Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2006, Side 23
UV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 23
Lesendur
Á þessum degi árið 2002 var framið
valdarán í Venesúela. Forsaga valda-
ránsins er sú að í mótmælagöngu
nokkrum dögum áður kom til skotbar-
daga sem leiddi til þess að nokkrir lágu
í valnum. Tveim dögum seinna um-
kringdi hersveit venesúelska hersins
forsetahöllina og krafðist þess að for-
seti landsins, Hugo Chavez, segði af
sér vegna óstjómar í landinu. Chavez
neitaði að segja af sér og var hann því
tekinn höndum og fluttur á eyju úti
fyrir strönd Venesúela. Þegar Chavez
var horfinn á braut tók stjómarand-
staðan völdin í landinu. Hennar fyrsta
verk var að ógilda stjómarskrána, leysa
upp þingið og hæstarétt landsins og
gefa út handtökuskipun á hendur ráð-
hermrn landsins. 13. apríl var efnt til
fjölda mótmæla í landinu. í Caracass
umkringdi almenningur forsetahöll-
ina og krafðist þess að Chavez, rétt-
kjörinn forseti landsins, tæki aftur við
völdum. Á sama tíma var veisla í for-
setahöllinni þar sem stjómarandstæð-
ingar fögnuðu valdaráninu. Verðir for-
setahallarinnar, sem flestir vom hlið-
hollir Chavez, gripu tækifærið og tóku
yfir forsetahöllina og handtóku fjöl-
marga valdaræningja. Nokkrum tím-
Valdarán íVenesúela
Hugo Chavez fi
setinn sem var
steypt afstóli.
í dag
R þessum degi árið 1970
hófst minkarækt að nýju
þegar níu hundruð læður
komu með flugvél frá
Noregi
um seinna tókst venesúelskri fallhlífa-
hersveit að frelsa Chavez úr haldi
vaidaræningjanna. Chavez tók aftur
við embætti forseta landsins tæplega
48 tímum eftir honum hafði verið
steypt af stóli. Bandarísk stjómvöld
hafa verið sökuð um að hafa staðið á v
bak við valdaránið, en þau neita því.
Réttarhöld yfir valdaræningjunum
standa enn yfir en þau hafa tafist
vegna stöðugra áfrýjana.
Úr bloggheimum
Hnýsni
„ Well Hellúúúú... Þið
þarna sem eruð að
ýtaáeftirmérað
blogga...Þiðeruð
hnýsnustu mann-
eskjuriheimL.and
youknowitiAfþví
að efþið getið ekki
tifað án þess að vita
hvað er að gerast I minu lífi,
þá á ég sima... og hefaldrei breytt um síma-
númer síðan að ég fékk minn fyrsta síma.
Jæja búin að koma þessu frá. Ekki það að ég
séeitthvað brjáluð útiykkur...það erbara til
svo mikið affóiki sem lætur svona... ég meina
come on! Dæmi: Ég fer á Isketch ogerað
geta á orðið eða er kannski að teikna... og
þegar fólk manneskjan sem er að teikna er
kannski bara ný byrjuð... Þá byrjar fólk að
skrifa HINTi!!! HINT!!! aiveg svona þúsund
sinnum... ég meina... það fólk á bara ekkert .
að vera að spila þennan leik efþað þarfalltaf
að vera að stjórna fóiki... Well... búin með
þetta!“
Asta
- blog.central.is/budda
Lóumaðurinn
„Virðist vera að ná mér í fugta-
veikina er búinn að vera eitt-
hvað slappur síðastliðna
daga, ég hefðikannski
átt að sleppa því að
sleikja þessa dauðu
fugia sem láuútí garði
hjá mér um daginn. Upp-
selt er á sturtuóperuna. Ég
er hættur að„kaupa mér“ tón-
list í bili, var að fara í gegnum tölvuna mína
og komst að þvi að ég á eftir að hlusta ai-
mennilega á heilan helling afþessu stöffi
sem ég er með. Er búinn að brjóta 2 skrif-
borðsstóla á siðastliðnum mánuði, ég veit.....
ég er Vignir, ég er hlunkur. Sitnúnaí hálfnýj-
um stól sem Villi pimpaði saman. Verð I
Þýskalandi yfír páskana aðsafna yfírvara-
skeggi.“
Vignir Svavarsson
- vignir.biog.is/biog/vignir/
Hvar er vorið?
„Kemur bara og fer þeg-
arþvihentar.
Ég fór og keypti mér ís
áðan I mótmælaskyni.
En ég er kannski að fá
Ipod I næstu viku. Greip
Gerði glóðvolga og bað
hana að kaupa fyrirmiglAm-
erlkunni. Þetta ersamt ekki öruggt afþvi þau
fá bara nokkra tima I mollinu og bla bla. Hún
getur bara keypt hann efhún fínnur eitt
stykki strax. Þau eru nefnilega I einhverju
svaka prógrammi 13 daga ferð. Mér er sko al-
veg sama...ég vil bara Ipodinn minn!!!“
Guðrún Sveinsdóttir
- blog.central.is/gudrunin
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta i Ijós skoðanir sínar á málefnum Ifðandi stundar.
Taugaveikisnollurinn
Svava Sigbertsdóttir r á skemmtilegan u pabba. ■ L
Ballerína s< *gi r
Pabbalíusog
ferðatöskurnar
Hljómskálgarðurinn
Býður upp á mann-
drápshálku á veturna.
-----------------, '
Unnur skrífáði
Hvað er þetta með þennan
Hljómskálagarð. Ég get ekki séð til
hvers þessi garður er. Hann er að-
eins notaður sem leiktækjageymsla
á 17. júní og svo sem vinnubúðir fyr-
ir óþroskaða unglinga á sumrin.
Þess á milli er hann notaður sem
Lesendur
skítakamar fyrir salmónellusýktar
gæsir sem hvæsa á vegfarendur.
Þegar maður hættir sér svo að labba
í gegnum þetta rokrassgat á veturna
þá má maður prísa sig sæla að drepa
sig ekki á hálkunni. Hvernig væri.að
setja hitalagnir undir göngustígana?
Ef maður sleppur lifandi í gegnum
garðinn þá sleppur maður ekki við
að vera úðaður af gæsaskítslykt og
taugaveiki. Nei því miður, frú borg-
arstjóri, nýi gosbrunurinn er engu
betri en sá gamli. Ég er eins og flest--
ir mjög hrifinn af grænum svæðum,
en Hljómskálagarðurinn þjónar ekki
þeim tilgangi. Mér leist mjög vel á
hugmyndina hans Hrafns Gunn-
laugssonar um að færa Árbæjarsafn-
ið niður í Hljómskálagarð. Miðbær-
inn yrði miklu myndarlegri fyrir vik-
ið. Hægt væri að hafa kaffihús og
veitingastaði inn á milli hús Árbæj-
arsafnsins.
Vændi á íslandi
nema að vændiskonan stundar
þjónustu en bóndinn framleiðir.
Það er hins vegar allt annað mál
þegar konur leiðast út í þessa starfs-
grein vegna neyðar eða eituriyfja-
neyslu, þá hafa þær ekkert val.
Einnig er skammarlegt þegar
dópsalar eru orðnir millliðir eins og
DV hefur sagt okkur
frá. Með því að gera
vændi löglegt er
hægt að fylgjast bet-
ur með því. Einnig
Vændi Ætti ekki að
vera stundað ímyrk
um sundum.
er væri það óvitlaust að gera ríkis-
valdið að milliliðnum. Það sem er
slæmt við vændi er að það er ekki
stundað fyrir opnum tjöldum. Það
gerir það skuggalegt. í því felst
skömmin.
Gunnar hríngdi
Ég skil ekki af hverju fólk er svona
á móti vændj. Eins og klisjan segir er
þetta elsta 'atvinnugrein í heimi.
Konur ættu alls ekkert að skammast
sín fyrir að selja mönnum blíðu sína.
Þær eru að sinna mjög mikilvægu
starfi. Að lifa kynlífi er jafn mikilvægt
og að borða, sofa og hafa félagsskap.
Þetta er frumþörf mannsins. Sumir
____________i *_______________________
L ísendur
eru það óheppnir að fæðast mjög
ófríðir og sumir mjög fatlaðir. Fyrir
þessa aðila getur verið mjög erfitt að
fá einhverja aðila til lags við sig. Að
mörgu leyti er starf vændiskon-
unnar ekki ósvipað starfi bóndans,
Hildur systir fór til pabba okkar
um daginn. Pabbi er ekki eins og
aðrir feður, á góðum degi má segja
að hann sé stórskrítinn. Það sem á
móti kemur er að hegðun hans er
svo fáránleg að hún hefur gífurlegt
skemmtanagildi.
Eins og gjafimar sem að við
fáum. Um síðustu jól kom hann
með fulla ferðatösku af gjöfum.
Ferðatöskumar em reyndar eitt af
einkennum hans, sama hvað hann
gefur þá virðist hann aldrei getað
pakkað því inn. Þarf alltaf að gefa
það í ferðatöskum. Þegar hann
kom með hamborgarahrygg handa
mér um daginn, þá fékk ég hann í
ferðatösku (niðri í geymslu em í
það minnsta 15 þannig töskur).
Svo em gjafimar líka fyndnar.
Aldrei hef ég fengið neitt sem hann
keypti út úr búð (eða virkar), ég
veit ekki einu sinni hvar hann
finnur þetta dót. En alla vega veit
ég áð úrið sem ég fékk í afinælis-
gjöf fyrir tveimur ámm, alltof stórt,
brotið karlmannsúr, fann hann úti
á götu. í síðustu viku hringdi svo
maður dyrabjöllunni hjá okkur
sem sagðist vera með sendingu frá
pabbalíusi og rétti okkur fullan
kassa af skóm í öUurn stærðum.
AUir á heimilinu (tíu manns) fengu
nýja skó og ekki eitt par var venju-
legt. Þeir vom allir alveg fáránlega
furðulegir og í öllum regnbogans
litum.
Jæja, en Hildur var hjá honum
og þegar hún fór fékk hún gjöf
með sér eins og við fáum í hvert
einasta skipti og em þær ekki af
verri endanum. Hún fékk tvo bU-
aða gemsa, trefil sem hann fann í
strætó og geislaspUara sem virkar
vel sagði hann. Ef maður situr bara
á honum og hreyfir sig ekki. í
alvöru, er hægt að óska sér
skemmtUegri pabba? Nei veistu, ég
held ekki.
VO Qj
•N -4
■O 2
T3 CO
% fN
o ;
m
Gaman að leika Frímann
„Við semjum handritið í grófum
dráttum en ákveðum ekki nákvæm-
lega hvað mun eiga sér stað“, segir
Gunnar Hansson ■ leikari. Gunnar
hefur verið áberandi á Skjá einum
síðustu vikur sem karakterinn Frí-
mann Gunnarsson, þáttastjórnandi
Sigtisins. Sigtið er nýr gamanþáttur
sem hóf göngu sína á Skjá einum
fyrir tæpum mánuði og hefur væg-
ast sagt vakið mikla lukku. Sigtið er
þó ólíkt íslenskum grínþáttum eins
og Spaugstofunni og Stelpunum
sem byggjast upp á stuttum grín-
senum. Þáttinn mætti flokka sem
leikinn viðtalsþátt. Gunnar kynntist
Halldóri Gylfasyni og Friðriki Frið-
rikssyni í Leiklistarskólanum á sín-
um tíma og hafa þeir unnið mikið
saman upp frá því.
„Ég og Halldór Gylfason vorum
með margar pælingar í gangi.
Búnir að vera í mikilli hugmynda-
® vinnu sem ekkert varð úr og vor-
um orðnir pirraðir á því. Fyrir til-
viljun hitti ég Magga Ragnars á Skjá
einum og ræddi þetta við hann.
Hann bað okkur um að henda sam-
an prufuskjetsum. Við fengum Frið-
rik Friðriksson og Ragnar Hansson
bróður minn til að aðstoða okkur.
Við byrjuðum að gera grínfrétta-
þætti en þeir voru of uppskrúfaðir
og ekki nógu spennandi að okkar
mati.“ Gunnar segir fréttaþættina
þó hafa komið þeim á sporið. í
þeim varð til karakterinn Frímann
Gunnarsson sem varð að spyrli
Sigtisins.
„Við semjum gróft handrit, hálf-
gerða beinagrind og vinnum út frá
því. Oft tekur þetta allt aðra stefnu
en við settum okkur í upphafi",
segir Gunnar.
Þátturinn á morgun fjallar um
glæpa- og fíkniefnaheiminn. Svo er
þáttur sem fjallar um líf og stfl, einn
um fordóma og í þeim síðasta fjall-
ar Frímann um sjálfan sig.
Gunnar segir að kvikmyndin
This Is Spinal Tap og bresku grín-
þættirnir Human Remains og Allan
Partridge séu áhrifavaldar í gríninu,
án þess að vera alveg eins og Sigtið.
Gunnar segir að hann hafi mjög
gaman af að leika karakterinn Frí-
mann Gunnarsson: „Þegar ég fer í
gervi Frímanns þá tekur hann yfir,
ég byrja að hreyfa mig eins og hann
og tala eins og hann“, segir Gunnar
og hlær.
Gunnar Hansson er borgarbarn í húð og hár, fæddur 26. maí 1971.Gunnar er sonur
hjónanna Hans Kristjáns Árnasonar og Önnu Sigríðar Páisdóttur. Gunnar hefur
unnið ýmis störf en hefur aðallega fengist við leikstörf síðan hann útskrifaðist ur
Leiklistarskólanum árið 1997. _____
t