Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2006, Side 15
DV Fréttir
LAUCARDACUR 18. MARS2006 7 5
tortryggni. Ég þarfað fara að réttlæta
einhverja hluti sem ég á ekkert að vera að
réttlæta. Ég þarfað fara að segja að þið
þurfið ekki að hafa áhyggjur, ég er í lagi
sko, næsti bær er bara: Viljið þið
blóðprufu? Eitthvað því um líkt. Þetta hef-
ur þau áhrifog hafði þau áhrifað fólk
stoppaði mig íKringlunni og hvæsti að
mér sko: Ég veit aðþú ert dópisti. Þetta er
hlutur sem ég hefekki þurft að glíma við í
mörg, mörg, mörg, mörg ár, að fólk hafi
hreytt í mig svona ónotum og þetta sáir
strax einhverri tortryggni. Ég lenti íþvíað
einhver kona sagði: Já, þetta er alveg rétt
hjá Hér &nú,þú ert í kóki, þú ert orðinn
svo grannur. [Bubbi hlær.j Ég hefekki
þurft að glíma við þetta i þau tæp 10 ár
sem ég hefekki verið að nota efnin. En
þetta fór í gang aftur og ég er ekki að
segja að þetta gerist daglega en þetta
hefur gerst í nokkur skipti.
í dópið, þá segir það sig sjálft aðég væri
ekkert að starfa í Idolinu.
Edrúmennskan í voða
SRJ: Segðu mér, þú talaðir um þína ed-
rúmennsku, hafði þetta einhver áhrifá
störfþín hjá AA-samtökunum?
BMrJá.
SRJ: Geturðu útskýrt það eða lýst því?
BM: AA-samtökin byggjast á svokölluðu
tólfspora kerfi. Og tólfspora kerfið felst í
því að það er svokallað spons, að nýlið-
ar, þeir velja sér trúnaðarmann og
manneskju tilþess að leiða sig í gegnum
sporin. Og þetta er mjög viðkvæmt og
mjög vandmeðfarið og maður þarfað
vera ekki bara heiðarlegur heldur mjög
skarpur á því sem maður er að gera með
nýliðunum og nýliði sem færþá efasemd
að trúnaðarmaður hans sé ekki 7 00%,
hann hrekst í burtu og það var ungur
„Ég lenti í því að einhver kona sagði: Já, þetta
er alveg rétt hjá Hér & nú, þú ert í kóki, þú ert
orðinn svo grannur."
| Bubbi á tónleikum
Segir tónleikagesti hafa
hrópað tils/n ókvæðisorð
eftir að forsíðan birtist.
Þór Freysson
Framleiðandi Idols-
ins á Stöð 2, en þar
og á Sýn hefur Bubbi
unnið.um tíma.
Viðskiptasamningar í uppnámi
SRJ: Þú talaðir um að þetta hafi áhrifá...
þú talaðir um íslandsbanka. Hvernig áhrif
hefur þetta á þína viðsemjendur eins og
til dæmis þú nefndir Islandsbanka?
BM: Ég þurfti að segja mönnum: Hafíð
þið ekki áhyggjur, ég er í lagi. Og svona
róa þá aðeins niður og hitta þá. Þetta
hefði getað haft þau áhrifað þeir hefðu
sagt: Heyrðu, heyrðu, við leggjum ekki
að vera í samstarfí við þig
vegna þess að þetta er slæmt
fyrir ímynd bankans að
það sé verið að tengja
þig við að þú sért fall-
inn I dópið og allt
þetta. Og efég má,
þá, ekkert afþessu
fólki tók þessari for-
síðu öðruvísi en ég
væri fallinn í eiturlyf.
SRJ: Sáu þeir ástæðu
til þess að ræða sér-
staklega við þig?
BM: Þeir hringdu ekki I mig
en umboðsmaður minn mat
það þannig að við yrðum að
fara og hitta okkar fólk og svo
framvegis og láta þá vita að
ég væri í lagi.
SRJ: Voruð þið með marga þannig fundi
við þína viðsemjendur?
BM: Hann hringdi vítt og breitt og lét
vita, efég man, hvort það voru sett ein-
hver sérstök ákvæði inn í eftir þetta. Ég
man það ekki alveg, þá efég man það
ekki, þá er best að vera að ræða ekkert
um það.
Getur ekki dópað og verið í Idolinu
SRJ: Hvað með hugsanlega viðsemjend-
ur? Heldurðu að það hafí orðið til þess að
fæla frá viðsemjendur sem gætu trúað að
þú værir kannski ekki alveg nógu sterkur
á svellinu hvað varðar eiturlyfín í kjölfarið
á þessu?
BM: Það má vel vera að einhvers staðar
hefur einhver stigið skreftil baka og sagt:
Ummhh... þú veist, ég er ekki alveg tilbú-
inn. En allavega, þeir sem skipta máli eins
og Bifreiðar og landbúnaðarvélar og ís-
landsbanki, að þá þurfti ég að fara að
hitta fólk og ræða við það og það sögðu
allir þegar ég kom á staðinn og ég sat fyr-
ir framan þá: Hafðu engar áhyggjur. En
samtþurfti að gera þetta.
SRJ: En segðu mér,nú ert þú einn afdóm-
urunum t Idolinu sem ersvona fjölskyldu-
þáttur, heldurðu að þetta hafí kannski
áhrifá störfþín þar?
BM: Ég þurfti að hitta Heimi og Þóri og
ræða við þá. Þeir hringdu í mig strax eftir
að þessi forsíða var. Báðir. Bæði pródús-
entinn á Idolinu og sá sem varyfír
þetta. Við hittumst og ræddum /
málin og allt það. Ég meina,
ímynd mín, þetta er fjölskyldu-
þáttur. Imynd mín, segir sig
sjálft, efég fer að fá for-
síðuhausinn að
ég sé fall-
strákur sem ég var með sem að lét sig
hverfa. Hvort sem að hann notaði það
sem afsökun, að hann ætlaði að dópa
áfram, ég get ekki svarað því. En alla-
vega eftir að þessi hérna forsiða kom, þá
lét hann sig hverfa og ég mat það
þannig að það hafi verið út afþví að
hann hafi ekki treyst því að ég væri i
lagi. Og þetta er ekki bara slæmt endi-
lega fyrir mig. AA er félagsskapur karla
kvenna sem eru að berjast við það að
tökum á lífi sínu og nýliði sem
fellur frá, lætur sig hverfa, það
vel verið að það verði
hans bani. Menn eru að
deyja úrþessum sjúk-
dómi úti um allt.
SRJ: Hafðirðu áhyggj-
ur afþessu atriði
að...? [Bubbi gripur
inn í.j
BM: Miklu, miklu, mjög
miklu. Ég reyndi mikið
að ná iþennan strák.
Auðvitað hefur það áhrif
vegna þess að ég er ekki bara
Jón Jónsson, ég er Bubbi íAA-
samtökunum líka, og þar af
leiðandi beinast augu manna
kannski aðeins meira að mér
en ella og þá líka sem fyrir-
mynd.
Tóbaksdjöfullinn erfiður
SRJ: Segðu mér eitt, hvað með
frammíköll á tónleikum í kjölfarið á
þessu, varþað eitthvað sem kom upp á?
BM:Já.
SRJ: Cetur þú sagt mér frá einhverju
þannig atviki?
BM: Já, það var nú bara í desember. Þá
kallaði náungi fram að ég væri, hérna,
dópisti og vitnaði svo i hina forsíðuna á
Hér &núog sagði, þú veist, það hefði
verið rétt hjá fyrrverandi eiginkonu
minni að halda fram hjá mér. Hvað get-
ur maður sagt? Fullur salur af fólki. Mað-
ur reynir bara að bíta svona afsér. En
þetta fer undir skinnið.
SRJ: Hver hefur verið svona útgangs-
punkturinn þinn varðandi það hvernig
þú horfir á þinar tóbaksneysluvenjur?
BM: Fyrst og fremst er tóbak lífshættu-
legt eiturlyf, bara svo menn viti afstöðu
mína þar. Ég er búinn að vera að glíma
við reykingar mjög lengi og ég er búinn
að hætta og byrja og hætta og byrja í
tvo áratugi. Stundum hefur það gengið
bara alveg þrælvel og svo hefég byrjað
að reykja aftur. í dag til dæmis er ég
reyklaus, ég er búinn að vera reyklaus
síðan 14.júlí. Einn dag í einu.en ég ersí-
fellt að glíma við þetta tóbak og ég held
að ég sé ekki einn um það. Það vita allir
það að þetta er eitt öflugasta eiturlyf
sem menn ánetjast og ég reyni að glíma
við þetta einn dag í einu.
Þorir ekki að fara nakinn í pottinn
: Segðu mér, þú talaðir um
—í kjölfarið á þessu fórstu
_ j tala um hegðun þína
heima hjá þér. Geturðu svona
lýst því betur hvernig hegð-
' .'n hefur breyst, efhún
hefur breyst, í kjölfarið
á þessari uppákomu
þar sem birt er mynd
sem hefur verið tekin af
þér án þess að þú vitir
afþví?
BM: Sko, í tuttugu og fímm
ár hefég ekkert fett fingur
út í fjölmiðla. Ég heflesið
bull, stundum ósannindi
mig, það hefur þá
.! tónlistinni minni
< einhverju sem að við
'r.lsemaðég
’ sem tengist vinn-
________: minni. Ég hef
aldrei nokkurn tímann skipt mér afþví,
ég hefekki hringt, hvorki í dagblöð eða
annað, og sagt að mér líkaði þetta ekki
vegna þess að þetta er hlutur sem ég hef
vitað að fylgir því starfí og þeirri persónu
sem ég er, ókei. Sem Bubbi Morthens inn-
an gæsalappa. Hins vegar þegar að ég
sé að það eru teknar Ijósmyndir afmér
án minnar vitundar og við einhverjar at-
hafnir sem að hafa ekkert með vinnu
mína að gera, þá bara bregður mér og
eftir þessa forsíðu, þá er það bara
þannig að já, ég fer út á morgnana og
horfi til hægri og vinstri. Ég þori ekki að
fara nakinn [hlærj úrstofunni ípottinn
hjá mér vegna þess að það gæti mögu-
lega verið Ijósmyndari einhvers staðar.
Og einfaldlega, þá reyni ég svona að
forðast alla hluti sem gætu orðið þess
valdandi að það væri hægt að taka
myndir afmér við einhverjar asna-
legar aðstæður. Þannig að ég
dreg fyrir öll gluggatjöld á
kvöldin og svona og þetta
erekkertsemsagt... '
þetta er orðið rútína. Til
að byrja með var þetta
mjög óþægilegt og
mér fannst þetta asna-
legt. Mér fannst asna-
legt að fara út að kíkja
ogsvona... [Lögfræð-
ingurinn grípur inn i.[
Óttast Ijósmyndara
SRJ: Hverju ertu að kíkja eftir
þegar þú ferð út og kíkir til
hægri og vinstri?
BM: Hvað segirðu?
SRJ: Hverju ertu þá að kikja eftir?
BM: Ljósmyndara, hvort það séu mögu-
legir Ijósmyndarar að taka afmér mynd.
Ég held að þetta sé engin paranoja eða
einhvers konar ofsóknarbrjálæði. Bara
málið er að staðan íþessum heimi er
orðin þannig... Ég meina, ég man ekki
hvaða fjölmiðill bauð fólki greiðslur fyrir
að vera með símana sína og taka mynd-
ir affólki og senda þeim. Ég meina, mað-
ur bara er kominn íþessa aðstöðu, þetta
er staðreynd. Þetta er það sem er að ger-
ast. Og ég hefekki áhuga á að lenda í
því, þannig að þá horfí ég til hægri og
vinstri og ég passa mig þegar ég fer út
og sama með börnin. Þegar ég er með
börnunum, ég kíki í kringum mig. Ég er
farinn að spyrja, meira að segja efþað
eru teknar myndir afmér hvort sem það
er vrð Edduna eða Islensku tónlistarverð-
launin, hjá hvaða fjölmiðli þeirstarfa,
Ijósmyndarana. Sem ég hefaldrei gert
en þetta er eitthvað sem maður verður
að bregðast við.
SRJ: Finnst þér eins og það sé ekki nógu
skýrt kannski hvað þeir mega gera og
hvað ekki? [Bubbi grípur fram í.]
BM: Alls ekki, þess vegna sit ég hérna í
dag.
SRJ: Þannig að þú vilt fá leiðbeiningar?
BM: Algjörlega.
Skotspónn Ijósmyndara af öllum
gerðum
SRJ: Hefur þú lent íþví að fólk bara, sem
„Ég þori ekki að fara
nakinn úr stofunni í
pottinn hjá mérvegna
þess að það gæti
mögulega verið Ijós-
myndari einhvers
staðar."
er ekkert endilega Ijósmyndarar eða fjöl-
miðlafólk, kemur og vill fá að taka
myndir afþér, eins og til dæmis á GSM-
símana sína?
BM: Það gerist daglega. Efég fer í Kringl-
una daglega, þá gerist þetta daglega.
Fólk tekur afmér myndir og labb-
ar að mér og segir: Fyrirgefðu,
má ég taka afþér mynd?
Eðaþá-.Máég taka
mynd afþér með dótt-
ur minni? Eða: Meg-
um við fá mynd af
okkur saman? Og
svo framvegis.
SRJ: Þannig að í
öllum slíkum tilvik-
um, ertu þá alltaf
spurður um leyfi?
BM: Alltaf, það er bara
þannig.
SRJ: Ceturþú nefnt mér
einhver dæmi um að Ijós-
myndarar hafi svona ofsótt
þig og tekið myndir í þinni
óþökk?
BM: Einu sinni, ég lenti íþví, ég fór og
hitti Róbert Marshall. Ég var uppi á
hérna nýju sjónvarstöðinni...
SRJ: NFS?
BM: Akkúrat, og það var nýbúið að opna
hana og ég var í einhverjum erinda-
gjörðum þarna og svo löbbum við Ró-
bert Marshall út og þá beið Ijósmyndari í
felum fyrir utan, stúlka frá Dagblaðinu,
og stökk í veg fyrir okkur. Ég sagði svona:
Hey, hey, ekki þetta! Og hún skaut mynd-
ir og Róbert Marshall hafði orð á þvíað
þetta væri mjög furðulegt. Síðan kom
mynd afmér i Dagblaðinu daginn eftir.
Eiríkur fylgist með þér
SRJ:Já, hefurðu einhvern tímann tekið
eftir því að einhver fréttamaður eða fjöl-
miðlamaður sé að veita þér eftirför eða
fylgjast sérstaklega með þér? Manstu
eftir einhverju svona dæmi að þú hafir
tekið eftir einhverju slíku og síðan hafi
birst einhver frétt um þig?
BM:Já,já, Eiríkur Jónsson.
SRJ: Viltu segja okkur frá því?
BM:Já,já, ég fórmeð vini mínum á Öl-
stofu Kormáks og Skjaldar. Sat þar og
drakk kaffí og reykti sígarettur og kjaft-
aði við fólk. Þarna voru hinir og þessir,
konur og menn og svo framvegis og það
fór ekkert fram hjá mér að Eiríkur var að
skoða mig. Ég hafði séð hann á öðrum
stað, aðeins neðar í götunni, sama
kvöld.
SRJ:Á öðrum barþá, eða?
BM:Já, öðrum bar, ölstofu eða hvað sem
þetta heitir... Vegamót. Og hérna, bara
ég horfði á hann. Hann var á sínu horni.
Þetta vará laugardegi og daginn eftir
hringir síminn og þá var það blaðamað-
ur á DV sem segir: Ertu byrjaður að
reykja? Og ég svara eitthvað á þessa
leið: Þér kemur það bara andskotakornið
ekkert við. Hvað varstu ekki hættur að
reykja? Ég hefekkert við þig að ræða. Og
síðan bara lagði ég á. Það birtist
nokkrum dögum seinna í Dagblaðinu,
það birtist bara svona lítil frétt bakvið,
síðunni sem Eiríkur er með. Og þar stóð
eitthvað að sá fáheyrði atburður gerðist
að Bubbi Morthens sást á næturlífínu
eða næturrölti á Ölstofu Kormáks og
Skjaldar. Þetta var einhverjum tveimur
mánuðum áður en forsíðan á Hér & nú
kom fram.
SRJ: Ég er ekki með fleiri spurningar í
bili.
Bubbi fallinn
Einar Þór Sverrison (EÞS): Einar Þór
Sverrisson sem spyr.
BM: Heyrðu, ég ætla að biðja þig að tala
hátt og snjallt, ég er heyrnarskertur.
EÞS: Ég skal passa mig á því. Ég ætla að
spyrja þig einnar spurningar sem er
þannig hvort þú hafir tjáð þig við fjöl-
miðla um tóbaksnotkun?
BM:Já,já, örugglega.
EÞS: Þú sagðir áðan, eða þú lýstir því,
hvaða viðbrögð þessi forsíða hefði vak-
ið, veistu hvað nákvæmlega við hana
hjá því fólki sem að var að benda þér á
forsíðuna og var að tala um forsíðuna
við þig, hvað nákvæmlega við forsíðuna
vakti þau hughrifað þetta væri tengt við
það að þú værir byrjaður að hefja eitur-
lyfjaneyslu á nýjan leik?
BM: Sem sagt orðin einfaldlega Bubbi
fallinn.
EÞS: Það var ekki meira í bili.
SRJ: Nei, ekkert meira.
Samantekt: atli@dv.is
„En allavega, þeir sem skipta máli, eins og Bif-
reiðar og Landbúnaðarvélar og íslandsbanki,
að þá þurfti ég að fara að hitta fólk og ræða
við það og það sögðu allir þegar ég kom á
staðinn og ég sat fyrir framan þá: Hafðu engar
áhyggjur. En samtþurfti að gera þetta."
ÚTSALAN
ERHAFIN!