Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2006, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2006, Blaðsíða 11
DV Fréttir Hjörvar var í sakleysi sínu að fara heim eftir kráarölt og nýbúinn að skilja við vini sína um þrjúleytið aðfaranótt sunnudags fyrir nokkrum árum. Hann gekk framhjá hópi ungmenna sem af engu tilefni eltu hann uppi og börðu hann til óbóta. Þau hættu ekki að sparka í andlit hans og líkama íyrr en Hjörvar lá meðvitundarlaus á götunni með slæma áverka í andliti og heilahristing. Lögreglan kom á vettvang en einungis náðist í einn árásamannanna, 16 ára ungling sem sjónarvottar bentu „Klukkan var rúmlega þrjú og ég var að labba í Austurstrætinu þegar ég varð allt í einu var við að hópur ung- linga hljóp á eftir mér og réðst á mig og henti mér í götuna," segir Hjörvar Hjörvarsson. „Þau byrjuðu að sparka í mig allan og það eina sem ég gat gert var að reyna að verja andlit mitt því þau spörkuðu í höfuðið á mér en þrátt fyr- ir það kinnbeinsbrotnaði ég á tveimur stöðum, brákaðist á nefi og fékk blæð- ingu inn á auga,“ bætir Hjörvar við. Einn árásarmannanna náðist „Lögreglan náði einum 16 áira unglingi sem sjónarvottar báru kennsl á og ég lagði fram kæru. Hann var dæmdur í þriggja mánaða skilorð- sbundna fangavist og til að borga mér í skaðabætur rúmlega 200 þúsund krónur. Ég fékk aldrei krónu því drengurinn var ekki borgunarmaður fyrir því sem hann átti að borga mér,“ segir Hjörvar. Hann segir að vinnu- tap, eyðilegging á fötum hans og síðar meir sjúkrahúsvist og lækniskostnað- ur vegna meiðslanna hafi alfarið verið á hans kostnað. Hjörvar Hjörvarsson „Ég kinnbeins- brotnaðiá tveimur stöðum, brákaðist á „Það eina sem ég gat gert var að reyna að verja andlit mitt því þau spörkuðu í höfuð- iðámér." að hættulegustu götur borgarinnar eru Laugavegur, Bankastræti, Austur- stræti, Hafnarstræti, Tryggvagata og Þingholtsstræti. Flestar líkamsárás- irnar eru á bilinu fjögur til sex að morgni laugardags og sunnudags. Eins og kom fram í viðtali við Geir Jón Þórisson í DV á miðvikudag er of- beldið í miðbænum orðið grófara. Segja starfsmenn slysavarðstofunnar að líkamsmeiðsl fórnarlamba séu al- varlegri nú en áður. Lögreglan hefur komið fyrir eftir- litsmyndavélum í helstu götum mið- bæjarins. Þessar myndavélar hjálpa lögreglunni að upplýsa mál og bera kennsl á ofbeldismennina. Segir Geir Jón að eftirlitsmyndavélarnar fæli menn einnig frá því að vera með of- beldi þar sem myndavélarnar eru og ofbeldisverkin hafi færst í önnur hverfi borgarinnar fyrir vikið. jakobína@dv.is nefi og fékk blæðingu Hornið á Bankastræti og Þingholtsstræti Hættuleg■ asta götuhorn Reykjavíkur. GeirJón Þór- isson yfirlög- regluþjónn ! Segir að ofbeldi í Reykjavíksé grófara en áður. Hættulegustu staðirnir í skýrslu sem lögreglan gerði um ofbeldisárásir í Reykjavík kemur fram Gatnamót Lækjargötu, Austurstrætis og Bankastrætis Eitt af tveimur hættu- legustu götuhornum Reykjavikur. Kort af þeim götum þar sem ofbeldi hefur átt sér stað í miðbæ Reykjavík- ur Rauðu dilarnirsýna okkur árásarstaðina. Hjörvar Hjörvarsson varð fyrir fólskulegri árás tíu ungmenna í Austurstræti. Án nokkurs tilefnis hentu ungmennin Hjörvari í götuna og spörkuðu í andlit hans, höfuð og líkama þannig að stórsá á honum. Miðbærinn var fullur af fólki og enginn kom Hjörvari til hjálpar. Hornið á Bankastræti og Þingholtstræti er hættulegasta götuhorn landsins. Skilur ekki svona óþverraskap „Maður á aldrei von á svona til- efnislausri árás og heimskulegt af þessum krökkum að gera þetta. Ég held að þau geri sér ekki grein fyrir því hvað þau eru að gera og þær af- leiðingar sem svona árás getur haft á Iff þeirra og þann sem ráðist er á. Það þarf ekki nema eitt högg til að breyta lífi fjölda fólks," segir Hjörvar sem þurfti síðar að fara í nefaðgerð því nefið skekktist: „Ég var alltaf í vandræðum með að anda í gegnum nefið.“ Hjörvar lætur þessa lífsreynslu ekki á sig fá og segir að hann gangi um miðbæ Reykjavíkur óhræddur. „Ofbeldi og tilefnislausar árásir á saklaust fólk finnst mér að hafi auk- ist en hafa færst úr miðbænum í önnur hverfi vegna eftirlitsmynda- vélanna í miðbænum," segir hann. JCB 3CX árg. 2000 - Vst. 7.320 JCB 3CX árg.1999 - Vst.5.100 JCB 456 árg.1998-Vst.8.900 JCB 4CX Super árg.2003 - Vst.3.500 Hitachi 150W árg. 2005-Vst.1.500 VELAVER? Símar 588 2600 og 893 1722 www.velaver.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.