
5. Þú getur hjálpað
Það skiptir máli hvað þú segir og
gerir, hvort sem það er í skólanum,
með vinum þínum eða með fólkinu
sem þú býrð oftast með eða bara
stundum. Ef við erum kurteis og
berum virðingu fyrir hvort öðru líður
öllum miklu betur. Ef við sýnum
dónaskap og komum ekki fram við
aðra eins og við viljum að aðrir komi
fram við okkur líður flestum illa, líka
okkur sjálfum. Stjúpforeldri þínu er
ekki sama hvað þér finnst um það
og langar því til að ykkur komi vel
saman. Hvort sem þér líkar við
stjúpforeldrið eða ekki, þá kostar
það ekkert að gefa því tækifæri.
Flestum börnum líkar illa við miklar
breytingar og i stjúpfjölskyldum er
margt sem þarf að venjast. Þú ert
hluti af stjúpfjölskyldu og það þurfa
allir að leggja sig fram, að minnsta
kosti gefa hlutunum tækifæri til að
láta þá ganga upp. Þegar vel gengur
líður öllum betur sjálfum og með
hvert annað.
Tekið afheimasiðunni stjuptengsl.is.
„Það var virkileg þörf á svona fé-
lagi á íslandi," segir Valgerður Hall-
dórsdóttir, félagsráðgjafi og for-
maður Félags stjúpfjölskyldna, en
félagið var stofnað í lok nóvember.
Tilgangur félagsins er að gera stjúp-
fjölskyldur sýnilegri hér á landi en
samkvæmt Valgerði er kjarnafjöl-
skyldan hin hefðbundna fýrirmynd.
„Þeir sem eru ekki í hinni hefð-
bundnu kjarnafjölskyldu eru hins
vegar alltaf að þykjast vera það,
sem er eitt helsta vandamál stjúp-
fjölskyldna. Stjúpfjölskyldan verður
að viðurkenna sjálfa sig og fá sam-
félagið til að viðurkenna hana líka.“
Samþykkjum
stjúpfjölskylduna
Valgerður segir marga stjúpfor-
eldra byrgja inni tilflnningar sínar.
Fólk telji að það sé eitt um að upp-
lifa neikvæðar tilfinningar en það
sé ekki raunin. „Oft fer allt í háaloft
þegar rætt er um stjúpfjölskylduna.
Pör tala um „sín börn“ og „þín
börn“ en við verðum að finna ein-
hvern flöt. Stjúpfjölskyldur eru af
ýmsum toga svo það er engin ein
uppskrift og við verðum að finna
það sem hentar okkur. Til þess
verðum við að viðurkenna stjúp-
fjölskylduna og samfélagið að sam-
þykkja okkur sem slíka. Ef þú veist
við hverju þú mátt búast og hvaða
tilfinningar eru eðilegar eru meiri
líkur á að sameining tveggja fjöl-
skyldna gangi betur, breytingin
verður auðveldari," segir Valgerður
en bætir við að ef fólk hafi hina
hefðbundnu kjarnafjölskyldu að
leiðarljósi séu vonbrigðin óhjá-
kvæmileg.
Stofnfélagar 90 talsins
Valgerður hafði gengið með
hugmyndina að félaginu í magan-
um í langan tíma. Hún hafði áður
stofnað heimasíðuna stjuptengsl.is
en sú síða hýsir félagið eins og er.
„Þegar ég opnaði síðuna sköpuðust
ákveðnar væntingar og eftir að ég
ýtti við fólki ákváðum við að stofna
félagið," segir hún en stofnfélagar
eru um 90 talsins. Fjöldinn kom
Valgerði ekki á óvart enda búin að
lifa og hrærast í þessum málum í
langan tíma. „Ég var mjög ánægð
með hversu margir vildu taka þátt
en ég veit að flestir vilja einfaldlega
nálgast upplýsingar. Það er líka allt
í lagi svo lengi sem það eru ein-
hverjir sem eru tilbúnir að vera
virkari."
Þú ert mikilvægasta
manneskjan
Félagið mun halda fund seinni
partinn í janúar og í febrúar verða
umræður um stjúpmæður auk
fræðslufunda og fræðsluhópa. „Hér
á landi eru engar tölur um fjölda
stjúpfjölskyldna. Við ætlum að ýta
undir rannsóknir á þessum málum
því það vantar meiri þekkingu auk
þess sem við ætlum að gera okkur
sýnilegri í allri opinberri umræðu,
stefnumótun og lagasetningu. Þess-
ar fjölskyldur eru yfirleitt mun
stærri en aðrar en hvergi í hinni op-
inberu umræðu ert gert ráð fyror
okkur," segir Valgerður. Hún segir
lykilatriði í velgengni fjölskyldunnar
að hún viti hver hún sé. „Börnin
eiga mun auðveldara með sam-
skipti við foreldrana og stjúpforeld-
rana ef þau vita að foreldrar þeirra
óttast ekki samkeppnina enda er
sjaldnast ástæða til þess. Stjúpfor-
eldrarnir geta orðið ágæt viðbót við
líf barnsins en þú ert alltaf mikil-
vægasta manneskjan í lífi þess.“
Hægt er að lesa meira um félag-
ið á heimasíðunni stjuptengsl.is.
indiana@dv.is
Vertu betri pabbi
Vlrtu móður bama þlnna
Eitt af því besta sem faðir getur gert
börnum sínum er að virða móður
þeirra. Sama hvort þið eruð gift eða
ekki. Foreldrar sem koma fram við
hvort annað af virðingu veita börnum
sínum öruggt umhverfi.
Eyddu tíma með börnunum
Hvernig faðir eyðir tíma sínum sýnir
hvað honum þykir mikilvægt f lífinu.
Ef hann virðist alltaf upptekinn upp-
lifa börnin sig sem afskipt. Börnin
stækka svo hratt. Ekki missa af neinu.
Talaðu við börnln
Of margir feður ræða aðeins við börn
sfn þegar þau hafa gert eitthvað af
sér. Byrjaðu að ræða við börnin þegar
þau eru Iftil svo þú eigir auðveldara
með það þegar þau vaxa úr grasi.
Hlustaðu Ifka á það sem þau hafa að
segja.
Segðu nei
Öll börn þurfa á aga að halda. Ekki
nota refsingar en settu raunhæf mörk
á hegðun. Minntu börnin á afleiðinar
gjörða sinna og verðlaunaðu þau fyrir
góða hegðun. Feður sem geta agað
börnin sfn á yfirvegaðan hátt sýna
börnunum að þeir elska þau.
Vertu fyrlrmynd
Allir foreldrar eru fyrirmyndir barna
sinna. Stúlka sem elst upp hjá elsk-
andi föður veit að hún verðskuldar
góðan eiginmann sem kemur fram við
hana af virðingu. Alit Iffið er leiksvið.
Notaðu það vel.
Vertu kennari
Of margir feður halda að það sé á
ábyrgð annarra að fræða börnin þeirra.
En þeirfeður sem kenna börnunum sín-
um muninn á réttu og röngu og hvetja
þau til að gera sitt besta munu fá mikið
út úr lífinu. Taktu þátt f námi barnanna
og hjálpaðu þeim að læra á lífið sjálft.
Borðaðu með fjöUkytdunnl
Sameiginlegur kvöldverður getur verið
mikilvægur þáttur f Iffi heilbrigðrar fjöl-
skyldu. Fáðu bömin til að segja þér frá
deginum. Hlustaðu og gefðu ráð án þess
að dæma.
Lestu fyrir bömin
I heimi þar sem sjónvarpið stjórnar öllu
er mikilvægt fyrir alla foreldra að lesa
fyrir börnin. Byrjaðu að lesa fyrir börnin
ung. Með þvf hveturðu þau til að lesa
sjálf og eykur orðaforða þeirra.
Sýndu væntumþykju
Öll börn þarfnast öryggisins sem fæst
við vitneskjuna um að þau séu elskuð og
samþykkt af foreldrum sfnum. Foreldrar
og sér f lagi feður verða að geta faðmað
börn sfn auðveldlega. Sýndu þeim vænt-
umþykju á hverjum degi svo þau viti að
þér þyki vænt um þau.
Föðurhlutveridnu Ifkur aldrei
Þó börnin séu farin að heiman munu
þau leita til þfn eftir leiðsögn. Hlutverki
þfnu er hvergi lokið þvf þau munu koma
til þfn þegar þau standa á krossgötum f
IfTinu. Vertu til staðar.
Sölvi Blöndal, fyrrverandi meðlimur í
hljómsveitinni Quarashi, er 31 árs í dag.
„Nú er tími líkamlegr-
arog andlegrar
endurnýjunar
runninn upp. Það
er gott að fara yfir
langarnir þlnartil
að setja sér tak-
mörk fyrir nýja
árið," segir í
stjörnuspá
hans.
Sölvi Blöndal
Vatnsberinn 120.jan.~i8. febr.)
Það er fátt erfiðara en að fylgj-
ast með fólki taka rangar ákvarðanir án
þess að segja nokkuð. Þú veist samt að
ráðleggingar þínar gera viðkomandi að-
eins ákveðnari í að halda skoðun sinni til
streitu.
Fiskarnirfiy. febr.-20. mrs)
Þú verður stundum að sætta
þig við þá staðreynd að það getur ekki
öllum líkað vel við þig, sama hvað þú
leggur hart að þér. Haltu áfram að gleðja
aðra en ekki láta þarfir þeirra og kröfur
standa í vegi fyrir þinni eigin hamingju.
Hrúturinn (21. mars-19. apnl)
Hlutirnir fara loksins að ganga
eftir þínu höfði. Allar hindrnir virðast úr
vegi í augnablikinu. Þú skalt samt gæta
þín á því að vera ekki með of mörg jám í
eldinum. Fáðu aðra til að leggja þér lið,
það leiðir þig að frekari tækifærum.
NaUtÍð (20. apríl-20. mal)
Fjölmargt sem hefur verið í
föstum skorðum í kringum þig breytist á
næstunni. Breytingarnar geta tekið á en
ekki æsa þig um of vegna þessa. Líttu
fremur á þetta sem tækifæri og reyndu
að taka því sem fyrirber opnum örmum.
Tvíburarnirp;. maí-21.júnt)
Þú stendur frammi fýrir erfiðum
ákvörðunum sem varðar fjölskyldulíf þitt
og eða vinnu þína. Fyrr eða síðar verður
þú að taka ákvörðun. Þú verður samt að
muna að hana verður þú að gera að yfir-
vegun og ábyrgð það þýðir ekki alltaf að
láta stundarfýrirbrigði stjórna lífi þínu.
Krabbinngzjiin/-?2.jiif)j_______
Þú hefur í mörgu að snúast
þessa dagana og oft virðast
málin yfirþyrmandi. Þú þarft að koma
þínum málum á hreint. (næsta fulla
tungli skýrast hlutirnir. Þanngað til skaltu
styrkja þinn innri mann svo þú verðir bet-
ur í stakk búin til að fást við breytingarn-
ar.
LjÓnÍð/23 .júli-22. ágúst)
Eins og flest Ijón eru þá ertu
gjafmildur að eðlisfari. Þú nýtur þess að
gera eitthvað sérstakt fyrir ástvini þína.
Auðvitað kemur það stundum fyrir að
þér finnst þú ekki fá gjafir þínar eða ást
endurgoldnar eins og þú kysir. Það getur
stafað að því að þér finnst einfaldlega
betra að gefa enn að þyggja. Það virðist
stundum vera þannig að þérfinnst ekk-
ert sérlega gott að fá greiða þlna til baka.
Meyjan /?j. ágúst-22. sept.)
(nokkum tíma hafa ástarmál
þín verið þér ofarlega í huga. Farðu eftir
því sem hjarta þitt segir þér en mundu
samt að fara vel í gegnum tilfinningar
þlnar áður en þú tekur endanlega
ákvörðun. Reynslan á eftir að reynast þér
hjálpleg og færa þig nær málefnunum.
Vogin (23. sept.-23. okt.)
Þú átt erfitt með að hafa stjórn
á skapi þfnu þessa dagana enda eru
kraftarVenusarsterkir þessa stundin.
Vegna þessara atburða í himinhvolfun-
um finnst þér eins og það sem er að ger-
ast í kringum þig sé í afturför.
Sporðdrekinn (24.oh.-2uM
Þú færð fleiri möguleika á að
nálgast erfitt málefni. Þú hefur alltaf farið
gætilega með þær upplýsingar sem þér
eru látnar f té og gætt vel að þlnu einka-
llfi. Þetta er góð regla svo langt sem hún
nær.
Bogmaðurinn 122.n0v.-21.desj
Þú hefur lengi kvartað yfir of
mörgum verkefnum og of fáum stundum
í sólarhringnum. Þetta er aðallega skipu-
lagsleysi þínu að kenna og þú gætir þurft
að taka afleiðingum mistaka úr fortíð
þinni vegna þessa. Ekki gera of mikið mál
úr þessu heldur skaltu ráða bót á upp-
runa vandans sem fyrst.
Steingeitin (22.des.-19.jan.)
Þú ert leiður yfir því aö finnast
þú ekki hafa áorkað nógu á árinu sem
var að líða. Ekki láta vonleysið taka yfir-
höndina heldur skaltu strax byrja að gera
áætlanir fýrir næsta ár. Nýtt upphaf er
komið í dagsins Ijós og þú skalt nýta þér
öll þau tækifæri sem þér bjóast.