Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006
Fyrstog fremst DV
Fyrst og fremst
Ætlarðu i leikhús í vetur?
„Nei, ég bý IDanmörku og verð ekkert
hérálandi."
Sveinn Magni Jensson
pípulagningamaður
„Nei, ég hefekki farið frá þvf ég var
lltillogfinnstekkertgaman/leikhúsi." £
Grétar Már Garðarsson, nemi í
Fiensborg
„Vonandi, efég kemst. Þá ætla ég á
Footioose."
Alda Elíasdóttir ræstitæknir
„Já, við ætlum að fara á söngleik I
Borgarieikhúsinu um áramótin."
Hanna Rún og Bjarni Þór
m *
fZr^^'*.
W'J
Já, ég ætla i leikhús hér heima."
Helga Þórey Eyþórsdóttir,
meistaranemi i Hl
Veturinn er tími leikhúsanna og er
dagskrá þeirra sneisafuli af eðalefni.
Fólk hafði þó mismunandi mikinn
áhuga á að nýta sér dagskrána.
Útgáfufélag:
365 - prentmiðlar
Ritstjóri:
Páll Baldvin Baldvinsson - pbb@dv.is
Aðstoðarritstjóri/fréttastjóri:
Óskar Hrafn Þorvaldsson - oskar@dv.is
Blaðamenn:
Anna Kristine Magnúsdóttir- anna@dv.is
Berglind Hásler - berglind@dv.is
Friðrik Indriðason - fridrik@dv.is
Garðar örn Úlfarsson - gardar@dv.is
Guðmundur Þ. Steinþórsson -
gudmundur@dv.is
Hanna Eiríksdóttir - hanna@dv.is
Indíana Ása Hreinsdóttir - indiana@dv.is
Jakobína Davíðsdóttir jakobina@dv.is
Jón Mýrdal Harðarsson myrdal@dv.is
Kormákur Bragason - kormakur@dv.is
Sigríður Ella Jónsdóttir - sigga@dv.is
DV Menning:
Óttar Martin Norðfjörð - ottar@dv.is
DV Sport:
Óskar Ófeigur Jónsson
DV: Skaftahlíð 24,105 Rvík, sími: 550
5000 Fax: Auglýsingar: 515 7599 -
Ritstjórn: 550 5020 Fréttaskot: 550 5090
Ritstjórn: ritstjorn@dv.is
Auglýsingar: auglysingar@dv.is.
Umbrot: 365 - prentmiðlar.
Prentvinnsla: (safoldarprentsmiðja.
Dreifing: Pósthúsið ehf. - dreifing@posthusid.is
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án
endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Um alla jarðarkringluna
stríða menn við ameríska sorp-
hauga gegnsósa af mengandi
efnum efir heri Kanans. Líka í
þeirra eigin landi. Embættis-
menn og stjórnmálamenn sem
handsala slíka samninga verða
allir komnir undir græna torfu
þegar nágrannar sorphauga
Kanans verða enn að kljást við
mengaðan jarðveginn.
Nú ræða menn um hundraða
milljóna kostnað við að hylja
svæðin ofankomu, jafnvel grafa
þau upp, en fyrst af öllu verður
að kortleggja nákvæmlega hvar
jarðmengun er slík að nátt-
úru, mönnum og dýrum staf-
ar hætta af. Það verður að gera
með ítarlegum rannsóknum..
Samninganefndirnar geta
skákað í því skjólinu að þær
eru nafnlausar og falla fljótt
í gleymsku. Aðrir borgarar í
landinu sem bæru ábyrgð á
spillingu lands og grunnvatns
með svipuðum hætti og her-
inn yrðu dæmdir fyrir bragðið,
látnir bera þungar skaðabætur.
En ekki jakkadrengirnir í utan-
ríkisráðuneytinu sem nú eru að
fyrir forsætisráðherra og unnu
1989 fyrir utanríkisráðherrann
Jón Baldvin Hannibalsson. Þeir
eru ofan við lög og rétt.
Ekki eru heldur líkur á að
sjálfstæðismenn eða gamlir
kratar sem arka nú í framboð
á Suðurnesjum verði látnir
gjalda fyrir landspjöllin og
ábyrgð á þeim: það verða sveit-
arstjórnarmenn og almenn-
ingur á Suðurnesjum sem fá
skellinn. Þar munu menn nú
loksins drekka sinn bikar í botn
- og eitraðar dreggjarnar með.
Páll Baldvin Baldvinsson
Samninganefnd íslenska
forsætisráðherrans
er að ganga frá nýjum
kontrakt við Kanann.
Eins og gjaman er í samskipt-
um við stórveldi eru öll atriði
samningsins leyndarmál sem
koma ekki öðrum lýðræðislega
kjörnum fulltrúum á löggjafar-
þinginu við. Hvað þá þjóðinni.
Eitt er þó ljóst: Kaninn ætlar
ekki að hreinsa eftir sig: Kefla-
víkurstöðin þræðist á band
með öðrum eitruðum perl-
um sem heimamenn um víða
veröld verða að búa við eftir
að hafa setið við katla hers-
ins í boði amerísku þjóðanna
um áratugaskeið. Tvær skýrsl-
ur sem til eru frá íslenskum
og bandarískum stjórnvöld-
um verða leyniplögg þar til nýi
samningurinn er fullnustaður.
Vonlítið var að íslensk stjórn-
völd hefðu döngun til að láta
verkfræðideild ameríska hers-
ins annast það verkefni að
koma burt stórum flákum á
vellinum sem hafa í hartnær
hálfa öld verið dýki fyrir drullu
af ýmsu tagi. í þeim efnum
haga fulltrúar fslensku þjóð-
arinnar sér eins og margt ann-
að þýlyntyfirvald. Strax árið
1989 var ljóst að samninga-
menn þjóðarinnar höfðu gefið
eftir: með nýju vatnsveitunni
þar suður frá sem Kaninn kost-
aði var hann laus undan öllum
skyldum um að hreinsa eftir sig
um alla framtíð.
Trúarbrögð efnishyggjunnar
Trúarbrögð efnishyggjunnar fel-
ast einkum í því að halda að hægt sé
að leysa allt með einföldum ráðum,
jafnvel andlegan vanda.
Þessi trú tekur stundum á sig
skoplega mynd, einkum þegar hún
ákveður að taka höndum saman við
hina kristnu með því að halda sam-
eiginlega athöfn í kirkju.
Trúarbrögð efnishyggjunnar
eru hvorki tengd ákveðnum stað né
stund. Glópar kunna að halda að
trúin eigi sín helgu vé í bönkum og
fjármálastofnunum en hún er ekki
aðeins tengd íjármagni og syndum
þess, svonefndu gróðabralli auð-
jöfra, heldur miklu heldur barna-
skap. Hann og trúgirnin sem hon-
um fylgir einkenna
reyndar flest trú-
arbrögð.
Trúar-
brögð efnis-
r\ & hyggjunnar
eru ekki tengd
ákveðinni stétt.
Þau er að finna
hjá ólíkleg-
asta fólki,
háum og lágum, ríkum og fátækum
og eru með vissum hætti undirrót
allrar trúar.
í samtímanum bjóða þau upp á
lausnir oftast tengdum tæknivæð-
ingu, auglýsingaherferðum og sjón-
arspili.
Að undanförnu hefur verið á
sviðinu gott dæmi um þetta. Háir
sem lágir halda að hægt sé að stöðva
slys á vegum með því að strætisvagn-
ar aki um með áletrun á hliðunum:
Mamma er mín fyrirmynd.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti
þrýsti á tölvuhnapp í Hallgríms-
kirkju með fánaborg í baksýn en
samgönguráðherra og stúlka græn
í stjórnmálum beygðu sig til að sjá
hvaða kraftaverk birtist á skjánum.
Líklega voru öll með barmmerkið
Stopp til að tryggja árangurinn.
Þessi bjánaskapur var sorglegur,
hlægilegur, tilgangslaus. Engin leið
er að ala upp manninn með tölvum
eða auglýsingum.
Um Hlemm fara hundruð stræt-
isvagna með Mamma er mín fyrir-
mynd en umhverfið sýnir hinn sára
veruleika: Mamma hefur yfirgefið
Ekkert getur komið í staðinn fyrir
föður og móður, vitneskju um upp-
runann, móðurmálið, föðurland-
ið og hvar maður sjálfur er í heim-
inum; þetta er það sem við köllum
þjóðerni.
Tilfinningalífinu verður ekki
stjórnað nema með vitneskju um
meginþætti þjóðar og manns. Engin
auglýsingaherferð getur leyst þann
flókna samsetning.
Sú trú að auglýsing um hegð-
un jafngildi uppeldi kom fram með
kynslóðinni sem situr núna ráðvillt
við stjórn og við sjáum afleiðingarn-
ar - slysin - hvarvetna.
Guðbergur Bergsson rithöfundur
Yfirlýsing
„Hinn 19. september 2006 var gengið frá
sátt í dómsmáii, sem Sigurður H. Björns-
son höfðaði gegn fyrrverandi ritstjórum
D V þeim Jónasi Kristjánssyni og Mikael
Torfasyni, vegna umfjöllunar DV og
myndbirtingar af Sigurði sökum þess að
hann veiktistafhermannaveikiá vormán-
uðum ársins2005.
Afþvl tilefni vilja 365 miðlar hf, sem gefa
út DV, taka fram að félagið harmar nær-
göngulan fréttaflutning blaðsins af veik-
indum Sigurðar, samhliða þvi sem hann
er beðinn afsökunar á þeim óþægindum
sem umfjöllunin olli honum."