Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2006, Blaðsíða 31
DV Siðasten ekki sist
FÖSTUDAGUR 7 0. FEBRÚAR 2006 31
Spurning dagsins
Hvað finnst þér um að Viggó Sigurðsson
sé hættur að þjálfa landsliðið?
Fyrst hann er hættur vil ég
fá Atla Hilmarsson
„Ég er ekki sáttur því hann stóð sig eins og hetja.
Mér fannst illa komið fram við hann. En fyrst
hann er hættur vil ég fá Atla Hilmarsson til að
þjálfa í staðinn."
Helgi Jónasson nemi.
■1 r
^ l KuBhkp
„Mér
fannst hann ekki
nógu góður. Hefði
hann valið Dura-
nona hefði ég stutt
hann. Annars held
ég að þeir hafi gott
afþvi að fá ferskt
blóð í þetta."
Ásgeir Aðal-
steinsson nemi. ,
„Þetta
skiptir mig af-
skaplega litlu
máli. Hann var
svo sem ágætis-
þjálfari en mér
finnst það bara
fínt að fá nýtt
blóð í þetta."
Salvör Þóris-
dóttir stuðn-
ingsfulltrúL/
„Mér
finnst það bara
hræðilegt. Ég
skil ekki af
hverju hann
hætti en menn
þurfa bara að
halda áfram
Ásta Gunnars-
dóttir nemi.
„Það var
gott hjá honum
að hætta. Mér
fannst hann fínn
þjálfari og
kannski á maður
eftir að sakna
hans."
Laufey Ásta
Guðmunds-
dóttir nemi.
Viggó Sigurðsson sagði upp samningi sínum vegna ófullnægjandi kjara.
Mörður um móðgaða þingmenn
„Yðar einlægur var í
hádeginu í dag sakað-
ur \im griðrof og gott
ef ekki þjófnað í of-
análag - og um það
sameinuðust fjórir móðgaðir
þingmenn úr jafnmörgum
stjórnmálaflokkum.
Tilefnið var nýtt frumvarp frá
mér og fimm öðrum Samfylking-
armönnum um flutningsskyldu
og flutningsrétt í samskiptum
fjölmiðils og dreifiveitu - ef það
yrði að lögum væri tryggður
hagsmunalegur aðskUnaður
þessara atvinnugreina. Þá kæmu
upp mál einsog um Enska bolt-
ann og ADSL-tengingar í sumar
leið, áskrifendur að Digtal-ís-
land gætu horfi á Skjá einn gegn-
um afruglarann og þeir sem eru
með Breiðbandið frá Sim-
anum gætu keypt sér
áskrift að til dæmis Sýn
og fengið meistara-
deildina gegnum breið-
bandið sitt.“
Ms
uppa-
Sátt rofin?
„Hin stóru orð frá þeim
Hjálmari Amasyni, Guð-
laugi Þór Þórðarsyni, Magn-
úsi Þór Hafsteinssyni og Kol
brúnu Halldórsdóttur féllu ekki
út af efni frumvarpsins - um
það virtust þau öll sam-
mála! heldur var ráðist að
flutningsmönnum af þvi
þeir hefðu með einhverjum
hætti „rofið sátt“ um málefni
fjölmiðla og tekið sig og
flokk sinn út úr „fjölmiðla-
hópi“ sem nú væri að störf-
um. Ennfremur var fundið
að því að frumvarpið byggð
ist efnislega á niður-
stöðum fjölmiðla-
nefndarinnar síðari,
en skýrsla hennar er
nú bráðum ársgömul,
kom út í aprílbyrjun í
fyrra.“
Fáránleg
koma
„Þetta er auðvitað
út í hött. Enginn
„ fj ölmiðláhópur “
er að störfúm um lagasmíð
þannig að einhverskonar verk-
bann skapist hans vegna um
málflutning á alþingi. Tveimur
lögfræðingum hefúr vissulega
verið falið að undirbúa frumvarp
eða frumvörp í þessa veru af
hálfu menntamálaráðherra, og
stjórnarandstöðuflokkarnir hafa
góðfúslega orðið við óskum um
að vera til ráðgjafar í þeim efn-
um. Það var gert án nokkurra
skilyrða og bindur auðvitað ekki
hendur eins né neins um eigin
þingmál. - Og frumvarp okkar
um flutningsskyldu og -rétt
byggist á skýrslu fjölmiðla-
nefndarinnar frá í apríl.“
Engin ástæða til mógunar
„Engin dul er á það dregin í
greinargerð með frumvarpinu
heldur þvert á móti prentaðar
þar orðréttar helstu niður-
stöður skýrslunnar um þetta
efni, og starfi nefndarinnar
hampað sem grundvelli vænt-
anlegrar löggjafar. Engin ástæða
til móðgunar þar eða ásakana
neinskonar. Við hefðum
kannski átt að birta
líka nöfn nefhdar-
manna? Hér eru
þau: Karl Axels-
son lögfræðingur,
Kristinn Hallgrims-
son lögfræðingur, Hanna
Birna Kristjánsdóttir frá
Sjálfstæðisflokknum, Pétur
Gunnarsson frá Framsóknar-
flokknum, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir frá Samfylkingunni,
Kolbrún Halldórsdóttir frá
Vinstri hreyfingunni - Grænu
framboði og Magnús Þór Haf-
steinsson frá Frjálslynda flokkn-
um. Honni soit qui mal y pense,
einsog þar stendur.“
Mörður Árnason alþingismaður ritar á mordur.is
Vigdís Grímsdóttir segir slmaat virðast veita ótrúlega mörgum
djúpa ánægju.
„Ég veit hver þú ert og hvað þú ert að gera"
Það virðast ótrúlega margir hafa mikla og djúpa ánægju
af því að gera símaat - sem er auðvitað bráðskiljanlegt - af
því að það er ágætis dægrastytting ef maður hefur ekkert
betra við tímann að gera og þá ekki síður ef maður hefur
alið þann draum sér við brjóst að verða einhvemtímann
leikari og fá að leika í dramatísku hrekkjusvínsleikriti.
í símaatinu getur maður notið beggja þessara
möguleika - að drepa tímann og leika - fyrir utan að
auðvelt reynist að kalla fram afar ólíkar hliðar per-
sónuleikans; en hver það er sem fær að njóta sín
hverju sinni, fer náttúrlega eftir því hver tilgangur
símaatsins er. Maður getur til að mynda, í sama símaati,
fengið útrás fyrir alls kyns aðskiljanlegar náttúmr og ónátt-
úrur þess utan sem maður getur líka dillað blíðlega hinum
yndislegri eða óyndislegri hvötum.
Manni er Lflca aldeilis létt um vik á þessum síð-
ustu og bestu; maður hringir bara úr óskráðum
síma og byijar svo að hamast við að villa á sér
heimildir. Það að villa á sér heimildir er ekki síð-
ur hægt með alls konar einföldum leiðum á net-
inu og svo auðvitað í ýmsum gerðum skáldskapar,
einsog allir vita, en einhvemveginn virðist iðjan einfald-
lega verða ennþá meira spennandi með símtólið eitt að
vopni. Að minnsta kosti finnst sumum það.
Verknaðurinn virðist nefnilega
verða raunverulegri: maður er
nálægari „fómarlambinu“
þótt maður sé langt í burtu,
getur með léttum leik
ímyndað sér að maður sé
rétt hjá, hími kannski á
hæðinni fyrir neðan eða
ofan, jafnvel í húsinu á
móti, eða í næstu götu:
maður getur ímyndað sér allt
og er næsta ömggur að leika sér
við fólk og að fólki án þess að það
viti að þetta er maður sjálfur, heill og
hálfúr, og umfram allt ömggur í krafti
leyndar og leiks - enda þótt númerið
komi upp á allra nauðsynlegustu
stöðum einsog til dæmis hjá öll-
jjMað-
u* getur til að
í sama
ss«i »áegœa
,... VUmo«efeeð"
mogulegum \ hvÖtuin»
og omöguleg-
um deildum lög-
reglunnar. En það er
nú sennilega einmitt það sem fólk veit kannski ekki
(þótt furðulegt sé) þegar það setur upp leynisvipinn
sinn, kalfar fram litla leynimanninn sinn, smokrar sér úr
sínu venjulega hlutverki og í hið óvenjulega og byrjar að
munda símann sinn í felum úti í skoti þegar enginn sér.
Kannski veit fólk alls ekki að það er alltaf einhver þama
úti sem veit hvað er í gangi, einhver þama úti sem veit að
sæta litla kisulega röddin sem segir orðrétt: „varaðu þig, þú
ert aldrei ein á ferð," er ekkert sérlega kisuieg heldur gróf
og dimm - já, kannski veit símaatarinn ekki að þessi ein^
hver þama úti sem hlustar - veit mætavel hver hann er,
veit hverju hann leynir, veit hvar og hvers vegna hann er að
þessu kisulega nuði og nuddi í ókunnugu fólki.
Ég skrifa þennan kjallara, ef ske kynni að sá sem nýtur
þess að mjálma blíðlega í símann sinn undir röngu nafni
og rödd og heldur að hann sé að hræða miðaldra konu og
sjálfsagt miklu fleiri, hafi hreinlega gleymt því að hann býr
í snarvirku upplýsingaþjóðfélagi og það kunni þess vegna
að vera hætta á að hann fái töluvert hundslega heimsókn
einn daginn þegar hann mjálmar sem hæst. Annað eins
hefur nú gerst - maður minn. Annars em þetta bara elsku-
leg vamaðarorð til mjálmandi felupúka á fallegum og frið-
sælum föstudegi.
Vemm góð hvert við annað.
ja.lla.ri
Unllnnmnr Unlnnenn
Hallgrímur Helgasor^
Viðtökum við
fréttaskotum allan
sólarhringinn. Fyrir hvert
fréttaskot sem birtist, eða
er notað í DV, greiðast
3.000 krónur. Fyrirbesta
fréttaskotið í hverri viku
greiðast 7.000.
Fullrar nafnleyndar
er gætt.
Síminn er
550 5090
SEFUR ALDREI
10.000.-krónur
fyrir
góða
frétt *