Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2006, Side 4
4 MÁNUDACUR 9. JANÚAR 2006
Fréttir DV
Rg||§|f||§||
, ' - 'i ’
2i§yii^^^ ' ...
Tveirívarð-
hald fyrir
vestan
Héraðsdómur Vestfjarða
dæmdi síðastliðinn föstu-
dag tvo menn í gæsluvarð-
hald til þriðjudags vegna
fíkniefnavörslu og talsvert
fé fannst einnig á heimil-
inu. Lögreglan segir að
þetta sé liður í rannsókn á
meintri fíkniefnidreifingu á
norðanverðum Vestíjörð-
um undanfarið. Mennirnir
eru samkvæmt heimildum
DV frá Súðavík og eru í
kringum tvítugt.
Björn laus
Bjöm Grétar Sigurðsson
losnaði úr gæsluvarðhaldi á
laugardag. Björn var úr-
skurðaður í vikulangt
gæsluvarðhal af Lögregl-
unni íVest-
mannaeyjum á
gamlárskvöld eftir
að um hundrað
grömmafhassi og
tæp milljón í
reiðufé fannst á
heimili hans. í
kjölfarið gerði lög-
reglan húsleit í
nokkmm húsnæðum sem
tengdust Bimi. Þegar upp
var staðið hafði fundist
rúmt kíló af hassi til viðbót-
ar auk tuttugu gramma af
amfetamíni. Lögreglan
vinnur nú að rannsókn
málsins.
Vandséð
bragarbót
Homfirðingar em ekki
ánægðir með þá nýju skip-
an löggæslumála sem Björn
Bjamason dómsmálaráð-
herra hefur boðað. „Það er
vandséð að íbúar á suð-
austurhominu fái betri lög-
gæsluþjónustu undir stjóm
sýslumannsins á
Eskifirði. Áhyggjur
varða einnig um-
fang sýslu-
mannsemb-
ættisins á
Höfh og að
það megi
ekki við því
að dragast
saman. Af þeirri ástæðu er
mikilvægt að embættið á
Höfn verði styrkt þegar
kemur að tilfærslu verkefna
til smærri embætta," segir
bæjarráð Hornafjarðar.
Þröstur Þórhallsson stórmeistari hefur ákveðið að leggja kónginn á hilluna svo
aðrir komist á meistaralaun hjá menntamálaráðuneytinu. Aðeins fjórir geta verið
á stórmeistaralaunum í einu. Fyrir liggur óformleg beiðni um laun til nýjasta
skákríkisborgarans og stórmeistarans Henriks Daniels að sögn Hrafns Jökulssonar,
fyrrverandi formanns Hróksins.
Henrik Daniels, stórmeistari í skák, er nýkominn með íslenskan
ríkisborgararétt og samkvæmt Hrafni Jökulssyni, fyrrverandi
formanni Hróksins, liggur fyrir óformleg styrktarbeiðni um stór-
meistaralaun hjá menntamálaráðuneytinu. Aðeins fjórir
stórmeistarar geta verið á launaskrá í einu. Þröstur Þórhallsson,
stórmeistari í skák, hefur ákveðið að hætta að tefla sem atvinnu-
maður og þiggja ekki laun frá ráðuneytinu. Eins og áður hefur
birst í DV þá á og rekur Þröstur fasteignasöluna Austurbæ og
þiggur full laun þaðan.
„Ég hef ákveðið að hætta í at-
vinnumennsku frá og með í vor,“
segir Þröstur en hann ásamt Lenku
Ptácníkovu, Helga Áss Grétarssyni
og Hannesi Hlífari Stefánssyni
þiggur stórmeistaralaun frá ríkinu
sem nema launum háskólakennara.
Samkvæmt lögum síðan 1990 er til-
j Hrafn Jökulsson Hefur lagt
inn óformlega beiðni um stór■
| meistaralaun fyrir Henrik.
gangur sjóðsins að skapa íslenskum
stórmeisturum fjárhagslegan
grundvöll til að helga sig skáklistinni
standi hugur þeirra til þess. Þegar
sjóðurinn var stofnaður voru íjórir
stórmeistarar á launaskrá mennta-
málaráðuneytisins og stunduðu þeir
ekki aðra atvinnu en skákiðkunina.
Skákin er ástríða
„Það er kominn tími til þess að
leyfa nýjum mönnum að spreyta
sig," segir Þröstur og bætir við að
hann elski skákina og iðki hana af
kappi þrátt fyrir að hann vinni hjá
fasteignasölunni. Hann áréttar að
hann hafi sinnt sínum skyldum sem
stórmeistari hingað til enda vinnu-
tíminn sveigjanlegur.
Þröstur fer á ólympíuskákmót í
vor en það verður hans síðasta mót
sem atvinnumaður. Hann segir að
hann muni að sjálfsögðu ekki hætta
að tefla fyrir fuÚt og allt, til þess sé
„Skákin er ekki iífið,
fjölskyldan er það."
skákin of mikil ástríða.
„Skákin er ekki lífið, fjöl-
skyldan er það,“ segir Þröstur
aðspurður hvers vegna hann v
ætli að leggja kónginn á hill-
una.
Henrik atkvæðamikill í skák-
uppbyggingu
„Við erum búnir að leggja inn
óformlegt erindi til menntamála-
ráðuneytisins," segir Hrafn Jökuls-
son, fyrverandi formaður skákfé-
lagsins Hróksins. Hrafn segir að
beiðnin miðist við fullan vinnudag
en Henrik Daniels hefur verið ótrú-
lega ötull við að kynna skák ásamt
Hróknum fyrir grxmnskólakrökkum
bæði á íslandi og Grænlandi. Henrik
hefur líka verið skólastjóri skákskóla
Hróksins. Einnig er fyrirhuguð skák-
kennsla í grunnskólum Hafnarfjarð-
ar og mun Henrik taka þátt í þeirri
uppbyggingu en Hrafn segir að
ekki sé komin endanleg mynd
á það fyrirkomulag.
Beiðni Henriks verður
tekin fyrir í vor og kemur þá
í ljós hvort nýi ríkisborgar-
inn fái stórmeistaralaun frá
menntamálaráðuneytinu.
valur&dv.is
Henrik Daniels
Stórmeistari og is-
lenskur rikisborqari.
Skotið lanqt yfir markið í Kópavogi
Svarthöfði er mikill sælkeri.
Svarthöfði elskar konfekt og annað
góðgæti og því eru jólin honum
einkar kærkomin. Þá flykkjast til
hans fjöldinn allur af konfektköss-
um frá ýmsum velunnurum. Að
mati Svarthöfða er konfekt einnig
rómantískasta nammið og einkar
hentugt þegar biðjast þarf fyrirgefn-
ingar. Oft á tíðum færir hann Svart-
höfðu kassa af dýrindis konfekti
þegar hann hefur hagað sér ifla.
Svarthöfði las um það í DV á
laugardaginn að Gunnar I. Birgis-
son, bæjarstjóri í Kópavogi, hafi
einmitt gefið öllum leikskólakenn-
m
Svarthöfði
urum bæjarins konfektkassa í
jólagjöf. Ekki veitir af enda
hafa Gunnar og félag-
ar í meirihlutanum
ekki beint hagað
sér vel gagnvart
leikskólakennur-
um að undan-
förnu. Eitthvað
virðist þessi
rómantíska fyr-
irgefningargjöf
Hvernig hefur þú það
I
„Ég hefþað gott og er ánægður með lífið/'segir Kjartan Halldórsson i fiskbúðinni
Sægreifanum.„Mér fínnst gaman að vinna og starfa og svo gengur vei með Sæ-
greifann. Það er hægur hagvöxtur en sígandi iukka ersvo sem alltaf best. Annars er
búið að vera mikið að gera og mikið affólki að koma og það er alltafaö aukast þannig
að ég er ánægður með lífið. Hér er bara verið að meika það."
þó hafa átt erfitt með að
komast til skila. Þannig
sagði DV frá því að Soffía
Ámundadóttir, deildarstjóri
á leikskólanum Fífusölum,
hafi ekki fengið sinn
konfektkassa fyrr en á
þrettándanum.
Ekki nóg með það
heldur beið hann
fyrir utan heimili
hennar þegar
hún kom heim
og var þá orð-
inn rennandi
blautur. Ekki
þykir Svart-
höfða blautt
konfekt á víða-
vangi bera vott
um rómantík
og þaðan af
síður um fyrir-
gefningu. Af
samskiptum sínum við Svarthöfðu
veit Svarthöfði að gjöfin ein er ekki
nóg, hugur verður að fylgja máli.
Svarthöfði ráðleggur Gunnari og
félögum að afhenda konfektið per-
sónulega næstu jól, og passa að gera
það fyrir jól. í ár skaut meirihlutinn,
en var víðsfjarri því að hitta í mark.
Svarthöfði