Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2006, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2006, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 Llfíð DV 1. Gunnar í Krossinum Gunnar Þorsteinsson er sjaldan kallaöur annað en GunnarJ Krossin- um“. Hann erjú andlit safnaöarins útdviö, sterkur leiötogi með umdeildar skoöanir. 2. HelgiíGóu Helgi Vilhjdlmsson stofnaöi sælgætisgerð- inaGóuáriö 1968og hefur byggt upp veldi sittsíðan.Hann rekur llka KFC á Islandi. 3. Jónas í hvalnum Jónas þessi vildi ekki hlýöa Guöi Bibtlunnar. Guö létþvl hval gleypa Jónas og I maga hans dvatdi hann I þrjd daga. Dvölin var Jónasi góö lexla og hann fóreftir vilja Guðs upp frá þvl. 4. Jóhannes í Kompás Meö góörí frammistööu I fréttaskýringaþættinum Kompás á NFS erJó- hannes Kr. Kristjánsson búinn aö tryggja sér 11 viöurnefniöjóhannes I Kompás''. 5.9. Svava í 17 Svava Johansen er „Svava 117",enda er hún allt I öllu I verslun- arveldinu 17,eðaNTC eins og þaö heitir vlst. 6. Júlli í Draumnum Júllus Þorbergsson versl- unarmaður rekur Drauminn, eðalsjopp- una á Rauðársstig. Hann er aldrei kallað- ur annað enjúlli I Draumnum". 7. Heiða í Unun Unun hætti áríö 1999 en Heiða er enn kennd viö bandiö, kannski til aðgreiningar frá Heiðu „Iidotinu"sem fóraö gefa út lög undir nafn- inu Heiöa. Vinsælt er að kenna tónlistarmenn við böndin sin, sbr.„Krummi I Minus" og„8iggi I Maus". 8. Guðmundur í Byrginu Guðmundur Jónsson er forstöðumaöur Byrgisins og er betri en enginn þegar kemur að björgun ógæfumanna. Guðmundur er„í Byrginu". . Gulla í Stelpunum Guðlaug Ellsabet Ólafsdótt- ir var ekki séríega þekkt leikkona áöur en hún sló I gegn I Stelpunum. Þvl er hætt viö að„l Stelpun- um“muni fylgja henni um hrlð. 10. Jóhannes í Bónus Jóhannes Jónsson var eins og kunnugt er prentari einu sinni.Svo datt honum í hug aö opna matvörubúö. Og sjá: JóhannesJ Bónus“er staöreynd. , Nýr grínþattur Sigtið, hefur göngu sína á Skjáeinum fimmtudags- Frimann Gunnarsson Vill bjarga heim inum. V ■ Halfdór, Gunnar og Friðrik Allt íöllu I Sigtinu „Þetta eru leiknir grfnheimilda- þættir, „mockumentary" hefur þetta verið kallað," segir Gunnar Hansson leikari sem bregður sér í hlutverk Frímanns Gunnarssonar sjónvarps- manns í þáttunum Sigtið. Gunnar skrifar þættina ásamt Halldóri Gylfasyni og Friðriki Friðrikssyni, sem leika viðmælendur Frímanns, en bróðir Gunnars, vídeólistamað- urinn Ragnar Hansson, kemur líka að skrifunum. Framleiddir verða átta þættir af Sigtinu og sá fyrsti er á dagskrá Skjás eins fimmtudags- kvöldið 9. mars. „Háðildarmyndir" Hinn svokallaði „mockument- ary"-stíll dregur nafn sitt af sögninni mock (að hæðast að) og document- ary (heimildamynd). „Háðildar- mynd" gæti því óþjál þýðingin verið. Spinal Tap er líklega fyrsta og fræg- asta „mockumentary“-kvikmyndin, en karlarnir sem stóðu á bakvið myndina hafa síðar gert myndir í svipuðum stíl, snilldarræmur á borð við Waiting for Guffman og The Mighty Wind. Bresku gamanþætt- irnir The Office, Ali G og Alan Partridge eru hluti af „mockument- ary“-línunni og Gunnar segir öll þessi verk hafa haft áhrif á þá félaga. Hann nefnir einnig til sögunn- ar bresku þættina „Human Rema- ins“, sem tók á bresku fjölskyldu- lífi. Skjár einn hef- ur þegar sinnt ís- lensku deild þessa gríns ágætíega, með þáttum Silvíu Nóttar og Johnny National og síðast en ekki síst þáttum Þorsteins Guð- mundssonar um At- vinnumanninn. En nú er sem sagt kom- ið að Sigtinu hans Frímanns Gunnars- sonar. „Hann vill vera agalega alvarlegur og menningarlegur, “ segir Gunnar Hansson um hugar- fóstrið. „Hann sér þáttinn sinn sem einskonar blöndu af 60 Minutes, South Bank og Sjálfstæðu fólki. Hann vill breyta heiminum og lítur á Kofi Annan og Opruh Winfiey sem jafningja sína. Það sjá þó flestir aðrir að hann er fráleitt í þeim flokki." Vona það besta Frímann tekur fyrir nýtt umíjöll- unarefni í hverjum þætti. Hann mun m.a. fjalla um þráhyggjur, dauðann, fordóma og listina í þáttum sínum. Frímann er það sjálfhverfur að í síð- asta þættinum ætlar hann að fjalla um sjálfan sig. Gunnar segir að höfundarnir séu stoltir af þáttunum og þeir hlakki til að bera þá á borð fyrir áhorfendur. „Já, okkur finnst þetta mjög fyndið og þeir sem við höfum sýnt þetta eru mjög já- kvæðir: En í þessum bransa kem- ur það fljótt og áþreifanlega í ljós hvort okkur hefur tekist vel upp. Það fer bara algjörlega eftir því hvort fólk hlær eða ekki. Nú get- um við lítið gert annað en að bíða og vona það besta.“ Hvar eru þau núna? Nanna Kristín Jóhannsdóttir Gengur best þegar það er brjálað að gera „Ég er alveg á fullu. Fyrst hafði höfundur lagsins sem Matti í Pöpum söng samband við mig og bað mig um að syngja bakraddir og svo byrj- aði boltinn bara að rúlla," segir Nanna Kristín sem datt úr leik f 10 manna hópnum í Smáralindinni í fyrra með laginu Solitaire. En Nanna skemmtí sér konunglega í forkeppn- inni og söng einnig bakraddir fyrir Davíð Olgeirsson og Ardísi Ólöfu Vík- ingsdóttur. „Ég var líka að syngja í Það var lag- ið um daginn. Það var mjög skemmtilegt en annars hef ég ekkert verið að æsa mig yfir þessu og hefur þetta bara komið upp í hendumar á mér. Ég er mikið að syngja við sérstök tækifæri eins og brúðkaup sem er rosalega gaman. Um daginn hringdi í mig stelpa sem heyrði í mér í brúð- kaupi og bauð mér að syngja í sínu brúðkaupi. Þannig rúllar þetta." Nanna er í hjúkrunarfræði á öðru ári og líkar það vel. Hún er nýbúin með bóklega áfangann og er byrjuð í klínísku námi á Landspítalanum. „Ég er núna að hugsa um veika fólkið. Þetta er virkiiega gefandi. Ég hafði alltaf áhuga á hjúkrunar- fræði en var alltaf að læra söng. Ég var alltaf að bíða eftir rétta augnablikinu. Það er stremb- ið að læra söng og maður getur ekki gert allt í einu. En það gengur nú yfirleitt best þegar það er brjálað að gera,“ segir Nanna sem á tvo syni, tveggja og fjögurra ára. Langar þig að taka þátt í Eurovision í framtíðinni? „Auðvitað," segir Nanna og skellihlær. „Maður var aðeins að komast bakdyramegin að þessu núna. Þetta er allt voða spennó." hanna@dv.is Idol-stjarna Nanna tókþátt I Idolinu I fyrra og datt úr leik í 10 manna hópnum ISmáralind þar sem hún söng lagiö Solitaire. Nanna Kristfn Jóhannsdóttir Söng bakraddir með þremur lög- um I Eurovision-forkeppninni og er í hjúkrunarfræði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.