Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2006, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 18. MARS 2006
Fréttir DV
Þórdís er sönn og góð vin-
kona. Hún er iðjusöm og ótrú-
lega hress og jákvæð.
Henni hættir til að vera
pínulítill besservisser og er
á stundum of ráðagóð.
„Þórdís er náttúrulega gullfalleg
kona, en fyrst og fremst er hún
drulluklár. Hún er iðjusöm og
fellurekki verk úrhendi
þegar kemur að vinnu og
er stanslaust að. Svo er
hún sérstaklega lagin við
að finna upplýsingará
netinu sem er mikill kostur þeg-
ar maður er að vinna með
henni. Stundum finnst mér hún
hafa furðulegan fatasmekk,
sem getur svo sem talist kostur
líka. Hún á það til að detta út
þegar hún einbeitir sér og þá
veit maður ekki aiveg hvar
maður hefur hana, en almennt
hefég ekkert nema gott um
hana að segja."
Friðrik Friðriksson leikari.
„Hún er bara jafnfalleg að inn-
an og utan, algersnillingur.
Reynsla mín afhenni í samstarfi
er mjög góð, hún er
metnaðargjörn og fylgin
sér og ég hefekkert nema
gott um hana að segja.
Hún getur verið pínulítill
besservisser, en svo kemur ævin-
lega í Ijós að hún hefur rétt fyrir
sér."
Elma Lísa Gunnarsdóttir leikkona.
„Hún Þórdis ereinstaklega sönn
og góð vinkona og stendur við
bakið á manni. Hún er alltaf
ótrúlega hress og jákvæð
og er mjög hæfileikarík á
ýmsum sviöum, svo eldar
hún líka geðveikt góðan
mat.Húnáþaðtiiað
gera ofmarga hluti í einu
og svo er hún oft áttavilt í bók-
staflegri merkingu. Eins ráðagóð
og hún er þááhún það til að
hella yfir mann ofmörgum ráð-
um, en það er svo sem ekki stór-
vægilegur galli."
Ósk Gunnarsdóttir kvlkmynda-
gerðarmaður.
Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Backman, leik-
kona og leikskáld, er fædd 1. ágúst 1980. Hún
útskrifaðist frá leiklistardeild University of
Georgia í Bandaríkjunum áriö 2003. Síöan
hún lauk námi hafa leikritin Áttu smit, sem
sett var upp ÍTÓnlistarþróunarmiðstööinni
og BrotiÖ sem var sett upp I Hafnartjaröar-
leikhúsinu komiö fyrir augu almennings auk
þess sem útvarpsleikritiö Kista töframanns-
ins var sett upp hjá útvarpsleikhúsinu. Þórdís
var fyrsti fulitrúi Islands á ráöstefnu fyrir 50
efnilegustu leikskáld I heiminum. Nú sföast
var verkiö Hungur frumsýnt I Borgarleikhús-
inu. Verkiö hefur hlotiö mikið lofsýningar-
gesta og gagnrýnenda..
Viðar Þórðarson í Kópavogi hefur kært bæjaryfirvöld vegna álagningar fasteigna-
gjalda. Segir Viðar íbúum mismunað eftir því hvort þeir búi í sérbýli eða fjölbýli.
Þórður Clausen Þórðarson, bæjarlögmaður í Kópavogi, segir í svari til félagsmála-
ráðuneytisins að ætlunin hafi verið að halda fasteignasköttum óbreyttum frá fyrra
ári. Bærinn hafi gætt jafnræðis.
Eigendur sécb
.a° . . .
mein
Fensalir Viðari Þórðarsyni og öðr-
um ibúöareigendum í Fensölum er
gert að greiða hæra hlutfaíl affast
eignamati en eigendum einbýiis-
húsa og raðhúsa í nágrenninu.
Viðar Þórðason sem býr í blokk í Salahverfinu í Kópavogi hefur
kært bæjaryfirvöld fyrir að hygla eigendum sérbýlishúsa á kostn-
að eigenda íbúða í fjölbýlishúsum.
Eins og annars staðar hækkaði
mat á fasteignum í Kópavogi um
áramótin. Hækkunin var meiri á
sérbýli en fjölbýli. Á þeim grund-
velli var ákveðið að lækka álagn-
ingarprósentuna á sérbýli meira
en á fjölbýli. Ætlunin var að eyða út
áhrifum hækkandi fasteignamats á
skattbyrði íbúa bæjarins.
Niðurstaða bæjaryfirvalda var
sú að eigendur sérbýlis fá 34 pró-
sent afslátt af fasteignaskatti, hol-
ræsagjaldi og vatnsgjaldi en eig-
endur íbúða í fjölbýli aðeins 28
prósent. Það er þessi mismunur
sem Viðar sættir sig ekki við. Til að
eigendur sérbýlis fái svo háan af-
slátt þurfi eigendur fjölbýlis að
greiða meira en ella.
Tapar níu þúsundum
„Ef ég tek dæmi um mína fast-
eign, þá eru fasteignaskattur,
vatnsgjald og holræsagjald 133.282
[krónur] fyrir árið 2006. Ég bý í fjöl-
býli og þarfþví að greiða 95.963. Ef
ég hins vegar byggi í sérbýli þyrfti
ég að greiða 87.966,“ bendir Viðar
á í kæru sem hann sendi félags-
málaráðuneytinu í febrúar.
Þannig hefur Viðar reiknað út
að í hans tilfelli er skatturinn 9
þúsund krónum hærri en hann
hefði átt að borga af jafnverðmætri
eign sem væri í sérbýli.
Viðar vildi ekkert láta hafa eftir
sér um kæru sína að svo komnu
máli. '
Félagsmálaráðuneytið sendi
bæjaryfirvöldum í Kópavogi bréf
og óskaði eftir viðhorfum þeirra til
kærunnar.
Bærinn mótmælir kærunni
„Við álagningu fasteignagjalda
var tekin sú ákvörðun af bæjar-
stjórn að hækkanir á fasteignamati
milli áranna 2005-2006 yrðu ekki
íþyngjandi fyrir eigendur íbúðar-
húsnæðis í Kópavogi," segir í svari
Þórðar Clausen Þórðarsonar bæj-
arlögmanns til félagsmálaráðu-
neytisins.
Þórður bendir sfðan á að Fast-
eignamat ríkisins hafi ýmist hækk-
að mat á íbúðarhúsnæði í Kópa-
vogi um 30 prósent eða 35 prósent
eftir því hvort um sé að ræða fjöl-
„Er því mótmælt að
ekki hafi verið gætt
jafnræðis við veitingu
umrædds afsláttar."
býli eða sérbýli.
„Með vísan til þess sem rakið
hefur verið er því mótmælt að ekki
hafi verið gætt jafnræðis við veit-
ingu umrædds afsláttar," segir í
niðurlagi bréfs Þórðar bæjarlög-
Hækka gjöld á sérbýli?
Kæra Viðars er nú í augnablik-
inu hjá félagsmálaráðuneytinu.
Samkvæmt heimildum DV
mun sú skoðun vera uppi
innan ráðuneytisins
að líklegt sé að af-
sláttarfýrirkomuiag-
ið við fasteigna-
gjöldin í Kópavogi eigi
sér ekki stoð í lögum.
Ástæðan sé einmitt sú
sem Viðar tiltekur; að
verið sé að mismuna
íbúum bæjarins eftir
búsetuformi.
Ætli Kópavogsbær
að fá sömu krónutölu og áætlað
hefur verið úr fasteignasköttunum
verður að lækka afslátt þeirra sem
búa í sérbýli til að geta hækkað af-
slátt þeirra sem eiga íbúðir í fjöl-
býlishúsum.
Ekki náðist tal af
Gunnari I. Birgis-
j syni, bæjarstjóra í
Kópavogi, í gær.
gar@dv.is
Gunnar I. Birgisson Bæjarstjór-
inn ætlaði aö eyða áhrifum hækk-
andi fasteignamats á gjöld bæjar-
búa en er sagöur mismuna húseig-
endum eftir búsetuformi.
Samstarf Landsbókasafnsins viö Intrum Justitia hefur skilað miklum árangri
Suður með sjó finnst
mörgum gaman
að leika sér á
fjórhjóli og það
veit lögreglan í
Keflavík manna
best. ökumenn
fjórhjólanna eru
oftast á þeim úti
í Sandvflc þar sem meðal
annars Clint Eastwood
keyrði á skriðdrekum í sum-
ar. Það var þó í Sandgerði í
fyrradag sem lögreglan
hugðist stöðva mann á fjór-
hjóli. Maðurinn ætlaði þó
ekki að láta ná sér og freist-
aðist til að reyna að stinga
lögregluna af. Það gekk þó
illa og náðist maðurinn
skömmu síðar. Fjórhjólið
var ljóslaust og óskráð.
Oskilvísi minnkað töluvert
„Sumar bækumar höfðu verið í
vanskilum í mörg ár," segir Áslaug
Agnarsdóttir starfsmaður Lands-
bókasafnsins við Suðurgötu. í fyrra-
haust hóf Landsbókasafnið samstarf
við innheimtufyrirtækið Intrum
'Justitia.
Áslaug segir að áður en samstarfið
hófst hafi óskilvísum verið tilkynnt
með bréfi að safnið væri að hefja
samstarf við Intrum Justitia. I bréfinu
Intrum Justitia Þú getur átt von á bréfi frá
Intrum efþú ert óskilvis.
vom þeir hvattir til að skila bókunum
áður en Intrum fengi mál þeirra til
meðferðar.
„Viðtökumar vom ótrúlegar.
Rúmlega 70% af þeim bókum sem
vom í vanskilum skiluðu sér aftur til
safnsins eftir að við sendum bréfið."
Áslaug segir að það sé neyðarúr-
ræði að senda kröfúna til Intmm
Justitia.
„Við sendum fólki bréf bæði með
pósti og tölvupósti og biðjum það að
ganga ffá sínum málum. Það líða þrfr
mánuðir ífá skiladegi og þar til við
sendum málið til Intmm Justitia."
Þegar óskilvísum einstaklingi
berst krafa frá Intmm Justitia getur
hann átt von á að vera krafinn um
tæplega 7.000 krónur fyrir hverja bók
sem hann skuldar. Ef hann svo skilar
bókinni em 5.000 krónur af skuldinni
felldar niður en hver bók á safninu er
metin á 5.000 krónur.
Á mánudaginn lýkur sektarlausri
viku hjá Borgarbókasafninu. Sektir á
bókum sem skilað er fyrir þann tíma
em felldar niður. í næsta mánuði
hefur Borgarbókasafnið svo samstarf
við Intrum Justitia.