Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2006, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2006, Blaðsíða 24
Neytendur DV 24 FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006 Neytendur Tími mikilla loforða er liðinn; nú er komið að efnd þeirra. Likaminn skal tekinn föstum tökum og fitan fær að fjúka. Heilsulindir, heilsukostur og heilsuhreysti eru orðin sem falla af munni margra þessa dagana enda ólifnaður hátiðanna almenni- legt spark i rassinn. Árskort með sundl kostar 52.500 Inga Reynisdóttir hjá Hreyfingu Segir suma missa dampinn eftir fyrstu vikurnar. 1.990 Hress likamsrækt 950 8.000 17.990 25590 42.900 Bjarg. Akureyrii', S50 Nordica 5pa 3.5C0 6.90C 69.000 123.000 178.800 500 33.900 9 mánaða skóiakort fæst á 25.900 Pumpinq iron750 6.500 12.900 SlÐUR SEM VERT ER AÐ SKOÐA www.technosport.is • www.hreyfing.is • worldclass.is • gym80.is • nautilus.is ® hreyfing.is isf.is • nordicaspa.is • orkuverid.is • pumpingiron.is veggsport.is World Ciass STAKUR TÍ.Mi 1 MAN 3MÁN 6 MÁN ÁRSKORT ATHUGASEMDiR ekkitil 4.900 9.900 16.900 29.900 Konur borga 50% af þessum verðum 5.900 12.900 19.700 33.900 Gym 80' Vaxtarræktin, Ak. 700 Við ætlum að meika það! Kílóin fá að fjúka út í veður og vind og smjörinu staflað í hrönnum til að lýsa hversu mikil fita hefur af okkur runnið. En þetta gerist síðar á ár- inu... nú er það málið að leggjast á bekkinn og pumpa. Blóðpumpan verður sterkari fyrir vikið og vöðvamir stækka. Bumban minnkar og kynorkan vex. Komdu þér af rass- gatinu og í ræktina því eins og hið fomkveðna segir: ef þú hefur ekki tíma fyrir heilsuna í dag muntu ekki hafa heilsu fyrir tímann á morgun. Við fómm á stjá og athuguðum fjölbreytt verð á ífkamsræktarkort- um bæði í Reykjavík og á Akureyri. Sprenging í byrjun árs „Við sjáum alltaf spreng- ingu í korta- sölu í byrjun árs,“ segir Bjöm Leifs- son, eigandi World Class- líkamsræktar- stöðvanna, en telur að fólk haldi dampin- um nokkuð vel út árið. Hann segir líkamsrækt hafa orðið svo fast- ur lífsstfll hjá mörgum að stöðvarnar eru orðnar að háifgerðum félags- miðstöðvum þar sem öll fjölskyldan getur notið sín. „Það munar gríðarlega að hafa sem fjölbreyttasta þjónustu. Teng- ing okkar við sundlaugarnar hefur þannig tvímælalaust skilað árangri." Bjöm segir að um 1600 manns mæti á hverjum degi í stöðvarnar en merkir eilitla minnkun í mætingu síðustu vikuna fyrir jól. Björn I World Class Segir sprengingu veröa I sölu korta upp úr ára- mótum. Það eru margir sem kaupa árskort í byrjun árs - mæta vel til að byrja með og síðan er eina hreyfíngin sem árskortið veldur sjá- anleg á vísareikningnum. Já, því miður gefast margir upp, enda á þolgæði margt skylt við þolfimi. ekkitil 6.900 16.800 26.900 39.800 ekki tll 3.790 20.360 35.940 47.880 Sérverð fyrir skólafólk Afslættir I gangi tak, Akureyri Hreyfing Félagsskapurinn stór þáttur Inga Reynisdóttir, deildarstjóri hjá Hreyfingu, segist einnig sjá stóraukn- ‘ ingu í byrjun árs C kortasölu. „Það eru margir að efna ára- Á mótaheitið um. að koma sér lceland Spa and Fitness 1.050 lNautííus,lSipavogr^^^ekidtil Orkuverið Egilshöll TedhrrosporT^' Veggsport 8.500 17.900 ekkitll 35580 223^2S3BEBE23BE2S«2S ekkltil ekkitil 20.000 25.990 raraBB 4.900 14.900 24,900 29,900 8.200 17.900 29.900 43.900 7.900 16.900 26.900 41.900 Morgunkort eru seld með 10% afslætti Tilboðsverð með sundkorti Afslættir eru fyrir hjón og skólafólk í form, en það er líka gott fyrir fólk að æfa sig á þessum dimmu mán- uðum. Það léttir lundina og þolið verulega," segir Inga og bætir við að margir nýti sér átaksnámskeið og einkaþjálfun til að koma sér af stað. Hún segir einnig að félagsskap- urinn sé grundvallaratriði. „Fólk kemur hingað, spjallar saman og leitar mikið í félagsskapinn." Það er þó alltaf einhver hópur sem kaupir sér kort, tekur fyrstu vikurnar með trompi og lætur síðan ekki sjá sig. „Þá látum við vita af okkur og minnum fólk á, bæði með því að senda bréf og jafnvel hringja ef því er að skipta til að hvetja fólk til að koma." Margvísleg tilboð Þrátt fyrir að verðkönnun okkar gefi glögga mynd af markaðnum, er réttast að fólíc kanni hvaða afslátt- ar- og tilboðskjör eru í gangi hverju sinni hjá líkamsræktarstöðvunum. Einnig er mikilvægt að hafa í huga að sumar stöðvar bjóða upp á að- gengi að sundlaug með kortum sín- um. Þá er líka mikilvægt að gera sér grein fyrir hverju maður gengur að á hverri stöð, því smekkur manna er misjafn. Barnagæsla er einnig mikilvægur hluti af vali margra for- eldra. Því er vert að gefa því gaum hvernig aðstöðu er boðið upp á á staðnum. Ódýrt og langdýrast Þeir sem selja sín árskort ódýrast er Nautilus sem rekur stöðvar í Kópavogi og Hafnarfirði. Þar er að- gengi að sundlaugum innifalið í verði kortsins sem þeir selja nú á aðeins 25.990 krónur. Enn ódýrara er kortið hjá þeim sem gildir í Suð- urbæjarlaug í Hafnarfirði - 23.990 krónur. Það vekur óneitanlega athygli að Nordica Spa er langdýrasta heilsu- ræktin á landinu og þótt víðar væri leitað. Þeir bjóða meðal annars upp á herðanudd í heitu pottunum auk handklæðis og einkaþjálfun í hvert skipti sem komið er. haraldur@dv.is Timi þinn er kominn! Komið er að efndum ára mótaheitanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.