Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2006, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2006, Blaðsíða 40
V* / í t Cl^Jj C 0 £ Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar |jriafnleyndar er gætt. JjSj 0 ZJ [J (J SKAFTAHLÍÐ 24,10S REYKJAVlK [ STOFNAÐ 1910] SÍMISSO 5000 5 690710 l"1T1T7 Eiöur fagnar Ragga tók lagiö Eiður Smári var heldur betur flottur á því þegar hann fagnaði öðru sinni kjöri sínu sem íþrótta- maður ársins. Var þetta í 50. skipti sem kjörið fór fram og er hans nafn það síðasta sem letrað verður á glæsilegan verðlaunagripinn sem að ári verður geymdur á Þjóðminja- sahiinu. Víst er að íþróttafréttamenn hafa ekki séð eftir því að hafa kosið þessa höfðinglegu hetju því Eiður Smári gerði sér lítið fyrir og bauð öllum íþróttafréttamönnunum til dýrlegs fagnaðar á Skólabrú. Þar var vel veitt, vín og matur eins og hver gat í sig látið, og stóð gleðin fram á rauða nótt. íþróttafréttamenn, með Adolf Inga Erlingsson í broddi fyUcingar, voru þó ekki einu boðsgestimir sem nutu veglyndis Eiðs Smára, sem fyrr um kvöldið hafði gefið verðlaunaféð, hálfa mUljón, tU Einstakra bama. Reyndar var öUum þeim sem við- staddir vom afhendinguna á Grand Hóteli boðið - fjölskylda knatt- spymuhetjunnar að sjálfsögðu og var tíl þess tekið hversu glæsileg kona Eiðs Smára, Ragnhildur Sveinsdóttir, var en hún ber nú þeirra þriðja bam undir belti. Meðal annarra sem vom staddir á Skólabrú var menntamálaráðherra þjóðarinnar, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, en án síns ektamaka Kristjáns Arasonar sem tflnefndur var 10 sinnum á 11 ámm án þess að hreppa titilinn. Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair, var þar einnig staddur en fyrir- tæki hans er einn helsti styrktaraðfli kjörsins. Söng- konan Ragnhfldur Gísladóttir og sambýlismaður hennar Birkir Kristinsson vom þama einnig stödd. Ragnhfldur tók lagið ásamt Ólafi'u Hrönn Jóns- dóttur við mikinn fögnuð gesta. Strákamir: Sveppi, Auddi og Pétur Jóhann létu sig að sjálfsögðu ekki vanta. Pémr Jó- hann fór á kost- um í uppistandi. Aflir vom í sérlega góðum gír, eink- um þó sá sem hélt um aUa tauma: Eggert Skúlason, fjölmiðlafulltrúi Eiðs Smára, var eins konar veislustjóri og lék á als oddi. Var það búksláttur? • Hannes Smárason, stærsti hluthafi og núver- andi forstjóri FL Group, var maðurinn sem gerði ráðningarsamning þann sem færði Ragnhfldi Geirs- dóttur 130 milljónir í starfslokasamning snemma á síðasta ári. Þá var Hannes stjórnarfor- maður í FL Group en hann tók síðan við af Ragnhildi. Gráglettni ör- laganna að það skyldi kosta stærsta hluthafa fé- lagsins svona mikið að setjast í forstjórastólinn... • Það vakti athygli nokk- urra kvenna sem horfðu á áramótaskaupið í leik- stjórn Eddu Björgvinsdótt- ur að þær höfðu séð atrið- ið með Björgvin Frans, syni Eddu, þar sem hann hermir eftir þekktu tón- listarfólki, áður. Björgvin hefur verið vinsæíl á kvennakvöldum undan- farið og þar hefur hann hermt eftir Birgittu og fleimm. Þótti mörgum það skrýtið að gamalt at- riði skyldi vera dregið á flot í skaupinu og það sem verra var að það hafði ekkert með árið 2005 að gera. Svona getur nú verið gott að þekkja þá sem stjórna... PGV ehf. i Bæjarhrauni 6 i 220 Hafnafjörður i Sími: 564 6080 i Fax: 564 60811 www.pgv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.