Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2006, Síða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 22.02.2006, Síða 33
DV Menning MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2006 33 | Guðmundur Andri og félagar hans f Spööum Spaðaballið verðurhaldið um helgina. Þar rlkir venju■ lega almenn glaðværð. Samningurinn handsalaður Ólafur Kvaran safnstjóri Listasafns íslands oq \ iwaran satnstjóri Listasafns fslands og Birgir Már Ragnarsson framkvæmda- stióri eignarhaldsfélagsins Samson. lenska listamenn, alls um 8000 verk. Unnið hefur verið Listasafn íslands Aögangseyrir felldur niður og þjónusta aukin. Hinir ástsælu Spaðar leika og syngja í Leikhúskjallaranum á laugardags- kvöldið. Þeir eiga stóran aðdáendahóp eins og viðurnefni þeirra gefur til kynna, en í áranna rás hafa tónlistaráherslur þeirra breyst. Bíllagang eg blémapopp í allsnörpu samtali við menningarsíðu játar Guðmundur Andri Thorsson að þessa dagana geri þeir félagar í Spöðum talsvert af því að sam- hæfa leik og söng, enda varla hjá því komist að þeir ryðgi dálítið þegar aðeins er spilað einu sinni á ári. Hins vegar sé efnið gamaikunnugt og það vegi upp á móti ryðinu. Ekki Kamarorghestarnir En halda Spaðar sig alveg við það að leika bara á einu balli á ári? „Já, við segjum alltaf nei ef við erum beðnir að spila á árshátíðum eða einhverju því um líku vegna þess að okkur þykir það svo leiðinlegt. Við viljum ekki þurfa að spila Bjarnastaðabeljumar í þrjá klukkutíma," segir Guðmundur Andri og gefur í skyn að það sé alveg nóg að spila á árlega Spaðaballinu. Hverjir eru það sem koma á böllin hjá ykkur? Erþað ‘68-kynsióðin? „Nei, ekki eingöngu, við emm ekki Kamarorg- hestarnir," segir Andri og hlær. „Jú, maður sér gamalkunnug andlit á böllunum, en líka ný and- lit innan um. Margt af því fólki sem mætir á Spaðaböllin hefur fylgt okkur síðan við hófum að gefa út spólumar okkar. Það kann lögin, er dug- legt að dansa og það ríkir almenn glaðværð. Líka hef ég tekið eftir því að böm sem alin em upp við þessar spólur í bíl foreldra sinna á ferðalögum um landsbyggðina em nú orðin stór og farin að mæta á böllin.” Aðspurður hvenær fyrsta Spaðaspólan hafi komið út segist Andri ekki muna það, en hún ber heitið Lukkan, lukkan. Næsta spóla heitir Hinir ástsælu Spaðar, einmitt vegna þess að hljóm- sveitarmeðlimir höfðu heyrt að þeir væm ástsæl- ir manna á meðal. Nú em flest lögin aðgengileg á geisladiskum, enda fylgjast Spaðar vel með tím- anum. En er hljómsveitin sú sama og hún var í upphafi? „Það hefur verið einhver hreyfing á mönn- um,“ segir Andri. „Þeir koma og fara, taka sér mislöng frí og snúa síðan aftur. Engir nýir hafa gengið til liðs við okkur, enda held ég að það sé ekki auðvelt að aðlagast þessum félagsskap." Rauðir í fyrstu . Áður hafa Spaðaböll verið haldin bæði í Iðnó og á NASA, en nú verður dansað í Leikhúskjallar- anum. „Hér áður fyrr héldum við böllin í húsnæði sem hentaði okkur ákaflega vel. Það var efsta hæðin á húsi Alþýðubandalagsins við Hlemm," segir Guðmundur Andri og viðurkennir að þeir félagar hafi að minnsta kosti í fyrstu verið heldur rauðir. Hann gengur jafnvel svo langt að segja að þeir hafi verið vinstra megin við Alþýðubanda- lagið, þó að það kunni að hafa breyst. í tilkynningu hljómsveitarinnar segir að í upphafi hafi Spaðar sótt talsverð áhrif til Balkanskagans og sígauna- og gyðingatónlistar en með aldrinum hafi þeir færst nær þeirri tónlist sem þeir ólust upp við: bítlagarg og blómapopp, kántrí, blús og hliðar saman Jiliðar. Niðurstaðan er lirærigrautur af bítlamúsík, blús og gömlu- dansalögum við rammíslenska sveitasælutexta. Meðlimir Spaða eru, auk Guðmundar Andra sem syngur og leikur á gítar: Dr. Gunnar Helgi Kristinsson harmónika, Aðalgeir Arason, söngur og mandólín, Guðmundur Pálsson fiðla, Magnús Haraldsson, söngur og gítar, Guðmundur Ing- ólfsson, kontrabassi og söngur, og Sigurður G. Valgeirsson, trommur og einstaka hróp. Dansiballið hefst klukkan ellefu að kveldi föstudags, en forsala aðgöngumiða fer fram í versluninni 12 tónum. Á föstudaginn veröa opnaðar tvær sýningar í Listasafni íslands, á verkum þeirra Snorra Arinbjarnar og Gunnlaugs Blöndal Eignarhaldsfélagið Samson hefur gert samstarfssamning við safnið og ætlar að styrkja það um 45 milljónir króna á næstu þremur árum. Það breytir ýmsu. Ókeypis á Listasafn íslands í gær var tilkynnt á blaða- mannafundi að Samson eignar- haldsfélag væri nýr aðalstyrktar- aðili Listasafns íslands og á næstu þremur árum myndi félagið láta safninu í té um 45 milljónir króna. Það gerir forsvarsmönnum kleift að fella niður aðgangseyri að safn- inu og verður það gert frá og með föstudeginum. Ólafur Kvaran safnstjóri sagði það sameiginlegt mat Listasafns- ins og menntamálaráðuneytisins að það væri mikilvægt að auka aðsókn að menningarstofn- „í nágranna- löndunum jókst að- sókn að listasöfnum verulega þegar að- gangseyrir var felld- ur niður og það er okkur hjá Listasafni íslands mikið fagn- aðarefni að geta boð- ið ókeypis aðgang að safninu og sýningum. Það er von okkar að þessi ákvörðun verði til þess að breikka og stækka þann hóp sem kemur í safnið." Um leið verður þjónusta við gesti aukin með ýmsum hætti. Eitt af markmiðum Listasafnsins er að efla menntunar- og fræðsluhlut- verk sitt og því verður föstum leið- sögnum um safnið fjölgað. Þá verður opnað nýtt fræðslusetur í safninu næsta vor þar sem gestum mun meðal annars gefast kostur á að nýta margmiðlunartækni til að skoða á tölvuskjám alla listaverka- eign safnsins eftir ís- að því að setja þessi verk á tölvutækt form ásamt miklu magni upplýsinga um þann listræna menningararf þjóðarinnar sem varðveitt- ur er í Listasafni íslands. I Opnun fræðslusetursins er mikilvægt skref í að styrkja þjónustuhlutverk safnsins og að auðvelda aðgengi gesta að þessum mikilvæga þætti ís- lenskrar menningar. Sýning á verkum Snorra Arin- bjarnar ber yfirskriftina Máttur lit- arins og spegill tímans og sýning Gunnlaugs Blöndal nefnist Lífs- nautn og ljóðræn ásýnd. Báðar verða þær opnaðar á föstudaginn og það er ókeypis inn fyrir alla! Þórhildur leik- stýrir verki eftir Jelinek Leikritið Virkjunin eftir nóbels- verðlaunahafann Elfriede Jelinek í leikgerð Maríu Kristjánsdóttur verður frumsýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins 3. mars. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir. Náttúran, takmarkalaus trú á tækni og framfarir, hreyfanlegt vinnuafl og tungumálið eru meðal viðfangsefna nóbelsverðlauna- hafans Elfriede Jelinek í þessu leikverki, þar sem sem afbygging leikhússins og aðferða þess er jafnffamt í brennidepli. Á sinn kaldhæöna hátt ræðst Jelinek að goðsögnum og afhjúpar þær, eða eins og hún segir sjálf: „Konan er dæmd til þess að segja sannleik- ann en ekki lýsa hinni fögru ímynd.“ Leikendur eru meðal annarra Arnar Jónsson, Atíi Rafn Sigurðar- son, Baldur Trausti Hreinsson og Þórunn Lárusdóttir. María Krist- jánsdóttir gerir leikgerð, byggða á þýðingu Hafliða Arngrímssonar á Das Werk. Elfriede Jelinek er fædd í Aust- urríki 1946 og hlaut menntun á sviði tónlistar. Hún hefur skrifað flölda verka fyrir leiksvið, en einnig sent frá sér ljóö og prósa- verk. Meðal frægustu verka henn- ar eru skáldsögurnar Lostí og Píanókennarinn, en gerð var sam- nefnd kvikmynd eftir þeirri síðar- nefndu sem sýnd var hér á landi. Tvö leikrit eftir Jelinek hafa verið flutt í íslensku leikhúsi, Klara S. var sett upp í Nemendaleikhúsini) og Útvarpsleikhúsið flutti nýverið Hvað gerðist eftir að Nóra yfirgaf eiginmanninn. Á síðari árum hef- ur Jelinek nánast útrýmt hefð- bundinni atburðarás í leikritum sínum og eins leikpersónum. Leikrit hennar þykja því einstök áskorun fyrir leikhóp og leikstjóra í uppsetningu. Jelinek hlaut nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2004. Norðrið í kanadískum kvikmyndum í Norræna húsinu á föstudag- inn hefst kvikmyndahátíð sem speglar norðrið í kanadískri kvik- myndagerð. Hátíöin er samstarfs- verkefni fjölmargra aðila undir skipuiagningu Daniels Chartiers og Ólafar Gerðar Sigfúsdóttur. Ókeypis aðgangur er á allar mynd- irnar, en meðal þeirra sem sýndar eru má nefna: The Jmportance of Being Icelandic, eftir Jón E. Gúst- afsson sem fæddur er á íslandi en nú búsettur í Kanada, The Snow Walker eftir Martin Smith og Mon Oncle Antoine eftir Claude Jutras.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.