Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2006, Side 24
24 LAUGARDAGUR 18. MARS 2006
Helgarblaö DV
Magga Gauja verður þrítug í
nóvember, ætlar inn í
bæjarstjóm í Hafnarfirði
fyrir Samfylkinguna,
stefnir að því að ljúka BA-
prófi og svo á hún von á bami um
verslunarmannahelgina.
„Viltu kaffi?" spyr hún þegar ég
heimsæki hana á Suðurgötuna þar
sem hún býr með eiginmanni sín-
um, Davíð Arnari Stefánssyni, og
Björk, átta ára dóttur þeirra hjóna.
„Ég kann sko á kaffivélina en þá
er líka upptalið það sem ég kann í
eldhúsinu. Ég kann ekki einu sinni
að sjóða egg,“ segir hún og þykist
ekkert vera að ýkja.
„Málið er að ég á tvo bræður og er
miðjubarn með öllum þeim komp-
lexum sem því fylgir. Þess vegna hef
ég verið á kafi í jafnréttisbaráttu allt
mitt líf. Ég neitaði alltaf að taka þátt
í heimilisstörfunum, kannski ekki
sfst af því að bræður mínir komust
einhvern veginn hjá þeim. Svo er ég
örugglega meiri strákur en þeir báð-
ir til samans. Þú ættir að sjá Davíð
bróður með tuskuna, það er ólýsan-
legt."
Eins og tímasprengja í
pólitíkinni
Magga Gauja ber fram prýðis
kaffi og fær í leiðinni skýr skilaboð
um að þetta viðtal eigi ekki að snú-
ast eingöngu um pólitík.
„Það er líka allt í lagi,“ segir hún.
„Það vita allir hvað ég stend fyrir."
Svo ræðir hún góða stund um
pólitík og segist hafa sóst eftir fjórða
sæti á lista Samfylkingar í Hafnar-
ftrði og það gengið eftir. „Ég stóð
samt lengi í þeirri trú að ég væri
sjálfstæðismaður. Það gerir uppeld-
ið,“ segir hún og hikar ögn. „Má ég
ekki alveg segja frá því?“
Jú, að sjálfsögðu.
„Já, pabbi var sem sagt varabæj-
arfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn og
hefur unnið trúnaðarstörf fyrir þann
flokk, svo ég tók það fyrir geflð að ég
fylgdi honum að málum. Ekki það
að við pabbi vorum oft ósammála
um pólitík og rifumst mikið. Það var
samt ekki fyrr en ég eignaðist Björk
dóttur mína sem ég fór að hugsa um
pólitík af einhverri alvöru. Björk er
fötluð, með svokallaða vinstri helt-
arlömun, og í framhaldi af því þurfti
ég að eiga heilmikið við kerfið. Þá
breyttust viðhorfm talsvert. í háskól-
anum kynntist ég svo Guðnýju Guð-
björns, fyrrverandi alþingiskonu, og
fleiri kjarnakonum og þar opnuðust
nýjar víddir. Ég var eins og tíma-
sprengja og áður en ég vissi af var ég
komin út úr skápnum í pólitíkinni."
Pabbi helsti aðdáandinn
Magga segir pabba sinn ekkert
hafa skilið í þessu til að byrja með en
í rauninni sé hann hennar helsti að-
dáandi og stuðningsmaður.
„Hann gleymdi að taka með í
reikninginn stærstu breytuna, sem
er sú að ég er kona. Ég er samt alltaf
með pabba á línunni. Það er svo gott
að tala við hann því hann er alltaf
með góð mótrök í öllum málefnum.
Þannig þjálfast ég vel í að rökstyðja
mína skoðun."
Magga Gauja sem var formaður
„Fólk heldur alltafað
sjokkið komi þegar
maður fær greining-
una en sjokkið kemur
tvisvar til þrisvar á ári
þegar maður þarfað
takast á við nýjar að-
stæður."
Ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði í
tvö ár var þó ekkert sérstakt félags-
málatröll í framhaldsskóla. „Ég fór
ekki f Flensborg heldur Kvennó en
ég hafði engan tíma til að sinna fé-
lagsmálum. Ég var alltaf að vinna
svo mikið með skólanum og svo
braut ég upp námið og fór sem
skiptinemi til Argentínu. Aðallega
var ég þó að vinna. Mig langaði að
eignast svo margt og keypti mér til
dæmis bíl sem ég átti reyndar ekki
nema í átta mánuði. Þá klessti ég á
Ingólf Finnsson, pabba Finns Ing-
ólfssonar, á Þjóðvegi 1. Það meiddist
ttM
sem betur fer enginn en báðir bíl-
arnir voru ónýtir. Um daginn var ég
svo að hjálpa ræðuliðinu í Flensborg
sem var að keppa í undanúrslitum í
Morfís og það var ógeðslega gaman.
Ég var eiginlega alveg eyðilögð að
hafa ekki gert þetta á sínum tíma."
Lífsreynsla að eiga fatlað
barn
Magga Gauja á samt í ekki í nein-
um vandræðum með að tjá sig og
gerir óspart grín að sjálfri sér. Hún
eignaðist dóttur sína nákvæmlega
níu mánuðum eftir að hún útskrifað-
ist sem stúdent og glottir út í annað.
„Þetta var svona ansi vel heppnuð
veisla," segir hún hlæjandi.
Dóttirin Björk fæddist sem fyrr
segir fötluð en greining á fötíuninni
kom þegar hún var sex mánaða.
„Við tókum eftir því þegar við vor-
um að dingla hlutum fyrir framan
hana að hún greip þá alltaf með
annarri hendinni, en notaði hina
ekki neitt. Fólk heldur alltaf að sjokk-
ið komi þegar maður fær greining-
una en sjokkið kemur tvisvar til
þrisvar á ári þegar maður þarf að
takast á við nýjar aðstæður. Þegar
litíir hlutír, eins og að reima skóna
sína, reynast henni of erfiðir, þá fer
maður í fýlu. Það vilja allir að barnið
sitt sé heiíbrigt og geti gert þessa ein-
földu hluti en Björk er samt algjör
hetja. Hún þarf að vera með spelkur
en fylgir sínum jafnöldrum í skóla og
er svo dugleg, klár og aktív. Hún hef-
ur verið í mikilli sjúkra- og iðjuþjálf-
un og við höfum alltaf verið mjög
heppin með það allt saman."
Nú á Magga Gauja von á öðru
bami og segist vissulega vera örlítið
kvíðin. „Ég er að fara í sónar og ætía
að fá að vita kynið, en svo ætía ég
ekkert að hugsa um það meir. Maður
tekur bara því sem að höndum ber."
FH-hjörtu sem slá í takt
Eiginmaður Möggu, Davíð Arnar,
stendur með henni eins og klettur í
pólitíkinni og er ef eithvað meira til
vinstri. „Hann er smiður og um-
hverfisfræðingur, svo þú getur rétt
ímyndað þér,“ segir hún hlæjandi.
„Ég er samt stoltust af honum fyrir
að þjálfa kvennalið FH í fótbolta.
Fótboltí er aðaláhugamál okkar
beggja og FH-hjörtun slá alveg í takt.
Ég fór í fótbolta þegar ég var yngri,
hætti í píanótímum og fimleikum
sem var of stelpulegt fyrir minn
smekk, og fór á kaf í fótboltann. Ég
var meira að segja frekar góð."
í enska boltanum heldur Magga
Gauja með Chelsea. „En ekki hvað?
Ég held bara með Eiði Smára hvert
sem hann fer. Hann var sko kærast-
inn minn í tvær vikur þegar við vor-
um 14 og 16 ára."
Sagði já í gegnum
spaghettítaumana
Hún segir eiginmanninn ekkert
spældan yfir tryggðinni við Eið
Smára, en Magga Gauja og Davíð
giftu sig í júni í fyrrasumar.
„Við vorum búin að gera margar
tilraunir til að hætta saman. Mér
fannst eitthvað svo hallærislegt að
giftast stráknum sem ég varð ást-
fangin af sautján ára og hélt alltaf
að ég þyrfti að „rasa
út". En við
erum
sjúklega
happý. Bón-
orðið var
samt frekar
illa heppn-
að.“
Hvernig?
Ja, hann
eldaði handa
mér spaghettí
á afmælisdag
inn minn
°g
síðan fórum við að rífast í klukku-
tíma, ég man ekki lengur af hverju.
Ég var í brjálæðislegri fýlu þegar
hann kom og sagði fyrirgefðu, ég er
bara svo stressaður af því ég ætlaði
að biðja þig að giftast mér. Ég var
með skeifu dauðans og spag-
hettítaumana í munnvikunum þeg-
ar ég sagði já. Þetta er svo týpískt
fyrir okkur, við getum verið svo
mikið skítapakk og aldrei neinn gla-
múr í gangi."
Magga hlær dátt og rifjar upp
brúðkaupið sem fór fram í Skál-
holtskirkju. „Það var plan B, við
ætluðum að gifta ókkur úti í sumar-
bústaðnum hjá ömmu og afa, en
það mígrigndi, svo við urðum að
fara með þetta inn. Veislan var svo
á Borg í Grímsnesi og ofsalega vel
heppnuð."
Lúlli óður í bumbuna
Árið í ár stefnir í að verða við-
burðaríkt hjá Möggu Gauju því hún
verður þrítug á árinu og nokkuð ör-
ugglega nýr bæjarfulltrúi í Hafnar-
firði, fyrir utan að Ijúka námi í
menntunar- og atvinnulífsfræðum
og eignast barn.
„Ég ætla að taka þriggja mánaða
fæðingarorlof og 'Davíð tekur sex
mánuði. Það eru margir sem segja
að ég muni hafa nóg með að hugsa
um barnið en ég hef engar áhyggjur
af því. Ég tek bara barnið með mér
á bæjarstjórnarfundi og verð fyrsta
konan til að gefa brjóst á svoleiðis
samkomu. Og ég ætla heldur ekki
að draga lappirnar í kosningabar-
áttunni. Þegar ég uppgötvaði að ég
var ófrísk, þremur vikum eftir próf-
kjörið, varð ég hálf smeyk og óttað-
ist að ég missti trúverðugleika.
Meðframbjóðendur mínir tóku
þessu hins vegar vel og hlógu bara
að mér. Lúlli bæjarstjóri er alveg
óður í bumbuna og þau eru svo
glöð fyrir mína hönd. Þorgerður
Katrín gat þetta og ég hef hana sem
fyrirmynd þótt hún sé auðvitað í
kolvitlausum flokki."
Afbrýðisöm út í hestana
Magga Gauja ætlar samt að
minnka aðeins við sig vinnu þegaf
kosningabaráttan hefst og mun til
dæmis ekki vinna áfram á bóka-
safninu þar sem hún hefur verið í
forstöðu fyrir Competo sem er jafn-
ingjafræðsla gegn fordómum. Jafn-
ingjafræðslan var einmitt tilnefnd
til samfélagsverðlauna Fréttablaðs-
ins nýlega.
„Ég hlakka bara til framtíðarinn-
ar,“ segir Magga. „Það er svo margt
spennandi framundan. Við Davíð
þurfum líka að halda áfram að gera
eitthvað fyrir þetta hús," segir hún
og horfir hugsandi í kringum sig.
„Það er mikið búið en líka mikið
ógert. Svo þarf að rækta vinina og
fjölskylduna."
Hvað með hestamennskuna,
ertu ekkertíhenni með mömmu og
pabba?
„Nei, ég reyndi einn vetur, datt
af baki og brotnaði á fjórum stöð-
um. Þau eru alltaf á hestbaki og ég
er að drepast úr afbrýðisemi út í
þessa hesta. Ég var nú nógu afbrýð-
isöm þegar litli bróðir minn fæddist
þó að þau bættu ekki hestunum
við. Ef þau gætu myndu þau hafa
þá uppi í hjá sér. Svo geta þau ekki
passað lengur. Það er óþolandi þeg-
ar fullorðið fólk ákveður að eiga sér
áhugamál og eigið líf, og ég sem er
að koma með annað barn. Ég verð
að fara að setja þeim stólinn fyrir
dyrnar," segir Magga og hlær hjart-
anléga.
„Nei, þau eru alveg frábær og
styðja vel við bakið á mér. Nú er
bara að bretta upp ermarnar og
henda sér í kosningabaráttuna,
eftir það fer ég svo kannski að
strauja einhverjar samfellur..."
edda@dv.is
Magnús Kjartansson
Magga Gauja er dóttir
Magnúsar Kjartansson-
ar tónlistarmanns og
söng með honum hina
freegu Sólarsömbu t
undankeppni Euro-
vision fyrir margt löngu.
í
Margrét Gauja Magnúsdóttir
er ekki lengur litla skott-
an með tíkarspenana
sem söng Sólarsömbu
með pabba sínum í
Eurovison árið 1988.
Hún segist hlæjandi
enn vera að reka af sér
„slyðruorðið“ sem enn
dúkkar upp í kringum
Eurovision. Magga Gauja
hefur snúið sér að öðrum
og merkilegri verkefnum.
Árið í ár lítur út fyrir að
verða sérlega viðburðaríkt.
Mnryrí!f Cmujn Maýrtiití
clóttir f i nlrð ffiötfj jóni / r/r/
lnufn þéttii ótið þ'/l (fntfiutidnn
er knwingabartUfti, IfA
(•rKud’.afirt-nli urj nýft buin,