Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2006, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2006, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR W. FEBRÚAR 2006 Fréttir DV Eyþór líklegur Sjálfstæðismenn í Ár- borg munu kjósa um leið- toga sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar og hafa fjórir frambjóðendur boðið sig fram í leiðtoga- sætið. Spurt var á sudur- land.is hvern þeirra lesend- ur vildu að leiddi lista flokksins. Eyþór Arnalds varð hlutskarpastur í þess- ari óformlega könnun, fékk 42,52 prósent atkvæða. Sig- urður Jónsson kom þar skammt á eftir með 41,43 prósent atkvæða. Mjög góð þátttaka var í könnuninni. I þriðja sæti kom Snorri Finnlaugsson með 9,27 prósent atkvæða en Páli Leó Jónsson fékk fæst at- kvæði eða 6,78 prósent. Ferðamönn- um fjölgar Erlendum ferðamönn- um fjölgaði um 10 prósent í janúar síðastliðnum miðað við janúar í fyrra. Þetta er niðurstaða talninga Ferða- málastofu á ferðamönnum sem fara um Leifsstöð. í ár fóru 15.377 erlendir ferða- menn um flugstöðina í jan- úar en voru 14.014 í fyrra. „Við fáum áfram góða aukningu frá Bandaríkjun- um og Asíu og ánægjulegt að sjá aukningu frá Bret- landi á ný í vetur," segir Ár- sæll Harðarson, forstöðu- maður markaðssviðs Ferðamálastofu. Ferðaþjón- usta íhættu Ferðaskrifstofur og hagsmunahópar um ferða- mennsku á hálendinu segja í ályktun sinni að nú blasi við stórfellt rekstrartap ijölda ferðaþjónustufyrir- tækja vegna virkjanafram- kvæmda, sem halda uppi allt of háu gengi krónunn- ar. Þau gera þá kröfu til stjórnvalda að ferðaþjón- usta og útivist í ósnortinni náttúru verði viðurkennd sem arðbær og mikilvæg atvinnugrein til jafns við aðrar atvinnugreinar. Þórir Karl Jónasson, fyrrverandi formaður Sjálfsbjargar, hefur verið dæmdur í 35 þúsund króna sekt fyrir að falsa lyfseðil frá rótum og reyna að svíkja út tveggja ára birgðir af morfintöflum. Seðillinn var falsaður á nafn misþroska pilts sem var eitt sinn nákominn Þóri Karli. Aðstandendur piltsins segja að hann hafi aldrei notað Contalgin og þykir sárt að Þórir hafi dregið piltinn inn í málið. Falsaði naln misþrasha pills á morfínseðilinn Móðir Halldóru Gunnlaugsdóttur vonsvikin Spíttstelpan áfram í gæsluvarðhald* inu ekki á noklcurn hátt, fyrir utan það að vera kærasta Mikaels," segir móðirin. Eins og DV hefur áður greint frá leikur grunur á að þýfi sem Mikael kom undan í svokölluðu heima- bankaráni seint á síðasta ári hafi verið notað til að fjármagna smyglið. Eins og Fréttablaðið greindi ffá í gær virðist síðan allt benda til þess að amfetamín- ið hafi verið keypt í Amsterdam. Að sögn lögreglu er það óvenjuhreint og sterkt og af þeim sökum tugmilljóna virði. Lögregla hefur nefnt að það gæti verið allt að 60 milljóna króna virði. Nú er rannsakað hvort aðrir einstak- lingar kunni að tengjast málinu á einhvem hátt. f rannsókninni á heimabankamálinu bar Mikael ávallt að aðilar sem hann vildi ekki nefna á nafii væm höfuð- paurar en hann aðeins milliliður. Mikeal sagðist hins vegar ekki geta nefnt hveijir þetta væm af ótta við hefndaraðgerðir. andri@dv.is Halldóra Gunnlaugs- dóttir Hefur verið í gæsluvarðhaldi I eina viku. Hún þarf nú að dúsa að minnsta kost aðra. Mikael Már Hefur þegar játað. Áfrýjaði gæsluvarðhaldinu ekki. Þórir Karl var dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur til þess að borga 35 þúsund króna sekt fyrir að hafa falsað lyfseðil frá rótum og framvísað honum í Rima-apóteki í Grafarvogi í nóvember. „Þetta er uppspuni í Þóri Karli," segir aðstandandi piltsins sem Þórir Karl Jónasson, fyrrverandi formaður Sjálfsbjargar, segir hafa falsað lyf- seðil sem Þórir Karl framvísaði í Rima-apóteki. Nafnið sem Þórir falsaði á seðil- inn er nafn ungs manns sem áður var tengdur Þóri fjölskylduböndum. Maðurinn er að sögn aðstand- andans misþroska og ekki háður morfínlyfinu Contalgini sem Þórir Karl reyndi að svíkja út með fölsuð- um lyfseðli. Reyndar hafi maðurinn aldrei þurft á Contalgini að halda samkvæmt því sem aðstandandi hans segir við DV. Með falska lyfseðlinum reyndi Þórir Karl að komast yfir íjögur hundruð Contalgin-töflur sem eru krabbameinslyf og vinsælt morfínlyf meðal sprautufíkla. Játaði fölsun lyfseðils Þórir Karl hélt því fram þegar DV ræddi við hann í síðustu viku að hann hefði eingöngu framselt seðil- inn en maðurinn sem nafn seðilsins væri á hefði falsað hann. Þá sagði hann einnig að þær fjögur hundruð Contalgin-töflur sem hann reyndi að komast yfir hefðu verið fyrir þennan sama mann. Þórir Karl játaði brotin í héraðs- dómi eða eins og stendur í dóms- orði: „Sannað er með skýlausri játn- ingu ákærða fyrir dómi og með öðr- um gögnum málsins að hann hafi gerst sekur um háttsemi þá, sem í ákæru greinir." í ákærunni segir meðal annars að Þórir Karl sé ákærður fyrir að fram- vísa lyfseðli sem hann hefði „falsað frárótum". Átti engan þátt í svikum Aðstandandi piltsins sem Þórir falsaði lyfseðilinn á staðfestir að lögreglan hafi leitað til þeirra en pilturinn var ekki ákærður því það þótti ljóst að hann átti alls engan þátt í svikum Þóris Karls. Þykir aðstand- endum piltsins það sárt að Þórir hafi dregið hann inn þetta mál því hann hafi tekið það afar nærri sér. sitt til baka í prófkjöri Samfylkingar- innar síðastliðinn sunnudag og varð kjörstjórn við því. í yfirlýsingu sem Þórir Karl sendi frá sér í kjölfar þess að hann dró framboð sitt til baka sagðist hann játa hlutdeild sína í málinu íýrir dómi og taka fulla ábyrgð á sín- um gjörðum. . valur@dv.is ,Sannað er meðský- lausríjátn- ingu ákærða fyrir dómiogmeð öðrum gögn- um málsins að hann hafí gerstsekur. Dró framboð til baka „Þetta voru mistök og fólk gerir mistök í gegnum lífið," sagði Þórir Karl í viðtali við DV á mánudaginn. Þórir dró framboð Héraðsdómur Reykjavikur Hæstiréttur hefur staðfest gæslu- varðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjaness yfir Halldóm Gunnlaugs- dóttur sem handtekin var síðasta föstudag eftir að tæp fjögur kíló af am- fetamíni fúndust í farangri hennar á Leifsstöð. Lögreglu er því heimilt að hafa hana í haldi þar til næsta föstu- dag. Halldóra var að koma heim frá París ásamt kærasta sínum, Mikaeli Má Pálssyni. Mikael og Halldóra halda því bæði fram við yfirheyrslur að Hall- dóra tengist málinu ekki en lögreglan óttast að með því að veita henni frelsi Hvað liggur á? yrði rannsókn málsins stofnað í hættu. Mikael hefur játað þátt sinn í smygl- inu. Áfiýjun Halldóm var hafnað á þeim forsendum að rannsókn málsins væri enn á frumstigi og hætta væri á að Halldóra myndi spilla fyrir henni gengi hún laus. í samtali við DV í gær sagðist móðir Halldóm vonsvikin yfir því að dóttir hennar þurfi að dúsa lengur í gæsluvarðhaldi. „Ég skil samt hvaða sjónarmið liggja að baki. En ég vona fyrst og ffemst að hún losni fyrr en síðar. Ég trúi því að hún hafi ekki vitað um þetta smygl og tengist mál- „Það liggur heldur beturá hjá mér núna," segir Pan„Beatmakin Troopa"Thorarensen tónlistarmaður. „Diskurinn minn er að koma útí næstu viku. Þetta er stuttplata, átta laga. Ég gefhana bara út í 100 eintökum. Flún heitir Surprise Visit og er mjög óllk þeirri sem ég gafút í haust. Fólki á eftir að bregða. Ég tek bara við pöntunum á netfangið beatmt@gmail.com. Fyrstir koma fyrstir fá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.