Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2006, Qupperneq 26
26 LAUGARDACUR 18. MARS 2006
Helgarblað jyv
Slakað a Með Hákoni synl
slnum i luittúrulouglnni við
Nauteyri i hafíarðardiúrii.
hressilega um Siv Friðleifsdóttur
heilbrigðisráðherra síðustu dag-
ana. Mesta gagnrýnin kemur
vegna þáttarins Kompáss sem
sýndur var á sunnudagskvöldið.
í viðtali sem Anna Kristine átti
við Siv í vikunni kemur fram að
nú er í forgangi að efla hágæslu
við barnaspítalann.
Siv Friðleifsdóttir gengur röskum skrefum á móti vindinum
vestur á Gróttu. Klukkan er að verða ellefu að kvöldi og löngum
vinnudegi var að ljúka. Hún hefur verið heilbrigðisráðherra í
nákvæmlega eina viku þegar hér er komið sögu en það blæs
fleira í kringum hana á þessari stundu en bara vindinum á Sel-
tjarnarnesi. Og er þá mikið sagt...
Það er þátturinn Kompás á sjón-
varpsstöðinni NFS sem veldur
þessu fjaðrafoki, en á sunnudaginn
fjallaði Jóhannes Kristjánsson
fréttamaður um málefni hjóna sem
misstu ungan son sinn á leiðinni
frá Barnaspítala Hringsins að gjör-
gæsludeild Landspítalans. Við
vinnslu þáttarins var Siv Friðleifs-
dóttir innt svara um nauðsyn starf-
semi hágæsludeildar við Barnaspft-
alann og svör hennar fóru svo mjög
fyrir brjóstið á mörgum foreldrum
að á spjallrásum netsins hafa marg-
ir þeirra farið hamförum gegn nýj-
um heilbrigðisráðherra:
„Ég hafði verið heilbrigðisráð-
herra í þrjár klukkustundir þegar
þetta viðtal var tekið," svarar Siv.
„Ég hefði ekki getað svarað þessu á
annan hátt þótt staða mín hefði
verið önnur. Hágæslan var ekki í
forgangi spítafans fyrr en fyrir
skömmu. Nú er í forgangi að efla
hágæsluna á tilfallandi álagstím-
um. Við erum með eina bestu heil-
brigðisþjónustu sem völ er á, því
má ekki gleyma."
„Made in Berlin!"
„Mamma og pabbi, Björg Juhlin
Árnadóttir, námsstjóri í norsku, og
Friðleifur Stefánsson tannlæknir
kynntust í Berlín, þannig að það
má segja um mig að ég sé „Made in
Berlin!" segir hún brosandi.
„Mamma var mjög duglegur náms-
maður og hafði hlotið Willy
Brandt-styrkinn til náms í fjöl-
miðlafræði. í Berlín kynntist hún
pabba, sem þar var við tannlækna-
nám, og mamma varð ófrísk af
mér. Hún fékk meðgöngueitrun á
seinni hluta meðgöngunnar og
ákvað þá að snúa heim til Noregs
og eignast mig þar."
Með litlu stúlkuna í farteskinu
flutti Björg svo til íslands; lands
sem henni fannst við fyrstu kynni
afskaplega lokað:
„Hún mætti bara á sínum sfíg-
vélum, ung, norsk stelpa með mig,
nokkurra mánaða, og stundum hef
ég hlustað á hana rifja upp þennan
tíma. Hér voru samheldnar stór-
fjölskyldur og henni fannst samfé-
lagið vera frekar lokað. Tveimur
„Mér fannst ég fá að
gera miklu minna en
jafnaldrar mínir og
kannski varþað áð
einhverju leyti vegna
þess að mamma var
alin upp i norsku
samfélagi. Égþurfti
til dæmis alltafað
vera komin heim
löngu fyrr en aðrir
krakkar á kvöldin."
árum síðar fæddist íngunn Mai
systir mín, síðan Árni árið 1968 og
loks Friðleifur árið 1970, en í fyrra
hjónabandi hafði pabbi eignast
hálfsystkini mín, Stefán og Hildi.
Skömmu eftir að Ingunn fæddist
fluttum við á Seltjarnarnesið, þar
sem ég bý enn."
Súperkona sjöunda
áratugarins
„Það var alltaf fullt hús af fólki,"
segir Siv þegar hún rifjar upp æsku-
árin. „Þetta var eins og á járnbraut-
arstöð enda erum við öll miklar fé-
lagsverur og erum vinamörg. Það
var mikið fjör á heimilinu þar sem
mamma stýrði öllu styrkri hendi og
lét sér ekkert bregða þegar hún
stóð á svölunum og kallaði: Matur!
að það kæmu fleiri en hennar börn
að matarborðinu. Við fengum, að
mínu mati, mjög gott uppeldi. Við
fengum gott aðhald, en á sama
tíma mikla hvatningu tO þess að
takast á við alls konar verkefhi.
Mampta var ein af súperkonum
sjöunda áratugarins," segir hún
hugsi. „Hún sá um heimilið og
börnin á daginn meðan pabbi var í
sinni vinnu, en á kvöldin tók við
nám og starf hjá henni. Fyrst lærði
hún íslensku í Háskólanum og
sneri sér svo að kennslu í norsku."
ÖIl sumur hélt fjölskyldan til
Noregs til að efla tengsl við móður-
fólkið:
„Þetta eru ógleymanleg sumur
með ömmu og afa í Noregi. Landið
stórkosdega fallegt, nánast alltaf sól
og mikið útilíf. Farið út í skóg með
nesti, synt í sjó og vötnum, algjör
paradís fyrir böm. Við ferð
uðumst líka mikið um
ísland en frá mömmu
höfum við „norska
göngulagið" sem er
brandari í okkar fjöl-
skyldu. Þá gengur
maður rösklega, fer
hratt yfir og aðrir en
þeir sem eru í fjöl-
skyldunni hafa orð á hvað við göng-
um hratt," segir hún og hlær.
Siv er elst fjögurra systkina, en
hvernig upplifði hún að vera elsta
barnið á heimilinu?
„Ég fann til ábyrgðar og um tíma
var ég ekki alveg sátt við að vera
elst," svarar hún heiðarlega. „Mér
fannst ég fá að gera mikJu minna
en jafnaldrar mínir og kannski var
það að einhverju leyti vegna þess
að mamma var alin upp í norsku
samfélagi. Ég þurfti til dæmis alltaf
að vera komin heim löngu fyrr en
aðrir krakkar á kvöldin. Ég er rrijög
sátt við þetta í dag, en meðan á því
stóð fannst mér það mikið órétt-
læti. fngunn komst upp með miklu
meira og bræður mínir Árni og
Leifur lifðu bara frjálsu lífi!"
Samvinnuverkefnið
Húnbogi
Maki Sivjar er Þorsteinn Hún-
bogason viðskiptafræðingur ogþau
eiga synina Húnboga, sem er 21 árs
læknanemi, ogHákon, 12ára:
„Ég hef reynt að flytja það besta
úr mínu uppeldi yflr til
þeirra. Eg hvatti
þá tfl að
stunda íþróttir og legg áherslu á að
við ferðumst og stundum útivist
eins og ég sjálf var alin upp við. Við
eigum hús á Siglufirði, þaðan sem
pabbi er ættaður og þar höfum við
stundað skíðaíþróttina af kappi,
þar tfl síðasta eitt og hálfa árið að
ég hef hvorki mátt stunda bad-
minton né skíði eftir að ég sleit
krossband í hné."
/ átökum á Alþingi eða... ?!
„Nei, reyndar ekki!" svarar hún
hlæjandi. „Ég hef síðari ár spflað
með hópi sem kalla sig Lurkarnir.
Við leigjum þrjá velli hjá TBR, einu
sinni í viku, og fáum mikla útrás við
að berja kúluna eins og við getum
en á einni slíkri æfingu slitnaði
krossbandið. Ég fór í aðgerð í fyrra
og nú styttist í að maður geti byrjað
að leika aftur."
Eiginmaðurinn og
samviskubitið
Manni sínum kynntist Sivþegar
þau voru bæði við nám í Háskóla
íslands þar sem Siv lærði sjúkra-
þjálfun. Var það ást við fyrstu sýn?
Hún hugsar sig um skamma
stund: „Kannski ekki við fyrstu
sýn, en við
Siv og strákarnir
Með eiginmanni slnum
Þorsteini Húnbogasyhi
ogsonunumHúnboga
og Hákoni.