Dagblaðið Vísir - DV - 14.07.2006, Blaðsíða 6
SAPUHÆnKIYItfjl |
BRJÁLUD SPENNAl
ÞAÐ KANNAST ALLIR VIÐ ÞAÐ AÐ
HAFA SETIÐ TÍMUNUM SAMAN OG
FLETT GÓÐU ANDRÉSBLAÐI. ÞAU
:U ÞÖ EINUNGIS FYRIR BYRJENDUR
MH)AÐ ER VK) ÞÁ ALLRA HÖRÐ-
STU í MYNDASÖGUBRANSANUM.
__KUS TALAÐIVTÐ NOKKRA AÐILA
SEM ERU STÓRIR KÚNNAR ÍVERSL-
UNINNINEXUSSEM SELURALLT
SEM MYNDASÖGUSENÍIÐ GIRNIST.
ÞÓRHALLUR í NEXUS, MYNDASÖGUSÉNÍ.
ÞÓRHALLUR BJÖRGVINSSON, 37 ÁRA OG
VERSLUNARMAÐUR (NEXUS.
Vinsælasta myndasagan í Nexus?
„Death Note, vegna þess að hún fjallar um ung-
an mann sem öðlast vald mannsins með Ijáinn
og við þekkjum öll einhverja sem okkur finnst
eiga skilið að hrökkva upp af.
Nýjasta myndasagan?
„Umbra, sakamálasaga sem gerist á íslandi."
Uppáhaldsmyndasagan þín?
„Nana, af því að hún er æðisleg sápa um ungar
konur í Japan og ef ég væri ekki ég vildi ég vera
ung kona í Japan... Alvöru Karlmenn lesa
NANA!
Lélegasta myndasagan?
„Allt sem Rob Liefeld hefur teiknað (nema Alan
Moore-sögur).
Afhverju?
„Af því að maðurinn sökkar illilega."
Ofmetnasta myndasagan?
„Garfield, af því að meira að segja kettinum
mínum finnst hann leiðinlegur."
Hvað eyðirþú mörgum klukkutímum á dag í að
lesa myndasögur?
„Eins mörgum og konan leyfir mér."
Hvaða ofurhetja/persóna værir þú til I að vera?
„Spiderman, þá gæti ég kannski losnað við hel-
vítis kóngulóafóbíuna."
Hvað eyðirþú miklum peningum í myndasögur
á mánuði?
„Hvað meinarðu? Ég VINN f Nexus!"
Hvers vegna myndasögur?
„Af því að þær sameina helstu kosti skáldsagna
og kvikmynda."
Hvað áttu mörg blöð?
„Ég neita að svara þessari spurningu á þeim
grundvelli að svarið gæti fengið fólk ti! að halda
að ég sé einhver nörd."
„CARFIELD tR OFMETNASTA MYNDASAGAN, AFÞVÍA0 MEIRA AB 5EGJA
KETTINUM MlNUM FINNST HANN LCIDINLCGUR. “