Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2006, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2006, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006 Fréttir DV Níels A. Ársælsson, skipstjóri á Tálknafirði, fagnar aðgerðum Einars K. Guðfinns- sonar gegn veiðþjófum á Reykjanesskaga en telur ræningjana að stofni til íslenska. Sjávarútvegsráðherra vísar þessu á bug. Sjóræningja- skip Togarar stela físki á Reykjaneshrygg i íslenskri lögsögu. Bíræfnir innbrotsþjófar Eldur í Sorpu Eldur kviknaði í eiming- arvél íyrir leiserefni í efna- móttöku Sorpu í Gufunesi í gærmorgun. Tilkynnt var um hann um muleytið í gær. Mikill viðbúnaður var vegna eldsins og vom fjórir bílar frá Slökkviliði höfuðborgar- svæðisins sendir á staðinn. f ljós kom að eldurinn var minni en á horfðist og var staðbundinn. Vel tókst að slökkva liann. Ekki var mikil hætta á ferðum að sögn stöðvarstjóra slökkviliðs. Kviknaði í tveimurbflum Um klukkan hálfsex í gærmorgun var tilkynnt um að eldur væri laus í bíl við Jafnasel í Breið- holti. Að sögn stöðvarstjóra slökkviliðs komst hann í nærliggjandi bíl og skemmdust þeir báðir mik- ið. Ekki liggur ljóst fyrir hvort kveikt hafi verið í bflnum en talið er að fyrst hafi kviknað í farang- ursgeymslu hans. Brutust inn í kirkju og stálu söfnunarbauk „Við lentum í innbrotabylgunni sögðu þeir," segir séra Vigfús Þór Árnason, prestur í Grafar- vogsprestakalli og átti við bylgju innbrota sem reið yflr í fyrrinótt. Brotist var inn í kirkjuna um þijúleytið og gerðust þjófamir ansi bíræfnir þegar þeir stálu söfiiunar- bauk kirkjunnar. Brotin var rúða í kirkjunni og komust þjófarnir þannig inn. öryggiskerfi fór í gang og sýndu þjófarnir snör handtök þegar þeir hlupu inn og stálu söfn- unarbauknum, en engu öðm. „Þegar eiturlyf em til staðar er enginn staður helgur," segir séra Vigfús og bendir á að brotist hafi verið inn í tugi kirkna á undanförn- um ámm. Hann segir að ekki hafi verið miklir peningar í bauknum en segir að söfnuðurinn safni bauksins. „Það væri gaman ef þessir menn myndu láta baukinn nálgast okkur einhvern veginn," segir presturinn. Baukurinn er forláta trébaukur sem gefinn var af góðum manni til safnaðarins að sögn séra Vigfúsar. „Þeir mega eiga þennan pening þeir em illa staddir. Þeir hefðu bara frekar átt að koma til okkar og biðja um styrk. Þeir hefðu fengið miklu meira út úr því,“ segir hann. „Við biðjum fyrir þessum mönnum.' Málið er í rannsókn lögreglu. gud- mund- ur@dv.is Séra Vigfús Vill fá söfnunarbauk Grafarvogskirkju en þarf ekki peninginn. Útsaían er hafin 30% afsCáttur af öCCum vörum ( Serica Opið frá 11-18 virka daga, 11-15 laugardaga. Hlfðarsmára 11, Kópavogi s: 565 1504 „Þarna er um að ræða löngu tímabærar aðgerðir gegn sjóræn- ingjum á Reykjaneshrygg þótt sú staðreynd hafi löngum legið fyrir að sennilega er sjóræningjaflotinn að langstærstum hluta í eigu íslendinga sjálfra," segir Níels A. Ársælsson, skipstjóri á Tálknafirði, í samtali við DV. Níels fagnar íyrirhuguðum aðgerð- um sem Einar K. Guðfinnsson sjávar- útvegsráðherra hefur kynnt gegn ráns- skap útlenskra veiðiþjófa á Reykjanes- hrygg en hefur sínar efasemdir. Og hann velkist ekki í vafa um að veiði- þjófamir séu að stofhi til íslenskir. „Nú skal tekið hressilega á þeim ribböldum sem kokkað hafa með sölumál afurðanna frá sjóræningjun- um þótt sú staðreynd hafi löngum legið fyrir að þau fyrirtæki sem kaupa ránsfenginn eru að langstærstum hluta í eigu íslendinga í Eystrasalts- löndunum. En hvað með það? Sjó- ræningjar engu að síður," segir Níels sem áður hefur gagnrýnt Einar og stefnu hans harðlega. Gegn sjóræningjaveiðum - punktur Sjávarútvegsráðherra vísar þessum staðhæfingum Níelsar út í hafsauga ef svo má að orði komast. „Neinei. Þetta er ekki rétt. Ég er ekki með nákvæmar upplýsingar um eignarhald á hverju einasta skipi. En ég veit hins vegar að þessi fuliyrðing hans er röng," segir Einar K. ákveðinn. „Mörg þessara skipa eru gerð út af þýsku fyrirtæki, Piro, og þau hafa legið í höfn í Rostock í Þýska- landi milli vertíða." Og hann leggur ffam lista yfir þau skip sem kærð hafa verið til Norð- austur-Atlantshafsfiskveiðiráðsins máli sínu til stuðnings. Einar segir það hins vegar vera svo að ekki muni verða farið í mann- greinarálit. „Við emm einfaldlega að fara gegn sjóræningjaveiðunum. Punktur." Einar segir aðalatriði máisins að ekki sé spurt um það hvaðan menn- irnir komi sem eiga þessi skip heldur sé fyrst og fremst verið að koma í veg fyrir að þeir geti gert hér út. Ofbeldisfullar veiðar Níels sparar sig hvergi í gagnrýni á ráðherra og segir sjóræningja undir íslenskum fána aðhafast óáreittir innan íslensku fiskveiðilögsögunnar í „Löngum legið fyrir að þau fyrirtæki sem kaupa ránsfenginn eru að langstærstum hluta í eigu fslendinga í Eystrasaltslöndunum. skjóli sjávarútvegsráðuneytisins og Fiskistofu. En er þar reyndar að tala um fiskveiðistefnu Einars sem hann telur glórulausa: „Þessar tvær rflds- stofnanir, sem heyra undir ráðherra sjávarútvegsmála, láta sem ekkert sé og heimila stórfelldar og ofbeldisfull- ar veiðar með flottrolli á loðnu, sfld og kolmunna í slíkum mæli að stappar við geðveiki." A sama tíma em skósveinar Fiski- stofu, eins og Níels orðar það, á hött- unum um allt land og miðin á eftir sárasaklausum fiskimönnum sem neyð sinni reyna að bjarga sér með því að sleppa verðlausum smá- tittum í hafið vegna fáránleika þeirra laga sem Alþingi fs- lendinga hefur sett þeim. jakob@dv.is . vír;.* : r.^ IIR \ R í ÍTi fíítiE!! PBPt'l m Sklp IRCS Fáni Athugasemd FONTENOVA H02933 Panama IANNIS Panama LANNIS1 Panama LISA J7AG4 Ex-RUS, Ex-BLZ, Ex-DMA KERGUELEN Togo OKHOTINO J7AC2 Ex-RUS, Ex-BLZ, Ex-DMA OLCHAN J7AC7 Ex-RUS, Ex-BLZ, Ex-DMA OSTROE J7AC5 Ex-RUS, Ex-BLZ,Ex-DMA OSTROVETS J7AC3 Ex-RUS, Ex-BLZ, Ex-DMA OYRA J7AC4 Ex-RUS, Ex-BLZ, Ex-DMA OZHERELYE J7AI3 Ex-RUS, Ex-BLZ, Ex-DMA SUNNYJ ANE V3KG2 Belís PAVLOVSK J7AJ1 Ex-RUS, Ex-BLZ, Ex-DMA DOLPHIN 4LEQ Georgía ICE BAY XUW9 Kambódía TURICIA HP8520 Panama GRAND SOL H03738 Panama MURTOSA ZBLBl Tógó n 1» * i i' | . Einar K. Guðfinnsson Visar fullyrömgum skipstjórans á bug þó að aðalatriðið i hans huga sé að fara gegn sjóræningjaveiðum. Niels A. Ársælsson Dregur h vergi afsér I gagnrýni sinni en hann telur sjóræningjana að stofni tilíslenska. Landsíminn „i-ier ryrir austan er vooaiega þægilegt veöur. Það liggur við að maðursé að vinna vorverk- in,“ segir Hákon Aðalsteins- son, skógarbóndi á Austur- landi og hagyrðingur með meiru. „Það er ekkert skytterí á okkurnúna, maður drepur ekkert á þessum tíma. Það er góð stemning i bæjar- féiaginu. Allir helvíti hressir. Þaö sem fólk talar helst um hér eru þessir starfslokasamn- ingar. Fólk hefur ekkert við alla þessa peninga að gera og það er ekki þægilegt hlutskipti f llfinu að vera svona ríkur segir skógarbóndinn. Skipstjóri og ráfiherra deila um hjofiernl sjóræoinajo

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.