Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2006, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006
Fréttir DV
Dópíflugi
Fíkniefnin eiga það til
að ferðast með innanlands-
flugi þegar þau eru flutt á
milli bæjarfélaga hér á
landi. Lögreglan á Egils-
stöðum lagði í fyrrakvöld
hald á um 15 grömm af
hassi sem komu með inn-
anlandsflugi á Egilsstaða-
flugvöll. Var karlmaður á
Reyðarfirði handtekinn í
samvinnu við Lögregluna á
Eskifirði. Viðurkenndi mað-
urinn að eiga efnið sem
hann sagðist ætla bæði til
eigin nota og til sölu. Málið
telst upplýst.
Ekkert
dagforeldri
á Húsavík
Bæjaryfirvöld á Húsa-
vík hafa ákveðið að
kanna hjá foreldrum
bæjarins hvort þörf sé á
þjónustu dagforeldra í
bænum en engin dag-
mamma hefur verið
starfandi í sveitarfélaginu
undanfarið ár. Foreldrum
hefur staðið til boða leik-
skólavist fyrir böm sín frá
níu mánaða aldri og hef-
ur biðtími eftir vist verið
almennt stuttur. Hins
vegar hefur ekki verið í
boði vist fyrir böm undir
m'u mánaða aldri og hafa
því árstíðabundnir
biðlistar myndast.
Olii ónæði
Kona úr Keflavík, sem
virðist hafa dregið helgar-
skemmtunina á langinn,
ónáðaði nágranna sína í
fyrradag er hún hringdi
dyrabjöllum þeirra í sífellu.
Um klukkan hálfníu var
óskað eftir aðstoð lögreglu
vegna konunnar sem var í
annarlegu ástandi, líklega
undir áhrifjum lyfja eða
áfengis. Býr hún í sambýlis-
húsi og vom nágrannarnir
orðnir þreyttir á sífelldum
dyrabjallahringingum. Lög-
reglumenn fóm á staðinn
og fékk konan að gista
fangageymslu lögreglunnar
þar tíl ástandið á henni lag-
aðist eftir góðan svefn.
Sigríður Edith Gunnarsdóttir er afar ósátt við hundaræktandann Orra Dór
Guðnason Hún keypti hund af Leonberger-kyni hjá honum fyrir sjö mánuðum og
nú hefur Orri Dór tekið hundinn af henni vegna meintra vanefnda á greiðslu. Sig-
ríður segist hafa greitt umsamið verð fyrir hundinn sem hefur verið syni hennar
stoð og stytta í erfiðri glímu við veikindi.
Móðir segir hundi hafa verið
ræat frá sjáku barni kennar
Róbert Heiðar Halldórsson
Saknar hundsins síns sem hef-
ur verið stoð hans og stytta í
erfiðum veikindum.
Sigríður keypti hundinn Akkiles sem er af Leonberger-kyni fyrir
um sjö mánuðum af hundaræktandanum Orra Dór Guðnasyni
handa ellefu ára syni sínum, og greiddi fyrir 250 þúsund krónur.
Þá var Akkiles átta vikna gamall og hefur síðan dafnað og vaxið í
umsjón Sigríðar og sonar hennar Rðberts Heiðars. Allt þar til í
síðustu viku þegar Orri Dór fékk hundinn lánaðan til sýningar.
Að sögn Sigríðar neitar Orri að láta hundinn af hendi jafnvel þótt
hún hafi að eigin sögn greitt fyrir hundinn að fullu.
„Það er eins og það hafi verið tek-
inn partur af manni eftír að hann
Akkiles var tekinn frá okkur,“ sagði
Sigríður í samtali við DV í gær. Hún
sagði að þetta hefði haft sérstaklega
slæm áhrif á son hennar, Róbert
Heiðar, en hann og hundurinn em
hinir mestu mátar.
í geislameðferð
Sigríður sagði son sinn hafa glímt
við afar erfið veikindi og hundurinn
Akkiles hefði verið stoð hans og stytta
í þeim veikindum. „Hann hefur þurft
að gangast undir geislameðferð á átta
vikna frestí vegna frumubreytinga og
það reynir á lítinn líkama. Auk þess
hefúr lungað fallið saman í honum og
það er óhætt að segja að hundurinn
hafi létt honum lífið í þessum veik-
indum," sagði Sigríður.
Alltaf í góðu skapi
Sigríður sagði það eitt meginein-
kenna Leonberger-kynsins að
hundurinn væri alltaf í góðu skapi.
„Ég hef sagt það við son minn þegar
hann hefur verið niðurdreginn að
fara út með hundinn að ganga. Það
bregst ekki að hann kemur glaðari
heim eftir göngutúrinn. Hann spurði
mig eitt sinn hvort hundurinn fyndi
það á sér þegar honum liði illa og ég
sagði að svo væri," sagði Sigríður og
lýstí ástandinu á heimilinu eftír hvarf
Akkilesar eins og að náinn ættingi
„Hann hefur þurft að
gangast undir geisla-
meðferð á átta vikna
fresti vegna frumu-
breytinga og það
reynir á lítinn líkama.
Auk þess hefur lungað
fallið saman í honum
og það er óhætt að
segja að hundurinn
hafi létt honum lífið í
þessum veikindum."
væri horfinn á braut. „Við gáfum hon-
um allt sem við áttum.“
Deilur um greiðslur
Að sögn Sigríðar segist Orri hafa
tekið hundinn þar sem hún hafi ekki
staðið við umsamdar greiðslur fyrir
hundinn. Sigríður segir það alrangt.
Hún hafi átt að ganga frá síðustu
greiðslunni fyrir 1. mars en gert það á
mánudaginn. Þrátt fyrir það vilji Orri
ekki afhenda henni hundinn aftur,
hundinn sem
hún á og
hefur
borgað
fyrir.
Orri
Dór
sagð-
ist
ekkert
hafa
við
blaða-
mann
DV að
tala þeg-
arhaftvar
sam-
band
við
hann í
gær.
Leonberger-kynið Hund-
urinn Akkiles sem var num-
inn á brott af heimili sínu er
afþessu kyni.
Hvað er að gerast, Geir?
Svarthöfði hefur alltaf verið mik-
ill aðdáandi Geirs Ólafssonar tón-
listarmanns. Allt frá því að þetta
lipra glæsimenni kom fyrst fram á
sjónarsviðið og söng Sinatra-lög
eins og ekkert væri. Uppáklæddur
og kátur steig hann lipur dansspor
við ljúfan sönginn. I huga Svart-
höfða, og ekki síður Svarthöfðu, var
þetta ekki spurning um hvort heldur
hvenær heimurinn allur myndi slá
eign sinni á þennan hæfileikaríka
skemmtikraft og kvennaljóma.
Líða nú árin. Enginn er spámað-
ur í sínu föðurlandi og á það við um
Geir umfram aðra menn. Þannig
bauð hann fram krafta sína í
Svarthöfði
Eurovision en var alfarið hafnað af
þáverandi útvarpsstjóra, Markúsi
Erni, sem væntanlega hefur þá verið
kominn í huganum tíl Kanada. Og
þegar Geir svo loks fékk tækifæri í
forkeppninni sáu íslendingar ekki
ljósið fremur en oft áður. Þrátt fyrir
nokkra yfirburði komst Geir ekki
upp úr riðlinum.
Svarthöfði hefur haldið í sína
tröllatrú á Geir. Eða allt þar til hann
slysaðist inn á sjónvarpsstöðina
Hvernig hefur þú það?
„Það gengur vel, en siminn hringir mikið, “ segir Sif Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri
Vetrarhátíðar Reykjavikurborgar sem haldin er um helgina.„Stressið er farið að gera
vart við sig. Svona hæfilega. En það heldur manni bara á tánum. Eftir helgi þegar
Vetrarhátiðin erafstaöin ætla ég svo I klippingu og nudd.“
Sirkus og horfði á þátt sem
heitir „Kallarnir". Þar er
allt í öllu fyrirbærið
Gillzenegger - frægur fyrir
að vera frægur. Slíkum hampa ís
lendingar sem aldrei fyrr. í ung
dæmi Svarthöfða hefðu slík
púðruð, pungrökuð og vöxuð
tildurmenni einfaldlega ver-
ið kölluð píkur. En svo virð-
ist sem GUlzenegger þessi sé
ekki allur þar sem hann er
séður. Hefur honum tekist
að véla hinn bláeyga Geir
út í ósmekklegheit sem
vart er hafandi eftír. Svart-
höfði þurfti að halda fyrir
augu Svarthöfðu þar sem
hann fylgdist furðulostinn með
þessu fyrrverandi átrúnaðargoði
heimilisins riðlast á gúmmídúkku.
Sem hann kallar Halle Berry. Ekki
meir, Geir, af slíku. Náum áttum.
Svarthöfði