Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2006, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006
Fréttir DV
Eiríkur Jónsson
• Allt stefnir í
þorskastríð á ís-
lenska tónlistar-
markaðnum. Þeir fé-
lagar, Einaröm
Benediktsson og
Curver, sem áður hét
Birgir
öm Thoroddsen, em
að gefa út disk með
heitinu In Cod We
Trust með tilvísun í
íslenska þorskinn. Á
meðan stofnar Stefán
Hjör-
leifeson í tónlist.is
nýtt útgáfufyrirtæki
sem hann nefnir Cod
Music. Tónlistar-
heimurinn títrar...
• Aðrar hreyflngar er að finna hjá
tónlistarmönnunum
sem áttu sér athvarf
hjáKlinkogBankí
gamla Hampiðjuhús-
inu sem Björgólfur
lánaði þeim. Gus
Gus, Trabant og fleiri
hljómsveitir hafa
komið sér fyrir í kjallaranum í gömlu
Víðisversluninni í Starmýri þar sem
10-11 ævintýrið hófst hjá Eiríki Sig-
urðssyni sem þar steig sín fyrstu spor
í kaupmennsku undir handarjaðri
föður síns. Hafa tónlistarmennimir
komið sér vel fyrir í kjallaranum og
nefna aðsetrið eftír götunni: All-Star-
mýri...
• Hommi og Nammi slógu í gegn
svo um munaði sem
aðstoðarmenn Silvíu
Nóttar í Eurovision. í
öðm hlutverkinu var
leikarinn Bjöm Thors
sem gaf aldrei
tommu eftir í túlkun
sinni á gleði- og
fylgdarsveini Silvíu og áttí fyrir
bragðið stóran þátt í sigrinum. Nú
herma fréttír að Bjöm Thors eigi
erfitt með að koma sér út úr hlut-
verkinu aftur og stefni jafnvel í að
festast þar. Ólíkt Silvíu Nótt sem
skiptír yfir í hina einu og sönnu
Ágústu Evu Erlendsdóttur hvenær
sem er, eins og ekkert sé. Nema
Bjöm sé að leika sér..
• Annars andar köldu á milli Birgittu
Haukdal og Silvíu
Nóttar eftir
Eurovision. Ekki var
nóg með að farða
þyrfti þær hvora í
sínu homi í útsend-
ingarskemmunnar.
Þegar Garðar Cortes
huggaði Birgittu Haukdal í lok
keppninnar svaraði Birgitta um hæl:
„Það er ekki sárt að tapa þegar mað-
ur veit úrslitín fyrirfram"...
• Knattspymuleikur ársins fer fram á
Stamford Bridge í
London í dag þegar
Chelsea tekur á mótí
stjömuliði Barcelona
á heimavelli sínum.
Löngu er uppselt á
leikinn og reyndist
ógjörlegt að útvega
miða þegar reynt var
fyrir löngu. Athygli vekur þó að ís-
lendingar verða fjölmennir á vellin-
um þar sem íslensku bamkamir
höfðu tryggt sér mikið magn að-
göngumiða. Má búast við að fá-
mennt verði í starfemannaliði bank-
anna í dag en Stamford Bridge tekur
42 þúsund áhorfendur í sætí. íslend-
ingamir á leiknum skipta víst þús-
undum...
Bandaríska geimferðastofnunin kynnti fyrir helgi metnaðarfulla áætlun, sem hrint
verður af stað á næstu árum. Ætlunin er að leita markvisst í geimnum til að finna
líf á öðrum hnöttum.
* m
m'mrí
ÍFit'.
Lítið fjármagn FormaðurNASAfMichael
Griffir), og aðstoðarkona hans, Shana Dale,
færðu rök fyrir þeirri summu sem þeim
fannst réttust fyrir starfsemi NASA fyrir vís-
indanefnd bandaríska þingsins í Was-
hington fyrir helgi. Allt kom fyrir ekki, í fjár-
lögum var skorið veruiega niður i hlut NASA
og í kjölfarið gekk einkastofnunin SETI til liðs
Vetrarbraut Visindamenn hafa
tiltekið tíu sólkerfi, sem þykja lik-
leg til að hýsa líflikt því sem
þekkist á jörðu. 2014 og 2020
verður sérsmiðuðum leitarvélum
með öflugum sjónaukum skotið
á sporbaug til að skoða þau.
við áætlunina um að finna llf i geimnum
Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, varð fyrir áfalli
fyrir helgi þegar dregið var verulega úr fjármunum til
hennar í nýjum fjárlögum Bandaríkjastjórnar. Afleiðing-
arnar eru meðal annars þær að einkasamtökin SETI
þurftu að ganga inn í áætlun stofnunarinnar til að finna
líf á öðrum hnöttum.
Árin 2014 og 2020 verður sér-
hönnuðum leitarvélum skotið á
braut um jörðu. Þær em búnar
öflugum sjónaukum og verður
aðallega beint að tíu sólkerfum,
sem líkleg þykja til að hýsa líf líkt
því sem þekkist á jörðu.
Topp tíu listi sólkerfa
„Það eru um 400 milljarðar
stjarna í vetrarbrautinni okkar
þannig að við getum ekki beint
leitarvélunum að hverri einni og
einustu," sagði Margaret Turn-
bull hjá SETI á fundi þar sem
hún kynnti topp tíu listann yfir
líkiegustu sólkerfin.
Á listanum er að finna sól-
kerfi af svipaðri stærð, aldri og
samsetningu og okkar. Þar sem
líklegt er að plánetur með vatni
líkar jörðinni þrífist. Einnig
mega sólirnar ekki skína of
skært, því þá er ekki hægt að
skoða pláneturnar með berum
augum.
Reyndar er strax byrjað að
deila um listann. Finnst mörg-
um stjörnufræðingum að ekki
eigi að takmarka hann við það
sem við þekkjum. Eins líklegt sé
að líf á öðrum hnöttum sé ekki
líkt því á jörðu.
Eigendur Microsoft
fremstir í flokki
En vegna þess að Bandaríkja-
stjórn skar niður af fjármagni til
NASA á fjárlögum ársins 2007
þurfa einkaaðilar að punga út fyr-
ir áætluninni. Samtökin SETI (Se-
arch for Extraterrestrial Intellig-
ence) gripu tækifærið og sitja því
líklega fyrst að upplýsingum um
líf á öðrum hnöttum, ef það
finnst.
Meðal eiganda samtakanna
eru Microsoft-stofnendumir Paul
Allen og Nathan Myhrvold. Fleiri
auðkýfmgar em í hópnum en j
margir vilja njóta nafnleyndar.
Eftirsjá nægði ekki breska sagnfræðingnum
Þriggja ára fangelsi út af Helförinni
Réttur í Austurríki dæmdi í gær
enska sagnfræðinginn David Irving
í þriggja ára fangelsi. Irving sagði
opinberlega árið 1989 að Helförin
hefði aldrei átt sér stað þegar hann
átti stutta viðdvöl í Austurríki.
Þetta er refsivert samkvæmt aust-
urrískum lögum og hægt að dæma
menn í allt að tíu ára fangelsi fyrir.
Irving sagðist hafa skipt um skoð-
un en sú yfirlýsing fékk ekki hljóm-
grunn hjá dómurum.
„Rétturinn lítur svo á að Irving
hafi ekki skipt almennilega um
skoðun. Eftirsjá hans var aðeins í
orði, ekki á borði," sagði dómarinn
Peter Liebetrau þegar hann til-
kynnti úrskurðinn.
Irving, sem er 67 ára, var í upp-
námi í gær og áfrýjaði dóminum
samstundis. Hann var handtekinn í
stuttri heimsókn til Austurríkis í
haust. „Ég er ekki í afneitun varð-
andi Helförina. Ég hef skipt um
skoðun," sagði Irving á leiðinni í
réttarsalinn. Hann viðurkenndi að
hafa afneitað því árið 1989 en sagð-
ist hafa skipt um skoðun árið 1991.
„Þá komst ég yfir Eichmann-
skjölin og sá að þetta var rétt. Nas-
istar myrtu milljónir gyðinga,"
sagði Irving. Fyrir rétti lagði sækj-
andinn hins vegar fram viðtöl við
Irving, sem tekin voru eftir hin
meintu skoðanaskipti árið 1991 og
þar kom skýrt fram að Irving hélt
áfram að neita því að Helförin
hefði átt sér stað.