Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2006, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2006, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006 Sport DV Bumban með erlendan leikmann Bumban, eða B- lið KR, mun tefla fram erlendum leik- manni gegn Grindavík í 16 liða úrslitum bikarkeppni KKÍ og Lýsingar en þetta kemur fram á heimasíðu KR. Leikmaður- inn heitir Melvin Scott og varð háskólameistari með North Carolina síðastliðið vor. Leikurinn fer fram klukkanl6 í DHL-höllinni á laugardaginn. Melvin Scott er bakvörður frá Baltímore og lék með North Carolina síðustu þrjú tímabil og varð háskólameistari með liðinu síðastliðið vor. f vetur hefur hann leikið með Arissa í Grikklandi og í þýsku úrvals- deildinni en er nú með laus- an samning. Bekkurinn svignaraf reynslu Þá er einnig komið í ljós hvemig þjálf- arateymið verður skipað hjá Bumbunni og er óhætt að segja að þar sé val- inn maður í hveiju rúmi. Að- alþjálfari er sem fyrr Hörður Gauti Gunnarsson en hon- um til aðstoðar verða þrír fýrrverandi þjálfarar KR sem eiga það allir sameiginlegt að hafa unnið íslandsmeist- aratítil með félaginu, þeir Einar Bollason, Ingi Þór Steinþórsson og dr. Lazlo Nemeth. Spuming hvort að bekkurinn svigni ekki undan þessari gríðarlegu reynslu en KR-liðið sló einmitt 1. deild- arlið Stjömunnar út úr 32 liða úrslitunum. Búinn að hitta 47 sinnum Frank Lampard hefur skorað 20 mörk fyrir Chelsea á tímabilinu þrátt fyrir að leika á miðjunni. Það er kannski ekki að ástæðulausu að kappinn er búinn að skora svona mörg mörk því hann hefur náð 47 skotum á markið í leikjum Chelsea en allt liðið til samans hefur náð 173 skotum á markið. Joe Cole, Heman Crespo og Didier Drogba koma næstír með 19 skot á mark en okkar maður Eiður Smári Guðjohnsen hefur 9 sinnum hitt markið og einu sinni hefur boltinn farið alla leið. iason Pryor kominn í Hauka Haukar hafa ráðið til sín bandaríska bak- vörðinn Jason Pryor í Iceland Express deild karla en liðið er í botnsætí deildarinnar með aðeins 1 sigur í 11 leikjum. Pryor hef- ur tvisvar áður komið til landsins, skoraði 32,8 stíg og setti niður 34 þrista í 11 leikj- um með Val í úrvalsdeild eft- ir áramót 2002-2003 og þá var hann með 35,1 stíg, 8,9 fráköst og 4,6 stoðsendingar með Valsmönnum í 1. deild- inni í fyrravetur. Ágúst Björg- vinsson, nýráðinn þjálfari Haukaliðsins, var þjálfari Pryors hjá Val þegar hann kom í fyíra skiptíð. Enn plaga veikindi og meiðsli vinstri vængmenn íslenska landsliðsins í handbolta en í gær bárust þær fregnir að Baldvin Þorsteinsson Valsmaður gæti ekki farið með til Sviss vegna veikinda. Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari tók þann kostinn að velja fyrrverandi félaga Baldvins hjá Val og KA, Heimi Örn Árnason, í hans stað. Fyrrverandi félagar Þeir Heimir Orn Arnason og Bald■ vin Þorsteinsson spiluðu sam an i Valsliðinu i fyrravetur. 'íiýfev ■ I .■'4 ■ : Heimir örn Árnason var í gær valinn í íslenska landsliðið sem tekur þátt í Evrópumeistaramótinu í Sviss sem hefst í mánuðin- um. Hann var valinn í stað Baldvins Þorsteinssonar sem þurfti að draga sig úr landsliðinu vegna veikinda. Baldvin er með einkirningssótt, svokallaða kyssuveiki, og fékk að vita í gær að hann megi ekki reyna á sig á næsturini. „Þetta kom bara f ljós í dag (gær),“ sagði Baldvin í samtali við DV Sport. „Ég er búinn að vera veikur allan desember og fannst undarlegt að ég náði aldrei að jafna mig á veikindunum. En ég var í prófum og hafði ekki mikinn tíma til að spá í slíkum hlutum. Ég spilaði meira að segja tvo leiki með Val og var í raun veikur í þeim. Þegar þetta lagaðist ekki grunaði mig að ég væri kominn með hettu- sótt og fór í blóðprufú. Ekkert kom út úr því og það var ekki fyrr en eftir aðra blóðprufu að það kom í Ijós að ég væri með einkirningssótt. Lækn- irinn hélt samt að hún væri á niður- leið en mér svo sló niður strax aft- ur." f gær fékk hann svo að vita frá lækni sínum að hann verði að taka þvf rólega næstu vikurnar. „Þetta ergríðarlega mikið áfaUfyrir mig sem handboltamann." Gríðarlegt áfall „Mér líður þokkalega en um leið og maður tekur eitthvað á því er greinilegt að maður er algerlega kraftlaus og endist stutt. Og það versta við þetta er að það er ómögu- legt að spá fyrir um hversu lengi maður þarf að hvfla sig - einn mán- uð, þijá eða jafnvel lengur. Þetta er mjög pirrandi ástand." Vonbrigðin leyndu sér ekki í máli Baldvins enda búinn að vinna lengi að því takmarki að komast í íslenska landsliðið. „Þetta er gríðarlega mikið áfall fyrir mig sem handboltamann. Þetta var það sem ég lagði upp með fyrir tímabilið - að vinna mér inn landsliðssæti. En það þýðir ekkert að gefast upp og maður verður að nýta þennan tíma til annarra hluta. Ég sé til dæmis fyrir mér að ég getí teygt mikið og tekið öxlina almennilega í gegn. Það mun svo taka tíma að koma mér aftur í gott stand. Og eins og ég sagði er það versta við þetta að ég veit ekki hvenær ég fæ tækifæri til þess." Baldvin sagði að Viggó hefði tekið tíðindunum með ró og spekt og sýndi hann honum samúð vegna þessa. „Hann vonaðist til að ég yrði orðinn klár fyrir næsta verkefrtí og ég ætla mér að komast aftur í landsliðið." Heimir Örn ánægður Heimir örn Árnason sagðist í samtali við DV Sport vera ánægður með landsliðssætið sitt en tók fram að vitanlega væru forsendumar fyrir því leiðinlegar. Hann og Baldvin vom samheijar bæði hjá KA og Val og þekkjast því vel. Heimir öm gekk til liðs við Fylki fyrir tímabilið en lið- ið hefur staðið sig framar björtustu vonum með Heimi sem besta mann. „Þetta er punkturinn yfir i-ið eftir gott gengi hjá Fylki í deild og bikar." Heimir Örn á að baki átta lands- leiki og skoraði hann í þeim fjögur mörk. Hann var í liðinu sem mættí Noregi hér á landi í nóvember síð- astliðnum en hans fyrsti leikur var gegn Túnis á æfingamóti í Belgíu. Þá var Viggó orðinn þjálfari landsliðs- Mikil vonbrigði Baldvin Þorsteinsson hefur spilaö vel meö Valsmönnum I DHL-deildinni I vetur og hefur skoraö 95 mörk 114 leikjum eöa 6,8 aö meöaltali I leik. Fyrsti Fylkismaðurinn Heimir örn Árna- son er fyrsti Fylkismaöurinn sem kemst með Islenska landsliöinu á stórmót I handbolta. ins. Hann hins vegar neitaði að tjá sig við DV Sport í gær. eirikurst@dv.is Einstök kosning Eiðs Smára Guðjohnsen sem íþróttamanns ársins 2005 Allir íþróttafráttamennirnir 23 settu Eið Smára í fyrsta sætið Eiður Smári Guðjohnsen fékk sögulega kosningu í fyn-akvöld þegar hann var valinn íþróttamaður ársins með fullu húsi stiga. Eiður Smári var bæði fyrsti knattspyrnumaðurinn í sögunni til þess að verða íþrótta- maður ársins tvö ár í röð og enginn annar íþróttamaður hefur fengið fullt hús í kjörinu síðan hver og einn meðlimur Samtaka íþróttafrétta- manna fór að skila sínu eigin at- kvæði. Þegar Amór Guðjohnsen, faðir Eiðs Smára, var kosinn fyrir 18 árum voru stig íþróttamanna ekki gefin upp, í fyrsta og eina skiptið, og því mun það aldrei koma í ljós hvort Amór hafi einnig fengið fullt hús í þeirri kosningu. Fyrstu þrjá áratugina í kjöri samtakanna skilaði hver og einn fjöl- miðill inn einum atkvæðaseðli og þá náðu átta íþróttamenn að hljóta fullt hús. Feðgamir Vilhjálmur Einarsson og Einar Vilhjálmsson hafa báðir tvisvar sinnum verið kosnir íþrótta- menn ársins með fullu húsi stiga en handboltakonan Sigríður Sigurðar- dóttir var fyrir kosningu Eiðs eini hópíþróttamaðurinn sem hafði unn- ið styttuna með fullu húsi stíga. Það er gaman að skoða það að Eiður Smári hefur hækkað sig bæði stigalega og sætalega í kjörinu und- anfarin sex ár en hann komst fyrst á lista yfir tíu efstu fyrir árið 2000. Eið- ur Smári fékk þá 71 stíg í 6. sæti, árið eftir komst hann á topp fimm og síð- ustu þrjú árin hefur hann verið með- al þriggja efstu í kjörinu. Eiður Smári í kjöri íþróttamanns ársins: 1999 10 stig 20. sæti 2000 71 stíg 6. sætí 2001 113 stig 5. sæti 2002 151 stíg 4. sætí 2003 274 stíg 2. sætí 2004 329 stíg 1. sæti 2005 460 stíg 1. sætí Fullt hús í kjöri á íþróttamanni ársins: # 1956 Vilhjálmur Einarsson, frjáls- ar, 110 af 110 mögulegum # 1960 Vilhjálmur Einarsson, frjáls- ar, 88 af 88 mögulegum # 1964 Sigríður Sigurðardóttir, handbolti, 66 af 66 mögulegum 0 1967 Guðmundur Hermannsson, frjálsar, 77 af 77 mögulegum # 1970 Erlendur Valdimarsson, frjálsar, 77 af 77 mögulegum # 1978 Hreinn Halldórsson, frjáls- ar, 70 af 70 mögulegum 0 1983 EinarVilhjálmsson, frjálsar, 60 af 60 mögulegum # 1985 EinarVilhjálmsson, frjálsar, 70 af 70 mögulegum # 2005 Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrna, 460 af 460 mögulegum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.