Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2006, Page 14
74 FÖSTUDAGUR 3. MARS 2006
Fréttir DV
Sandkorn
Jakob Bjarnar Grétarsson
• Þegar össur
Skarphéöinsson
bregður stflvopninu
á loft í bloggi sínu
eirir hann engu.
Þannig tók hann
ónefndan blaða-
mann Blaðsins, sem
reit smámola um skrif hans á síðu
sinni um skattaumfjöllun Kastljóss,
þannig í gegn að annað eins hefur
ekki sést. Kallaði
þann bögubósa, rot-
ið epli, flautaþyril...
herpresturinn í Góða
dátanum hefði verið
fullsæmdur af ræðu
össurar þá þegar
hann messaði yfir
nærbuxnalöllum og
skrópagemlingum. Innblað Blaðsins
fékk falleinkunn hjá össuri en þar
ræður ríkjum Ema Kaaber sem
sennilega hefur ekki fengið aðrar
eins umvandanir. Glefsur úr messu
össurar má finna á öftustu opnu
DV...
• Kolbrún Bergþórs-
dóttir fær hins vegar
góða einkunn hjá
össuri Skarphéðins-
syni og eru spurn-
ingar&svör viðtöl
hennar sögð, af
krataforingjanum,
„tromp Blaðsins". Ema Kaaber á
ekki heldur sjö dagana sæla innan
dyra Blaðsins því hún mun í ónáð
hjá prímadonnunni Kolbrúnu. Eng-
inn er sæll af því - Kolbrún ber
hvern þann út sem henni líkar ekki.
Kratarnir össur og Kolbrún em í tal-
sambandi og því líklegt að Össur
hafi vitað hver lá vel við höggi og
hugsanlega verið mótiveraður vel
við skriftir sínar...
• Stórstjarnan Björk
sat í góðu yfirlæti á
Prikinu á öskudag-
inn. Einhvern tíma
hefði þetta talist dag-
urinn sem Björk félli
í hópinn. En hún
skar sig úr eins og
fyrri daginn en nú með öfugum for-
merkjum. Meðan krakkar fóm um
borgina skrautlegir sem aldrei fyrr, •
flestir sem Silvía Nótt, var Björk hóf-
stillt í klæðaburði svo nálgaðist að
mega heita venjuleg...
• DV greindi frá því
í gær að Þórhallur
miðill hefur nú hætt
með útvarpsþátt
sinn á Bylgjunni en
mikið er um það
rætt á spjallsíðum
ýmsum. Þórhallur er
á leið til Kanaríeyja og mun dvelja
þar í mánuði. Þar starfaði Þórhallur
áður sem fararstjóri hjá Úrval-Útsýn
og þekkir því hveija þúfu...
• Árið 1991, þegar
Yoko Ono var á ís-
landi síðast, heim-
sótti hún rithöfund-
inn Vigdísi Gríms-
dóttur á Njálsgötuna.
Gaf hún Vigdísi við
það tækifæri forláta
sólgleraugu sem Vigdfs hefur notað
við hátíðleg tækifæri. Báðar eiga
listakonurnar það sameiginlegt að
vera miklar sólgleraugnakonur. Vel
fór á með listakonunum þá en ekki
hittust þær að þessu sinni en haft er
eftir Vigdísi að vel megi vera að Yoko
hafi bankað upp á en hún þá ekki
verið heima...
Álfyrirtækið Alcoa er gamalgróið og risavaxið fyrirtæki. Tekjur fyrirtækisins nema
tæplega tvö þúsund milljörðum króna. Fyrirtækið rekur 27 álver í fimm heimsálfum.
- Risavaxió íypip-
tseki sem grseoir
þúsundip milljaröa
Alcoa er risavaxið íyrirtæki, eitt stærsta fyrirtækið í áliðnaði í
heiminum og leiðandi á ýmsum sviðum álframleiðslu. Alcoa
framleiðir efni fyrir ýmsa geira, eins og fyrir byggingariðnað,
geimskipasmíðar, bflaframleiðslu og fleira. í ljósi áhuga yfir-
manna Alcoa á fslandi er ekki úr vegi að skoða fyrirtækið nánar.
ALCOA
Hjá fyrirtækinu starfa 129 þús-
und manns í 42 löndum. Það rekur
27 álver í fimm heimsálfum. Tekjur
fyrirtækisins eru miklar og fara
vaxandi. Á síðasta ári námu þær
tæplega
1.720 millj-
örðum
króna. Árið
2004 voru
tekjur fyrir-
tæksins 1.540
milljarðar og
árið 2003 um
1380 milljarð-
ar. Fyrirtækið
er því í miklum vexti. Tekjur af
framleiðslu áls og súráls hafa auk-
ist gríðarlega. Á síðasta ári hagnað-
Á síðasta árí voru
tekjur fyrírtækisins
tæplega 1.720 millj-
arðar króna.
-129 þúsund starfsmenn
- 27 álver I fimm heimsálfum
- Framleiðir ýmsar pökkunarvorur fyrir
matvörur, t.d. Reynolds Wrap.
- 1.720 milljarðar í tekjur á síðasta ári
- Stofnað 1888
| utan
I um
ýmsar
I teg-
undir
mat-
væla.
Tvær
helstu
vöru-
tegundirnar sem
framleiddar eru af
fyrirtækinu eru
Reynolds Wrap og
Baco. Einnig fram-
leiðir fyrirtækið
felgur fyrir bíla, Alcoa Wheeís, sem
eru vinsælar. Alls hagnaðist Alcoa
um 410 milljarða á vörum sem fara
beint til neytanda, vegur Reyonlds
Wrap þar þyngst en einnig selur
fyrirtækið fleiri tugi milljarða af
áldósum sem notaðar eru undir
drykkjarföng.
Gamalgróið fyrirtæki
ist fyrirtækið um tæpa 450 millj-
arða á þess konar framleiðslu og er
það helsta tekjulind Alcoa.
Ekki bara í álinu
Fyrirtækið starfar ekki bara í
kringum áliðnað. Starfsmenn fyrir-
tækisins framleiða álpappír, poka
og annað sem notað er 1 umbúðir
Reynolds Wrap Ein afþeim vörum sem
Alcoa framleiðir.
Fyrirtækið var stofnað árið 1888
og hét þá Pittsburgh Reduction
Company. Árið 1907 var nafninu
breytt í Aluminium Company of
America og árið 1910 var óopin-
berlega byrjað að kalla fyrirtækið
Alcoa. Árið 1999 ákváðu stjórnend-
urnir síðan að Alcoa yrði opinbert
nafn fyrirtækisins og var það liður í
alþjóðavæðingu þess.
Fyrirtækið er þekkt víða um
heim. Til dæmis kemur það við
sögu í myndinni Good Night, and
Good Luck, sem nú er sýnd í kvik-
myndahúsum landsins. Myndin
fjallar um fjölmiðlamenn sem eru
með fréttaskýringaþátt í Bandaríkj-
unum. Alcoa er styrktaraðili þáttar-
ins í myndinni og hættir því í kjöl-
farið á gagnrýni fréttamanna á Jos-
eph McCarthy, öldungardeildar-
þingmann.
kjanan@dv.is
Forstjórinn Alain J.P. Belda kom hingað til lands ekki alls fyrir löngu til að undirrita samning
um álverá Austurlandi.
Utanríkisráðherra Bandaríkjanna er dugleg að halda sér í formi
Condoleezza Rice vaknar kl. 4.30 til að æfa
Condoleezza Rice, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, er ákaflega
dugleg við að halda sér í formi. Á
hverjum morgni vaknar hún klukk-
an 4.30 til að stunda líkamsþjálfun.
Hún er með æfingaaðstöðu á heim-
ili sínu, í íbúð sem hún í og í vinn-
unni. Hún er með einkaþjálfara,
Tommi Tomlo, sem var áður í
bandaríska sjóhernum. Hann segist
ekki fara illa með ráðherrann. „Við
byrjum alla morgna rólega, tökum
tvær mínútur í rólegum spinning á
hverjum morgni. Maður þarf ekkert
að setja nein hraðamet á þessum
æfingum."
Rice segist ekki eiga auðvelt með
að taka mikið á í einu. „Ég er rétt
rúmlega 50 ára," segir hún brosandi
og heldur áfram: „Ég æfði listdans á
skautum í mörg ár og lenti þá oft
í salnum Rice tekursig vel út Iæfingasaln-
um sem er staðsettur i utanrikisráðuneyti
Bandarikjanna.
illa á hnjánum og leggjunum. Þess
vegna hentar mér betur að taka því
rólega og ganga frekar en hlaupá."
Tomlo þjálfari tekur undir þessi
orð stjórnmálakonunnar. „Að mínu
mati er ganga ákaflega vanmetin
æfing. Hún er mikilvæg fyrir fólk -
hjartað styrkist og líkaminn verður
fallegur í laginu."
Rice segist reyna að æfa hvar
sem hún er stödd í heiminum.
„Þegar ég er á ferðalögum skipu-
legg ég tíma minn þannig að ég
geti æft í byrjun hvers dags."
Hún segir að heilsuleysi föður
hennar hafi verið víti til varnaðar.
„Faðir minn kynnti mig fyrir íþrótt-
um, hann æfði alltaf mikið. En svo
hætti hann að æfa og þá fóru alls
kyns kvillar að hrjá hann, til dæmis
hjartabilun og þess háttar. Þetta var
lærdómsríkt. Þetta
kenndi mér að mað-
ur má aldrei hætta að
æfa, maður verður
að halda sér í þjálfun
alla ævi."