Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2006, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006
Sport DV
VETRARÓLYMPÍULEIKARNIR ÍTÖRÍNÓ
Markaveisla
Margrétar Láru
Margrét Lára Viðarsdóttir,
framherji kvennaliðs Vals í fót-
bolta sem skoraði 16 mörk í 3
leikjum Vals í Reykjavíkurmót-
inu í fyrra, hefur skorað níu
mörk í tveimur fyrstu leikjum
Vals á Reykjavíkurmótinu í ár,
fjögur
mörk í
7-2
sigri á
Fjölni
og
fimm
mörk í
9-0
sigri á Fylki. Margrét Lára hef-
ur því skorað 25 mörk í fimm
leikjum sínum á Reykjavíkur-
mótinu eða fimm mörk að
meðaltali í leik.
Gylfi inn fyrir
Grétar
Gylfi Einars-
son hefur verið
kallaður inn í ís-
lenska landslið-
ið þar sem Grét-
ar Ólafur Hjart-
arson, framherji
KR, er meiddur og getur því
ekki leikið með liðinu í vin-
áttuleiknum gegn Trínidad og
Tóbagó 28. febrúar næstkom-
andi. Gylfi Einarsson er leik-
maður enska liðsins Leeds
United en hefur aðeins spilað
einn af síðustu 22 leikjum liðs-
ins og kom þá inn á sem vara-
maður þremur mínútum fyrir
leikslok.
Tryggvi og
Sigurvin með
fimm saman
Tryggvi
Guðmundsson
og Sigurvin
Ólafsson voru í
miklu stuði í 6-
0 sigri FH á
Þrótti í deilda-
bikarnum á
dögunum.
Tryggvi skoraði
þrjú mörk og
Sigurvin bætti við tveimur en
báðir eru þeir uppaldir Eyja-
menn og spila hlið við hlið á
ný eftir níu ára fjarveru. Sigur-
vin skoraði tvö fyrstu mörk sín
fyrir FH með skalla og bæði
eftir sendingar frá Ólafi Pál
Snorrasyni. Tryggvi skoraði
eitt mark með skalla, eitt úr
víti og eitt eftir að hafa sloppið
einn í gegnum vörn Þróttar.
Totti bjartsýnn
og ætlar á HM
Luciano Spalletti, þjálfari
Roma, sagðist vera hissa á því
hversu létt væri yfir Francesco
Totti þrátt fyrir að hann væri að
koma úr stórri skurðaðgerð þar
sem gert var að meiðslum þeim
sem hann varð fyrir í deiidarleik
um síðustu helgi. Hinn 29 ára
fyrirliði Roma-liðsins ökkla-
brotnaði í 1-0
sigri á Empoli
um síðustu helgi
en er staðráðinn í
að ná sér sem
fyrst og ætlar að
spila með ítalska
landsliðinu á HM
í Þýskalandi í
sumar.
Frammistaða Bode Miller á vetrarólympíuleikunum verður að teljast einhver
mestu vonbrigði leikanna til þessa. Hann hefur ekki komist á verðlaunapall í
þeim fjórum greinum sem hann hefur þegar keppt í og á nú aðeins eitt tækifæri
eftir. Hann segir þó sjálfur að með smá heppni hefði hann hæglega getað verið
kominn með fjögur gull um hálsinn.
Fyrir fáeinum vikum sagði skíðamaðurinn Bode Miller í opin-
skáu viðtali við 60 Minutes að honum væri í raun alveg sama
um ólympíuleikana. Hann hefur nú keppt í fjórum greinum
og ekki unnið til verðlauna í neinni þeirra. En hann segir að
hann hefði auðveldlega getað unnið gull í þeim öllum.
Miller á tvenn silfurverðlaun frá
síðustu ólympíuleikum þar sem
hann vakti einna fyrst athygli á sér.
Síðan þá hefur sigurganga hans ver-
ið mikil en hann hefur unnið marga
heimsbikar- og heimsmeistaratitla.
Ólympíugullið vantaði og nú verður
hann að treysta á að það takist í svig-
inu.
Besti árangur hans í Tórínó er
fimmta sætið í bruninu. Hann var
með forystuna í alpatvíkeppninni
þegar hann var dæmdur úr leik fýrir
að missa naumlega af einu hliðinu
og þurfti að hætta í risasviginu eftir
að hann keyrði inn í eitt hliðið. Hann
varð svo sjötti nú síðast í stórsviginu.
Kannski gull
„Ef hlutimir hefðu gengið vel
væri ég kannski með fjcira verð-
launapeninga um hálsinn á mér nú
þegar," sagði Miller. „Ogkannski allt
gullverðlaun." Miller var beðinn um
að greina hvað fór úrskeiðis í þess-
um keppnum. „í bruninu voru fjórir
menn einfaldlega hraðari en ég,"
sagði hann og viðurkenndi svo að
hann hefði gert klaufaleg mistök í
alpatvíkeppninni og risasviginu.
Hann sagði svo að hann hefði verið
óheppinn í fyrri umferð stórsvigsins
og svo keyrt á stein í þeirri síðari.
Bode Miller sýndi hvað hann get-
ur í síðari ferð stórsvigsins. Hann var
tólfti eftir þá fyrri en náði sér vel á
strik í þeirri síðari og hélt meira að
segja forystunni um skamma stund.
Eins og sjónvarpsáhorfendur vita og
hafa tekið eftir er ávallt vel fylgst
með þeim sem er með forystuna
hverju sinni á sérstökum palli í
markinu. Miller naut sín í sviðsljós-
inu, þóttist leika við myndavélina og
rak eitt sinn tunguna út úr sér. Svo
mátti hann fylgjast með hverjum
kappanum á fætur öðrum bæta tíma
hans.
Hver er Ted Ligety?
Eina bandaríska gullið í alpa-
greinunum féll í skaut Ted Ligety í
alpatvíkeppninni. Hann verður því
að teljast sigurstranglegur í sviginu á
laugardaginn sem er síðasta tæki-
færi Miller til að ná sér í verðlaun.
Miller er reyndar einn af afar fáum
keppendum sem eru skráðir í allar
fimm keppnir alpagreinanna og er
aðeins annar tveggja skíðamanna í
sögunni sem hefur unnið heimsbik-
armót í öllum fjórum keppnisgrein-
unum.
Annar Bandaríkjamaður sem var
líklegur til afreka var Daron Rahlves
sem hefur á sínum ferli unnið tólf
heimsbikarmót og eina grein á
heimsmeistaramóti. Hann keppir
ekki í svigi og því útséð að besti ár-
angur hans á Ólympíuleikum er sjö-
unda sætí. Hann er 32 ára og hefur
keppt á þrennum ólympíuleikum.
„Ef þú nærð í guil á ólympíuleikum
skiptir allt annað engu máli," sagði
hann.
Sáttur við sitt
Miller hins vegar er ekki á sama
máli. í hans augum snýst þetta um
að vera sáttur við sitt í stað þess að
ná betri árangri en aðrir. Hann vill
veita öðrum innblástur með skíða-
mennsku sinni.
Alberto Tomba vann fjöldamarg-
ar keppnir á sínum ferli og var
spurður um MUler. „Það er ekki auð-
velt að komast aftur á sigurbraut eft-
ir að ganga í gegnum svona erfitt
tímabil," sagði ítalska goðsögnin. Og
svo virðist sem væntingamar til Mill-
er hafi farið síminnkandi með hverri
grein. Eftir fyrri ferðina í stórsviginu
á mánudag mátti heyra í þulinum á
staðnum. „Frábær tími þrátt fyrir öll
mistökin. Til hamingju! Við sjáumst í
síðari ferðinni."
eirikurst@dv.is
Bandaríkjamenn elska ísdans á ólympíuleikunum en hafa beðið í 30 ár eftir verðlaunum
Gull til Rússa en langþráð stund Bandaríkjamanna
Það hefur lítið gengið
hjá ísdönsurum
Bandaríkjamanna á
ólympíuleikun
um und-
anfarna
þrjá
áratugi
og því var
silfurverð-
launum
Tanith
Belbin og Ben
Agosto í ísdansi vel
fagnað í þeirra her-
búðum enda fyrstu
verðlaun Banda-
ríkjamanna í þessari
grein síðan á ólympíu-
leikunum í Innsbrúck
1976. Þá unnu þau
Colleen O’Connor og
Millns
bronsið, einu
verðlaun
Bandaríkja-
manna í ís-
dansi til
þessa. Frá
þeim tíma
hefur það
komið í hlut
Rússa,
Frakka,
Englend-
inga og
Kanadabúa
að stíga upp á verð-
Stór stund þrátt fyrir bara silfur Benjamin Agosto
ogTanithBelbm unnu sig upp um fjögursætiog unnu
silfurverðlaun iísdanskeppniólympíuleikanna iTórinó
Nordic Photos/Getty
launapallinn á ólympíuleikunum.
Þau Belbin og Agosto voru þó
ekkert á leiðinni að keppa á ólymp-
íuleikunum fýrir tveimur mánuð-
um en þá hafði Tanith Belbin ekki
enn fengið bandarískan ríkisborg-
ararétt en hún er fædd í Kanada.
Þau höfðu þrisvar sinnum orðið
bandarískir meistarar en ríkisborg-
ararétturinn hennar Tanith Belbin
stóð í vegi fyrir að þau gætu keppt
fyrir Bandaríkin á ólympíuleikun-
um. Belbin fékk hins vegar banda-
rískt ríkisfang fyrir sjö vikum eftir
að hafa fengið flýtimeðferð í kerf-
inu.
__________ „Þetta hefur
verið rússibana-
ferð hjá okkur',
það stefndi í það á
tímabili að við
fengjum ekki að
vera með en nú stöndum við hér
með verðlaunin um hálsinn," sagði
Ben Agosto eftir að úrslitin voru ljós
en þau eru líkleg til afreka á kom-
andi leikum eftír fjögur ár.
Hún er aðeins 21 árs, hann 24
ára og því verður gaman að fýlgjast
með þeim í Vancouver.
Rússar héldu áfram að safna
gullverðlaunum þegar þau Navka
og Kostomarov unnu þriðja gull
sinnar þjóðar I þremur greinum.
Evgeni Plushenko vann í karlaflokki
og þau Tatiana Totmianina og Max-
im Marinin unnu parakeppnina. Ir-
ina Slutskaya er síðan sigurstrang-
legust í kvennakeppninni og gæti
því kórónað yfirburði Rússlcmds í
listhlaupi á skautum á ólympíuleik-
unum í Torínó.