Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2006, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.2006, Síða 40
40 LAUGARDAGUR 18. MARS2006 Helgarblað DV Á bruðkaupsdaginn Sama dag og Karla og Paulgengu upp að altarinu fannstlík stúlku, sem þau höfðu myrt, I vatnifná- grenni við fallega heimilið þeirra. Lottó-nauðgar- inn fundinn Iorworth Hoare, sem kallaður hefur verið Lottó-nauðgarinn, var myndaður úti á götu í vikunni en Hoare hefur verið laus í tvo mán- uði. Hoare, sem er 53 ára gamall, hefur aíþlánað 33 ára dóm fyrir nauðganir og nauðgunartilraunir. Þegar hann var leystur úr haldi sagði dómarinn sem dæmdi hann £ fangelsi að konur væru í hættu í kringum hann. Daginn sem Ho- are var leystur úr haldi vann hann 7 milljónir punda í lottói. Ljós- myndari The Sun myndaði Hoare á göngu nálægt Newcastle. Nauðgari, ekki hryðjuverkamaður Bresk kona heldur því fram að hinn brasilíski Jean Charles de Menezes hafi nauðgað henni fyrir þremur árum. Lögreglan skaut Menezes til bana í síðasta júlí í misgripum fyrir hryðjuverka- mann stuttu eftir hryðjuverka- árásina þar í landi. Konan, sem er tvítug, hafði samband við lögregl- una eftir að hafa séð myndimar af Menezes í blöðunum eftir morðið. Hún segir atburðinn hafa átt sér stað um áramótin 2002 og að hún hafi orðið viðskila við vini sína þegar Menezes réðst á hana. Níðingur og morðingi áfrýjar Morðinginn og barnaníðing- urinn Roy Whiting, sem svívirti og myrti hina átta ára Söruh Payne, ætlar að áfrýja dómi sín- um. Lögfræðingur hans segir fyrr- verandi ráðherrann David Blunkett hafa skipt sér ólöglega af málinu og því séu réttarhöldin ógild. Móðir Sömh segist ætla að gera allt sem í hennar valdi stendur svo að Whiting fái afdrei frelsi en hann var dæmdur í 50 ára fangelsi. Whiting rændi Sömh við ströndina í Sussex árið 2000. Karla Homolka og PaulTeal voru glæsilegt par. Nágrannarnir uppnefndu þau Ken og Barbie sökum þess hve upptekin þau voru af útliti sínu. Engan gat grun- að að þetta fólk ætti eftir að vekja hrylling meðal íbúa Kanada. Ken og Barbie Þau Karla Homolka og Paul Teal vom einstaklega laglegt par og ein- býlishúsið þeirra var afar snyrti- legt. Nágrönnum þeirra í kanad- íska bænum St. Catherine þótti þau full hégómleg og uppnefndu þau í laumi Ken og Barbie. Engan gat gmnað að þetta fólk ætti eftir að vekja einn mesta hrylling meðal íbúa Kanada fyrr og síðar. Sjúkar hvatir vakna Karla Homolka var komin af fá- tækum pólskum innflytjendum. Hún þótti afar falleg og metnaðar- gjöm. Á menntaskólaárunum vann hún daglega með skóla svo hún ætti þess kost að sækja háskóla. Það tókst henni og þar kynntist hún Paul. Það var árið 1989 og hún var þá nítján ára gömul. Karla var afar lukkuleg með kærastann en Paul var ekki aðeins myndarlegur heldur fetaði hann metorðabraut- JLUIL! ina hratt og ömgglega. Fyrsta árið þeirra var mjög hamingjuríkt en árið 1990 fór Paul að sýna afar af- brigðilegar tilhneigingar á sviði kynlffsins. Karla gat þó ekki hugsað sér að missa manninn sem hún elskaði og ákvað að láta þetta eftir honum. Eftir aðeins hálft ár var hún svo farin að aðstoða hann við að ná í ungar stúlkur, vart komnar af fermingaraldri. Allt til þess að hann gæti fullnægt sjúkum hvöt- um sínum. Gaf systur sína í jólagjöf Ein þeirra stúlkna sem Paul hafði augastað á var Tammy, fjórt- án ára gömul systir Körlu. Á þor- láksmessukvöld árið 1990 ákvað Karla því að gefa honum litlu syst- ur sína í jólagjöf. Meðan foreldrar hennar sátu í stofunni heima hjá parinu kallaði Karla hana inn í eld- hús og gaf henni snafs sem hún Á þorláksmessu- kvöldáríð 1990 ákvað Karía því að gefa honum litlu systur sína í jólagjöf. hafði sett deyfilyf í. Þegar Tammy missti meðvitund dró hún hana niður í kjallara og þar nauðgaði Paul henni. Að því loknu bám þau hana upp í rúm en Tammy vaknaði aldrei aftur. Læknar töldu að hún hefði selt upp í sveftii og og hún var jarðsett án frekari rannsókna. Bjugqu til sína eigin „snuffmynd" Vorið 1992 fluttu þau Karla og Paul í einbýlishús í dýrasta hverfi bæjarins. í kjallara hússins komu þau upp hljóðeinangmðu herbergi með hlekkjum og pyntingartólum. í aprflmánuði þess árs lokkaði Karla svo fjórtán ára stúlku að nafni Lesley Mahaffy heim þar sem hún gaf henni drykk blandaðan lyfjum. Paul dró hana svo niður í kjallara, misþyrmdi henni, nauðgaði og myrti. Líkinu hentu þau í Ontario-vatn, í nágrenni við heimili þeirra. Hún fannst skömmu síðar en sama dag gengu þau Karla og Paul upp að altarinu í sínu fínasta pússi. Ári síðar var Paul sagt upp en hann tók þá að vinna fyrir sér með með innflutningi á svokölluðum „snuffmyndum", sem innihalda ofbeldisfull kynferðisbrot og morð. Þessar myndir færðu hjónunum tekur og þau ákváðu að framleiða sínar eigin. Dag einn tældi Karla fimmtán ára gamla stúlku að nafni Kristen French heim með sér. í þrettán daga var henni nauðgað og hún pyntuð. Á meðan tóku þau hjón allt upp og að endingu kyrkti Paul hana og kom lfldnu fyrir inni í Á góðri stunduÁ yfirborðinu varparið til fyrirmyndar. JMWðl skógi. Kristen fannst ekki fyrr en hálfum mánuði síðar. Játningar Körlu Um þetta leyti voru komin upp vandamál í sambandi þeirra Pauls og Körlu. í ársbyrjun 1993 var Karlá flutt á sjúkrahús og sagði læknir sem tók á móti henni að hann hefði aldrei nokkurn tíma séð konu jafn illa farna eftir bar- smíðar. Það var ekki einn blettur á líkama hennar sem ekki var mar- inn og annað augað hafði hrokkið úr tóftinni við að hún hafði verið barin ítrekað í hnakkann. Lögregla var kölluð til. Rannsóknarlögreglumenn yfir- heyrðu Körlu og við yfirheyrslurn- ar játaði hún að maður hennar bæri ábyrgð á barsmíðunum auk þess sem hún sagði þeim frá ýmsu öðru sem þau höfðu gert. Hlutum sem fengu hárin til að rísa á höfði rannsóknarlögreglumannanna. Lögreglan kannaði feril Pauls og komst að því að hann hét í raun Paul Bernard. Hann hafði legið undir grun vegna 25 nauðgana í heimabæ hans, Scarbourogh. Svo hrottalegar höfðu nauðganimar verið að margar þeirra sem lentu í honum höfðu aldrei náð sér. Lög- reglunni hafði þó ekki tekist að afla nægra sannanna til að sakfella Paul. Nú horfðu málin öðmvísi við. Tammy grafin upp Karla gerði sér grein fyrir því að hún átti von á langri fangelsisvist og í von um mildingu á dómnum ákvað hún að vera samvinnuþýð við laganna verði. Við rannsóloi á heimili þeirra hjóna kom pyntinga- klefinn í ljós auk fjölda mynda sem sýndu ungar stúlkur pyntaðar og drepnar. L£k Tammyar Homolka var grafið upp og £ ljós kom að hún hafði verið kæfð, auk þess sem sæði og deyfilyf fundust í lfkama hennar. Hryllingurinn í bíó Karla var dæmd £ tólf ára fang- elsi en var látin laus 1999, aðeins 29 ára gömul með lffið framund- an. Dómurinn vakti mikla reiði. Á siðasta ári vakti það mikla athygli þegar hún kom fram í spjallþætti vestan hafs. Paul var dæmdur í ævilangt fangelsi án möguleika á lausn eða náðun. Þetta mál hefur verið mikið í umræðunni vestan hafs um þess- ar mundir þvf á þessu ári kemur út kvikmynd sem byggir á ævi Körlu Homolka. Það er Laura Prepon, sem íslendingum er að góðu kunn fyrir leik sinn í ung- lingaþáttunum That 70’s Show, sem fer með aðalhlutverkið. Myndin er ekki talin lfkleg til vin- sælda og hafa kanadfsk yfirvöld hvatt fólk til að sniðganga hana. James Sullivan James varfund- innsekurumað borga manni til að ráða eiginkonu sína afdögum af ótta við að skiln- aður myndi rýja hann inn að skinni. Viðskiptajöfurinn James Sullivan var á dögunum fundinn sekur um morðið á eiginkonu sinni fyrir 19 árum Milljarðamæringur fundinn sekur um morð Bandaríski milljarðamæringur- inn James Sullivan var á dögunum dæmdur sekur fyrir morðið á Litu Sullivan sem myrt var fyrir 19 árum. James var fundinn sekur um að borga manni til að ráða eig- inkonu sína af dögum af ótta við að skilnaður myndi rýja hann inn að skinni. Lita, fyrrverandi leikkona í Hollywood, var 35 ára þegar hún var myrt þann 16. janúar 1987. Hún var skotin til bana fyrir utan heimili sitt í Atlanta daginn sem lögfræðingar hennar og James ætluðu að hittast til að fara yfir skilnaðarpappírana. James flúði land stuttu eftir atburðinn en fannst á Tælandi árið 2002 þar sem hann var handsamaður. Sak- Lita Sullivan Fyrrverandi Hollywood-leik- konan var 35 ára þegar hún var myrt þann ló.janúar 1987. sóknarinn hefur farið fram á dauðarefsingu. James borgaði Phillip Harwood 25 þúsund dollara fyrir morðið en Harwood var dæmdur í 20 ára fangelsi. Hann hafði þegar viður- kennt verknaðinn en tók játningu sína til baka í réttarhaldinu yfir James.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.