Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2006, Page 20
20 MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 2005
Sport DV
Gunnlaugur fyr-
irliði hjá KR
Vamarmaðurinn Gunn-
laugur Jónsson sem gekk til
liðs viðKRá haustdögum
hefur tekið við
fyrirliðabandi
liðsins af mark-
verðinum Krist-
jáni Finnboga-
syni en þetta
kom fram á
heimasíðu félags-
ins um helgina.
Gunnlaugur sem var áður
fyrirliði ÍA var gerður að fyr-
irliða KR eftir fund leik-
manna og þjálfara um helg-
ina en Teitur Þórðarson,
nýráðinn þjálfari KR, vill að
útileikmaður sé fyrirliði, ekki
markvörður. Gunnlaugur
mun bera fyrirliðaband KR í
fyrsta sinn gegn Leikni á
Reykjavíkurmótinu þann 21.
janúar næstkomandi en það
er jafnframt hans fyrsti leik-
ur fyrir félagið.
Grétar ekki til
GAIS á reynslu
Sænska liðið GAIS sem
vann sér sæti í
úrvalsdeild þar í
landi í haust
óskaði eftir því á
dögunum að fá
Grétar Ólaf
Hjartarson,
framherja KR, til
reynslu í tíu
daga. Á laugar-
daginn kom svo
fram á heima-
síðu KR-inga að
þeir hefðu hafnað þessari
beiðni sænska liðsins og
sagt því að fylgjast með
Grétari á La Manga-mótinu
á Spáni í næsta mánuði.
WooniAris unnu
toppliðið
Leuuwarden WoonlAris,
lið þeirra Hlyns Bærings-
sonar og Sigurðar Þorvalds-
sonar, sem hafði aðeins
unnið 2 af 10 leikjum sínum
í hollensku úrvalsdeildinni í
körfubolta, byrjaði nýja árið
með því að vinna
topplið Land-
stede Zwolle, 93-
87, á heimavelli
en með þessum
sigri missti
Zwolle toppsæt-
ið. Sigurður var
með 17 stig og
Hlynur bætti við
16 stigum, 14
fráköstum, 4
stolnum boltum
og 2 vörðum skotum. Leu-
uwarden WoonlAris vann
einnig síðasta leik sinn fyrir
áramót og hefur því unnið
tvo leiki í röð.
Jón Arnór með
stórleik
Jón Arnór Stefánsson átti
sinn besta leik með ítalska
liðinu Carpisa Napoli þegar
hann skoraði
21 stig í 16
stiga sigri á
Lottomatica
Roma, 90-74,
en leikurinn
fór fram á
heimavelli
Napoli-liðs-
ins. Jón Arnór
var stigahæstur í sínu liði
en hann hitti úr 7 af 10
skotum sínum á þeim 36
mínútum sem hann spilaði,
þar af 5 af 7 þriggja stiga
skotum sínum. Jón Arnór
hefur nýtt þriggja stiga
skotin sín frábærlega í vetur
en 44,7% skota hans fýrir
utan hafa ratað rétta leið.
Fimmtán ára sund-
kona úr Fjölni, Sig-
rún Brá Sverrisdóttir,
er einn allra efnileg-
asti íþróttamaður
landsins og án efa
bjartasta vonin í
sundinu. Á nýloknu
ári vann hún sautján
gull og setti tólf ís-
lands- og aldurs-
flokkamet á stóru
mótum ársins og
komst meðal efsta
sundfólks í sínum
aldursflokki á Alþjóð-
legum styrkleikalist-
um.
Árið 2005 er Sigrúnu Brá Sverrisdóttur eftir-
minnilegL Þetta var árið sem hún skaust upp á
stjömuhimininn í sundinu, setti alls tólf fs-
lands- og aldursflokkamet og vann gull á öllum
fimm stóm mótunum sem hún tók þátt í, þar á
meðal þijú gull á Smáþjóðaleikunum í Andorra
í júní og gull í 100 metra skriðsimdi á Norður-
landamótinu sem fram fór á íslandi í nóvember.
Sigrún Brá vann síðan fimmfaldan sigur á bæði
Aldursflokkamótinu og Unglmgalandsmótinu.
Athyglisverðustu mótin hjá Sigrúnu Brá á árinu
voru kannski þegar hún var að keppa í flokki fullorð-
inna en þar náði hún frábærum árangri. Hún vann
þannig sex verðlaun, flest allra íslendinga, á Smáþjóða-
leikunum og þar af voru þrjú gull. Sigrún vann einnig
þrjú gull á íslandsmeistaramótinu í nóvember þar sem
hún bætti meðal annars fjögurra ára gamalt íslandsmet
í200 metra flugsundi. „Það kom kannski aðeins á óvart
hversu vel mér gekk en ég setti samt alltaf stefnuna á að
standa mig,“ segir hin fimmtán ára Sigrún Brá Sverris-
dóttir. Aldursflokkameistaramótið
og Norðurlandameistara-
mótið standa upp úr hjá
Sigrúnu á árinu en hún er
löngu búin að missa sjálf
töluna á öllum verð-
laununum sem hún
vann á sfðasta ári.
passa mig að sofa og borða vel,“ segir Sigrún sem ætlar
sér einnig mikið á þessu ári. „Maður reynir að fýlga
þessu eftir því það er alltaf sett stefnan á að bæta sig. Eg
ætla mér að komast á Evrópumót unglinga aftur og
reyna að komast inn á Evrópumeistaramótið f 25 metra
laug. Ég ætla sfðan að reyna að standa mig vel á öllum
mótunum sem ég keppi á,“ segir Sigrún um aðalmark-
miðnýjaársins.
Á unglingamótunum hér heima stóðst henni eng-
inn snúninginn þar sem hún varð fimmfaldur meistari
á bæði Aldursflokkamótinu í Reykjanesbæ og Ung-
lingalandsmótinu f Vfk í Mýrdal og vann alls til þrettán
verðlaun á þessum tveimur mótum.
„Ég fi5r í sund af því að ég gat ekki verið í fótbolta eða
frjálsum því ég var svo léleg f fótunum," segir Sigrún
um ástæður þess að hún fór að æfa sund en hún sér
ekki efitir því f dag eftir þessa miklu velgengni.
Fær sjaldan einkunnir undir níu
Á heimasíðu Fjölnis má finna ítarlega úttekt á afirek-
um Sigrúnar á árinu og þar má lesa að stelpan er í mikl-
um metum hjá félaginu enda að koma Fjölni á blað f
sundinu. „Stúlkan er fyrimyndamemandi og fær sjald-
an einkunnir undir 9 og er það enn eitt merkið um
hverskonar yfirburðaefiti hér er á ferð. Það að halda
námi sínu svona góðu útheimtir góða skipulagningu og
sjálfsaga og það em einmitt aðalsmerki afreksfólks.
Sjálfeagi og sldpulagt lífemi skilar árangri og Sigrún Brá
er mjög gott dæmi um hvemig það gerist," segir á
heimasíðunni um afrek Sigrúnar utan sundlaugarinn-
Sigrún Brá er nú handhafi tólf íslandsmeta í sundi,
þar af tíu þeirra í 25 metra laug. Sigrún Brá á tvö ís-
landsmet fullorðinna, sex stúlknamet, þijú telpnamet
og eitt meyjamet en öll met hennar em sett í skriðsund-
um nema Islands- og stúlknametið sem hún setti svo
eftinninnilega í 200 metra flugsundi á íslandsmótinu í
nóvember.
Syndir 50 km í hverri viku
Sigrún Brá leggur gríðarlega mikið á sig og á heima-
síðu Fjölnis sést það svart á hvítu hversu mildum tíma
hún eyðir í sundlauginnL
„Til að ná þessum markmiðum sínum hefur Sigrún
Brá lagt að baki gffurlega erfitt æfingaprógram þar sem
hún hefur æft 8 sinnum í viku af stakri reglusemi og
nánast ekki misst úr æfingu. Hún syndir að meðaltali
um 5500 á hverri æfingu og syndir því 50 km í hverri
viku. í þetta fara um það bil 30 klst. í viku og stúlkan
æfir 11 mánuði á ári,“ segir á heimasfðunni um æfing-
ar Sigrúnar. Sigrúnu finnst þetta ekkert of miklar æfing-
ar og segist bara fara snemma að sofa ef hún sé eftír sig
eftír æfingar dagsins.
ooj@dv.is
Passar uppá
aösofaoq
i boröa vel
s» „Lykdllinn
á bak við
þetta hjá
mér em
í miklar
IJ æfing-
// ar og
7 L-. að
m
S Verðlaunasafn árs-
| ins 2005
5 Þaðer nóg afverð-
J lounum sem Sigrún
| Brástátaraffráárinu
j 2005 en hérsésthún
5 tneð uppskeru ársins.
oa»*«*;*
m
Nýárssundmót íþróttafélags fatlaðra fór fram i Laugardalnum í gær
Hulda fékk sjómannabikarinn
Nýárssundmót fatlaðra bama og
unglinga fór fram í gær í nýju og
glæsilegu innisundlauginni í Laug-
ardal í Reykjavík. Stærstu verðlaun
mótsins, Sjómannabikarinn, gaf Sig-
mar Ólason, sjómaður á Reyðarfirði,
til keppninnar og er hann veittur
fyrir besta sundafrek mótsins sam-
kvæmt stiga- og forgjafarútreikn-
ingi. Að þessu sinni var það Hulda
Agnarsdóttir úr Firði sem hlaut Sjó-
mannabikarinn 2006 en hún fékk
575 stig. Sonja Sigurðardóttir úr ÍFR
varð í 2. sæti með 538 stig og í þriðja
sæti varð síðan Guðrún L. Sigurðar-
dóttir úr ÍFR en hún hefur oft unnið
Sjómannabikarinn á undanförnum
ámm.
Á Nýársmóti ÍF kepptu um 80
börn og unglingar frá 6 félögum
víðsvegar að af landinu, bæði aðild-
arfélögum ÍF og almennum sundfé-
lögum og er þetta meðal fjölmenn-
ustu Nýárssundmóta hingað til.
Mótið hefur verið haldið frá árinu
1984 en þar keppa fötluð böm og
unglingar 17 ára og yngri, hreyfi-
hamlaðir, blindir/sjónskertir,
heymarlausir/skertir og þroskaheft-
ir. Á þessu móti hefur margt af okkar
besta sundfólki hafið sundferil sinn
s.s. sundkonan KristínRós Hákonar-
dóttir, Geir Sverrisson, Ólafur Eiríks-
son, Bjarki Birgisson, Gunnar örn
Ólafsson, Birkir Rúnar Gunnarsson
og Sigrún Huld Hrafnsdóttir.
Forseti íslands Ólafur Ragnar
Grímsson fylgdist með mótinu og
heilsaði upp á keppendur en hann
er í alþjóðastjórn Special
Olympics og heftir farið á al-
þjóðaleika Special Olympics í
Bandaríkjunum og Irlandi og
fylgst þat með íslenskum kepp-
endum.
Hufda fékk Sjómannabikarinn
Hér sést Hulda Agnarsdóttir úr Firði
sem hlaut Sjómannabikarinn 2006 á
Nýársmóti lF I gær.