Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2006, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2006, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006 Fréttir DV Fjöldi álfta á Barðaströnd Náttúruunnandinn Tómas Sigurgeirsson á Reykhólum segir óvenju- mikið af álftum miðað við árstíma á hans heimaslóð- um. Að því er segir á reyk- holar.is taldi Tómas álftir á Berufirði og á Langavatni í gær og fékk út að þar væru samtals 97 álftir. Segist hann ekki muna eftir öðr- um eins álftafjölda á þess- um árstíma. Tómas taldi líka endur á Langavatni og reyndust þær vera um 500, mest stokkendur, að því er reykholar.is greina frá. Fá greitt í næstu viku Starfsmenn vamarliðs- ins, sem eiga inni rútugjald og ferðatíma frá því í sept- ember 2004, munu fá það greitt í næstu viku. Þetta hefur DV eftir áreiðanleg- um heimildum. Friðþór Ey- dal, upplýsingafulltrúi varnarliðsins, sagði í sam- tali við DV að greitt yrði á næstunni en lögfræðingur- inn Lára V. Júlíusdóttir, sem fer með mál nokkurra starfsmanna, sagði að þetta væri búið að dragast úr hófl fram þar sem dómur hefði fallið í lok október. Vilja Eyþór í framboð í dag birtist í Sunn- lenska fréttablaðinu áskor- un á annað hundrað íbúa j' Árborg til Eyþórs Amalds um að leiða að leiða lista Sjálfstæðisflokks í bæjar- stjórnarkosningunum í vor. í samtali við Sunnlenska í gær sagði Eyþór að hann hefði ekki afráðið neitt um framboð en lofar ákvörðun fyrr en síðar. Eyþór flutti í sveitarfélagið fýrir skemmstu og hefur verið sterklega orðaður við leið- togaframboð á Suðurlandi síðan. Katrín Aðalsteinsdóttir var rekin frá Dominos í Keflavík en henni hafði verið lofað aðstoðarverslunarstjórastöðu mánuði fyrr vegna góðrar frammistöðu. Henni var sagt upp eftir að hún fékk stálplötu í höfuðið í vinnunni. Katrin telur að Dominos vilji frekar láglaunastefnu en fólk með reynslu. Baldur Baldursson, framkvæmda- stjóri Dominos, segir það ekki rétt að þeir séu með láglaunastefnu. var reKin Katrín Aðalsteinsdóttir var rekin frá Dominos-pítsustaðnum í Keflavík eftir rúmt ár í starfi rétt fyrir áramót vegna þess að yfir- menn hennar töldu hana ekki sýna nógu mikinn áhuga að hennar sögn. Þegar hún innti eftir frekari skýringum á hvað það þýddi vildi starfsmannastjóri ekki útskýra það frekar. Katrín hafði nokkru fyrir jól lent í vinnuslysi en níðþung málmplata datt á höfuð hennar með þeim afleiðingum að hún fékk heila- hristing og tognaði í baki. Katrín Aðalsteinsdóttir Ekkisátt við uppsögn hjá Dominos. I— „Þau trúðu því ekki að ég hefði slasast svona mikið," segir Katrín sem mætti samt í vinnu daginn eftir þvert á læknisráð en hann hafði ráð- lagt henni að halda sig heima næstu daga. Hún segir að eftir það hafi hún tekið sér tveggja daga fri vegna kvala sem fylgdu í baki og svo var hún aftur mætt á Þorláksmessu til vinnu. Einu sinni sein „Þeir lofuðu mér aðstoðarversl- unarstjórastöðu mánuði áður en svo ráku þeir mig,“ segir Katrin undr- andi á viðbrögðum Dominos en hún segir að hún hafi alltaf mætt vel og verið með hugann við vinnuna, þar að auki hafi hún ávallt verið reiðu- búin til þess að taka aukavaktir ef einhvern vantaði. „Ég hef einu sirmi verið of sein í vinnuna og það var kortér," segir Katrín sár en henni finnst eins og hún hafi verið svikin illilega. Láglaunastefna á Dominos? Katrín segir að hún hafi aldrei „Ég hefeinu sinni verið ofsein í vinnuna og það var korter." fengið neinar áminningar í starfi sínu og að reynsla hennar ætti að vera ómetanleg en greinilega finnist Dominos það ekki. Hún segir að henni þyki þessi ákvörðun gríðar- lega ósanngjörn og bætir við að hún telji að Dominos vilji frekar halda í ungt fólk sem hægt er að borga lág laun en fólk sem hefur öðlast reynslu. „Við virðumst bara vera peð í þessu spili," segir Katrín vonsvikin. Uppsögn ekki ástæðulaus „Ég get ekki tjáð mig um mál ein- staklinga hjá Dominos," segir Bald- ur Baldursson, framkvæmdastjóri Dominos, en áréttar að engar ákvarðanir séu teknar af geðþótta hjá þeim, allar ákvarðanir eru teknar að vel íhuguðu máli og enginn sé rekinn að ástæðulausu. „Það er bara ekki rétt," segir Baldur spurður um ásakanir Katrín- ar um láglaunastefnu Dominos og bendir á að það vinni 350 manns hjá fyrirtækinu og það sé Dominos í hag að hafa starfsmenn sína ánægða, það sé engin glóra í því að reka lág- launastefnu í fyrirtækinu. valur&dv.is Reynlð nú að sýna dálítinn skilninq Það er ekki tekið út með sældinni að vera íslenskur ráðherra. Þetta skilur Garðar Kjaran betur en aðrir menn og hefur því af þrautseigju hækkað launin hjá þessum vesaling- um svo um munar. Reyndar upp úr öllu valdi segja sumir við Svarthöfða en það er bara píp. Forsætistáðherrann okkar hefur bara milljón í laun. Og fær ekki út- borgað nema einu sinni í mánuði. I Noregi er líka forsætisráðherra. Fær sá góði maður rúman 800 þús- und kall fyrir sitt framlag. Það segir sig kannski sjálft að það er ekki erfitt að stýra ríki þar sem olían streymir V-1 Svarthöföi ___________ stanslaust upp úr sjónum og annar hver maður er ólympíumeistari í fjórum sinnum tíu kílómetra skíða- göngu. Slíku fólki þarf ekki að stýra. Það þarf bara einhvern góðan mann sem passar upp á að ekki flæði upp úr ríkiskassanum svo að vandræði hljótist af. Og í Svíþjóð er líka forsætisráð- herra sem venjulegast er svona ein- hver gúddí Sjövahl og Wahlöö-týpa með magasár og vonlausan vina- kreðs. Viðkomandi fær að vísu næst- um jafnmikið í laun og íslenski starfsbróðurirm en má þakka fýrir að vera ekki skotinn eða stunginn tii bana í kaupbæti á leiðinni á hand- boltaæfingu. Hér á Islandi stríðir forsætisráð- herrann við mörg flókin vandamál sem bæði þarf að skoða og endur- skoða áður en botn fæst. Til dæmis þarf að ákveða hvort það eigi að stífla eða ekki stífla. Hvort að eigi að bora göt í gegn um fjöll eða ekki bora göt í gegn um fjöll. Þá þarf að flytja ávarp til þjóðarinnar á gamlárskvöld og sautjánda júní og velja í þau skikkanleg kvæði eftir viðurkennda höfunda sem heita Hafstein og svoleiðis. Þetta er ekki létt. Það er því ekki að ófyrirsynju að forsætisráðherrann okkar er hæst launaði ráðherra í Norður-Atlants- hafi. Hann er kletturinn sem allt steytir á. Stöndum vörð um forystu þjóðarinnar á alþjóðavettvangi íslandi allt! Svarthöfði Hvernig hefur þú það? „Nú er ég að undirbúa tónleika lífsins sem verða haldnir í Laugardalshöll á laugar- daginn,"segir Margrét Vilhjálmsdóttir leikona.„Tónleikunum erætlað að stöðva virkjanaframkvæmdir stjórnvalda á miðhálendinu. Þarna koma fram helstu stjór- stjörnur íslenskrar dægurtónlistar eins og Björk, Sigur Rós og múm auk fjölda ann- arra listamanna sem allir gefa vinnu sína íþágu málstaðarins."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.