Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2006, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2006, Page 21
I>V Sport FIMMTUDACUR 5. JANÚAR 2006 21 Róbert Gunnarsson Unumaður. DV-mynd Uros Hocevar [ Guðjón Valur Sigurðsson Vinstra horn. DV- myndVilhelm Einar Hólmgeirs son Hægriskytta. DV-mynd Pjetur Ólafur Stef- ánsson Hægri skytta. DV-mynd Uros Hocevar Andri Steinn ekki til Notts County Andri Steinn Birgisson knattspymumaður mun ekki ganga til liðs við Notts County á næstunni ef marka má orð Guðjóns Þórðarsonar, knattspymu- stjóra liðsins, í viðtali á heimasíðu þess. Hann segir að aðrar leikstöður hafi for- gang hvað varðar nýja Ieik- menn og þó svo að hann hafi hrifist af honum þær þrjár vikur sem hann var til reynslu hjá félaginu efaðist hann um að Andri kæmi aftur í bráð. íslenska handboltalandsliðið er á leið á Evrópumótið í Sviss í næsta mánuði. Liðið lék alls 25 landsleiki á síðasta ári og vann 14 þeirra. Birkir ívar Guðmundsson og Vignir Svavarsson léku flesta leiki eða 24 af þessum 25. Guðjón Valur ug Róbert báOlr yflr 100 marka múrlnn Hingis áfram á sigurbraut Svissneski tennisleikar- inn Martina Hingis heldur áfram á sigurbraut sinni eftir að hún tók upp spaðann aftur eftir fjögurra ára hlé. Hún er nú komin í fjórð- ungsúrslit á sterku móti í Ástralíu eftir að hafa unnið Klöm Koukalovu frá Tékklandi held- ur auðveldlega, 6-3 og 6-2. Hingis hefur unnið flestallt sem hægt er að vinna í íþróttinni en hún neyddist til að hætta fyrir fjórum ámm vegna meiðsla. Defoe kemst áHM Martin Jol, knattspymustjóri Tottenham, er þess fullviss að Jermain Defoe verði valinn í landslið Englands sem tekur þátt í HM í Þýskalandi næsta sumar. Defoe hefur verið í byrjunarliði Tottenham í aðeins einum leik af síðustu átta en Jol segir að hann muni fá sína leiki. „Ég held að það verði ekki erfitt fyrir Eriksson (landsliðsþjálfara) að velja hann í liðið þótt hann sé ekki að byrja inni á hjá okkur." En hann bætti því við að vissulega þyrfti Defoe að nýta tækifærið vel þegar það kæmi. Stoke kaupir Chadwick íslendingafélagið Stoke City hefur keypt Luke Chadwick af West Ham fýrir eitt hundrað þúsund pund. Chadwick hefur verið í láni frá West Ham á yf- irstandandi keppnistímabili og mun hann skrifa undir samning sem tryggir vem hans hjá félaginu til loka tímabilsins 2008. Chadwick hefur leik- ið 23 leiki með Stoke á tímabilinu og skorað í þeim eitt mark. Guðjón Valur Sigurðsson var markahæsti leikmaður íslenska handboltalandsliðsins á árinu en hann skoraði 126 mörk í 23 leikjum eða 5,5 mörk að meðaltali í leik. Guðjón var annar tveggja leikmanna íslenska landsliðsins sem fóru yfír 100 marka múrinn en hinn er línumaðurinn Róbert Gunnarsson sem skor- aði 103 mörk. Róbert er fyrsti línumaður landsliðsins í 17 ár til þess að skora hundrað mörk á einu ári. Síðastur á undan Róberti til þess að ná því var Þorgils Óttar Mathiesen sem skoraði 123 mörk í 41 leik árið 1988. Markahæstu leikmenn landsliðsins síðustu fimm árin: íslenska landsliðið tapaði fjómm fýrstu leikjum ársins og vann aðeins þtjá leiki fram yfir HM í Túnis þar sem liðið endaði í 15. sæti. íslenska liðið vann tvo af þremur vináttu- landsleikjum gegn Pólvetjum sem fóm fram á íslandi í mars en tapleik- urinn í Laugardalshöllinni 26. mars er síðasti tapleikur strákanna okkar sem hafa spilað þrettán leiki í röð án þess að tapa. Islenska liðið hefur unnið 10 af þessum 13 leilgum og gert þrisvar jafntefli. Notaði 36 leikmenn á árinu 2005 Viggó Sigurðsson notaði alls 36 leikmenn á þessu ári, 8 markmenn, 8 homamenn, 4 lfnumenn, 9 skyttur og 7 leikstjórnendur þótt sumir leik- mannanna geti vissulega spilað fleiri en eina stöðu. Enginn leikmaður náði að spila alla 25 leikina en markvörðurinn Birk- ir fvar Guðmundsson og línumaðurinn Vignir Svavarsson léku alla leiki nema einn. Birkir ívar hvíldi í vináttulands- leik gegn Noregi í nóvember en Vignir var ekki með í söguleg- um sigri á Svíum í byrj- un júní. Fjórir leik- menn spiluðu síðan 23 leiki en það vom þeir Róbert Gunnars- son, Guðjón Valur Sigurðsson, Alexander Peterson og Einar Hólmgeirsson sem vom með í öllum leikjum liðs- ins nema tveimur vináttulandsleikj- um við Færeyinga en aðeins leik- menn úr íslensku deildinni léku þá leiki. Náði ekki að bæta met Krist- jáns Ólafur Stefánsson er aðeins firnmti markahæsti leikmaður ís- lenska liðsins á árinu en þetta er í fyrsta sinn síðan árið 2000 að Ólafur nær ekki að brjóta hundrað marka múrinn en Ólafur hafði skorað alls 545 mörk á síðustu fjómm árum. Ólafur lék 16 af 25 landsleikjum árs- ins og skoraði i þeim 70 mörk eða 4,4 að meðaltali í leik. Ólafur náði því aðeins að jafna met Kristjáns Ara- sonar sem skoraði yfir hundrað mörk fjögur ár í röð frá 1986 til 1989. Guðjón Valur skoraði hins vegar yfir 100 mörk þriðja árið í röð og getur því jafnað met þeirra Ólafs og Kristjáns á næsta ári. Guðjón Valur Sigurðsson 126 Guðjón ValurSigurðsson 138 Einar Örn Jónsson 70 Róbert Gunnarsson 103 Einar Hólmgeirsson 99 Ólafur Stefánsson 158 Ólafur Stefánsson 147 Sigfús Sigurðsson 93 Patrekur Jóhannesson 90 Guðjón Valur Sigurðsson 142 Róbert Gunnarsson 99 Ólafur Stefánsson 101 Ólafur Stefánsson 139 Patrekur Jóhannesson 84 Guðjón Valur Sigurðsson 73 Guðmundur, Dagur og Patrekur kvöddu landsliðið Þrír af leikjahæstu leikmönnum íslenska landsliðsins kvöddu liðið á þessu ári. Sá leikjahæsti, Guðmund- ur Hrafnkelsson, fékk sérstakan kveðjuleik gegn Svíum í júnf, Dagur Sigurðsson tilkynnti það eftir þriggja marka sigur á Hvít-Rússum í Minsk í júní að hann hefði þá spilað sinn síðasta landsleik og Patrekur Jó- hannesson fékk tvo kveðjuleiki gegn Noregi f nóvember. Guðmundur lék alls 396 A-lands- leiki fyrir íslands hönd og það er nánast óhugsandi að met hans verði einhvern tímann slegið. Dagur hefur gegnt fyrirliðastöðunni undanfarin fimm ár og lék alls 213 landsleiki fyr- ir íslands hönd og er í 11. sæti yfir leikja- hæstu landsliðsmenn sögunnar. Patrekur Jóhannesson sem lék sinn 231. og síðasta landsleik gegn Norð- mönnum í Kaplakrika í lok nóvem- ber er sá 9. leikjahæsti frá upphafi. Viðburðaríkur fyrsti mánuður Framundan er viðburðaríkur fyrsti mánuður nýs árs þar sem ís- lenska landsliðið keppir á Evrópu- mótinu í Sviss. Strákamir spila fimm vináttulandsleiki ffarn að EM en fyrsti leikurinn er gegn Serbum 26. janúar. íslenska landsliðið er einnig í riðli með Dönum og Ungveijum. Það er milcil spenna í handbolta- áhugamönnum fýrir þessu móti enda bendir margt til þess að ís- lenska liðið geti gert góða hluti í Sviss, 20 árum eftir að strákarnir okkur unnu hug og hjörtu íslensku þjóðarinnar með því v - að ná 6. sætinu á HM íSviss 1986. ooj@dv.is /! 126 Alexander Peter- son Hægri horna- maður. DV-mynd Uros Hocevar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.