Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006
Fréttir DV
Frístundahúsin
breiða úrsér
Hver landspildan á fætur ann-
arri á Suðurlandi er nú skipulögð
undir frístundahús og herra-
garða. Á síðasta fundi skipulags-
nefndar Rangárþings ytra voru til
afgreiðslu beiðnir um hátt í eitt
hundrað nýjar slíkar lóðir. Tekið
var jákvætt í þær allar. í allflestum
tilfellum er notkun viðkomandi
spildu endurskilgreind frá þvf að
vera fyrir landbúnað í það að vera
undir frístundabyggð. Þessar lóðir
eru meðal annars í landi Hauka-
dals, Galtalæks, Ketilhúshaga og
Merkihvols.
Má ekki kaupa
tölvuna sína
Fyrrverandi
bæjarstjóri í
Garðinum fær
ekki að kaupa
tölvuna sem
hann hafði til
afnota á bæjar-
stjórastóli. Sig-
urður Jónsson,
sem hætti eftir
kosningar í vor, vildi eignast tölv-
una sem bærinn keypti fyrir hann
í byrjun þessa árs en meirihluti
bæjarstjórnar taldi það vera góða
vinnureglu að starfsmenn bæjar-
ins skiluðu tækjum sem þeir hafa
til afnota þegar þeir hætta. Minni-
hlutinn sagði þetta óvinsamlega
framkomu við Sigurð sem gegnt
hefði æðsta embætti sveitarfélags-
ins í sextán ár.
Færheldurekki
kaffiboð
Nýr meirihluti í Garðinum
hafnar ekki bara tillögu um að
selja Sigurði Jónssyni, fyrrverandi
bæjarstjóra, tölvuna sem hann
hafði í vinnunni heldur neitar
einnig ósk fyrrverandi meirihluta
um að standa fyrir opnu kaffiboði
til að kveðja Sigurð eftir sextán
ára starf. Lýstu samherjar Sigurð-
ar þessu sem „ómannúðlegri og
óvinsamlegri afstöðu." Meirihlut-
inn sagði óviðeigandi fyrir sig að
standa fyrir kaffisamsæti fyrir Sig-
urð sem starfað hefði fyrir fyrr-
verandi meirihluta og tekið þátt í
kosningabaráttu hans.
Jólasveinará
Strandgötunni
Hafnfirðingar eru farnir að
huga að jólahaldi ársins. Menn-
ingar- og ferðamálanefnd bæj -
arins er nú með til skoðunar
hugmynd Jeans Posocco um að
skreyta Strandgötuna með jóla-
sveinaijölskyldunni. Nefndar-
menn segja að sér lítist vel á hug-
myndina og er hún til nánari
skoðunar. Þá er undirbúningur
að Jólaþorpinu á Thorsplani haf-
inn og velta Hafnfirðingar fyrir sér
áherslum í markaðssetningu.
Strax eftir að bæjarráð Kópavogs svipti Kára Stefánsson lóð á Vatnsenda sendu arki-
tektar inn uppdrætti að risavöxnu húsi. í gær ákvað bæjarráðið því að Kári fengi lóðina
aftur. Húsið stendur á þrefaldri lóð og verður yfir 600 fermetrar að grunnfleti.
Kári sviptur
Kári leitaði ásjár bæjarráðsins sem
í gær samþykkti að Kári fengi lóðina
sínaaftur.
Risalóð á flottum stað
Lóðin sjálf er á mjög góðum stað
við Vatnsenda. Stærð lóðarinnar er á
við þrjár til fjórar venjulegar einbýlis-
húsalóðir eða 3272 fermetrar.
Fram kom hjá Hlédísi arkitekt í DV
um liðna helgi að hönnun húss Kára
væri mjög metnaðarfull. DV fékk ekki
aðgang að teikningum að húsinu
en samkvæmt heimildum blaðsins
er botnplata hússins vel ríflega 600
fermetrar. Aðalhönnuðir eru Hlédís
Sveinsdóttir og Gunnar Bergmann
Stefánsson og sagt er að sjálfur Ólaf-
ur Elíasson myndlistarmaður hafi
lagt hönd á plóg auk arkitekts
ins Hjörleifs Stefánssonar,
sem er bróðir Kára. Heyrst
hefur að inni í húsinu sé
meðal annars hringlaga
hveliing þar sem verður
geysimikil rannsóknarstofa
ogbókasafii.
Þrautagangan á enda?
Það hefur sannarlega
ekki gengið þrautalaust
fyrir Kára Stef-
ánsson að
reisa sér
drauma-
hús á höf-
uðborgar-
svæðinu.
DV í síðustu viku Sagtvar
frá því í DV um liðna helgi að
svipta ætti Kára Stefánsson
risalóðinni á Vatnsenda.
Fyrir nokkrum árum gafst hann upp
á áformum um að byggja meira
, en 500 fermetra hús á sjávar-
. lóð í Skerjafirði eftir marg-
. víslega hnökra á framgangi
I þess máls. Nú virðist ætla
að ganga betur því Kári fékk
ekki aðeins lóðina sína til
baka í bæjarráði í gær heldur
fékk hann einnig greftrarleyfi
fýrir nýja húsinu. Sjálft húsið á
þó enn eftir að samþykkja hjá
bæjaryfirvöldum. Og nýja
lóðaúthlutunin
er lokaútkall
fyrir Kára á
Vatnsenda.
Hann verð-
ur að hefj-
ast handa
strax.
Ólafur Elíasson Sagterað
listamaðurinn heimsfrægi eigi
hiutað máli við hönnun
risavillu Kára Stefánssonar.
Mmir. IIWM flihSS hju'ín' mAllh.
hW.Mmrí»l.loK6„ifZ
Kári Stefánsson svaraði ekki margítrekuðum viðvörunum bæjar-
yfirvalda um að hann yrði sviptur lóð sem hann fékk úthlutað í
Vatnsenda í febrúar 2003 ef hann hæfi ekki framkvæmdir við hús-
ið. Það var ekki fyrr en bæjarráðið missti endanlega þolinmæð-
ina og tók af honum lóðina að nauðsynlegar teikningar að húsinu
bárust. Hann fékk lóðina aftur í gær.
Bæjarráð Kópavogs ákvað í gær að
endurúthfuta Kára Stefánssyni ein-
býlishúsalóð sem tekin hafði verið af
honum aðeins viku áður.
Þrátt fyrir margítrekaðar viðvaranir
á síðustu misserum um að hann yrði
sviptur stórri einbýlishúsalóð í Fagra-
þingi 5 fengust engin viðbrögð ffá
Kára Stefánssyni, forstjóra íslenskrar
erfðagreiningar. Bærinn hefur viljað
að ffamkvæmdir hefjist á lóð-
inni sem Kári fékk úthlutað
í febrúar árið 2003.
Seinagangurvið
hönnun
f fyrrasumar hófu
bæjaryfirvöld að
krefja Kára um að
standa við skil
mála úthlutunar-
innar og hefja
framkvæmd-
ir. Um síðustu
helgi greindi
DV ffá þessari
þróun í sam-
skiptum Kára
og bæjaryfir-
valda. Þá var
Hlédís Sveinsdottir Annar
arkitektahússKára
Stefánssonar segir hönnunina
vera mjög metnaðarfulla.
haft eftir Hlédísi Sveinsdóttur arkitekt
að vinnan við hönnunina hefði far-
ið seint í gang en að teikningar væru
á lokastigi og ffamkvæmdir í þann
mund að hefjast. Allt væri verkefn-
ið unnið í samráði við bæjaryfirvöld
og því ekki ástæða til að óttast að Kári
yrði sviptur lóðinni. Engu að síður
er það einmitt það sem bæjarráðið
gerði á þarsíðasta fundi sínum. Þeirri
ákvörðun var þó breytt í gær og Kári
fékk aftur lóðina sína.
Vaknaði upp við vondan
draum
Samkvæmt heimfid-
um DV virðist það loks
hafa runnið upp fyrir
Kára að bæjaryfirvöld-
um var alvara með það
að afturkalla lóðina þeg-
ar það var orðinn hlutur.
Þær teikningar sem beð-
ið hefur verið eftir voru
sendar til Kópavogsbæj-
ar í ofboði. Einn heimild-
armanna DV taldi að það
hafi verið Kári sjálfur sem
tafði hönnun hússins með
sífelldum breytingum.
Kári Stefánsson
Kominn á slðasta
séns hjá bæjarráði
Kópavogs með húsið
sitt á Vatnsenda.
■**■.* .'7*
" t • ■
m
Bíræfnir bílaþjófar losuðu sig við fenginn á bilastæði fatlaðra við Bónus á Nesinu
Skildu stolinn bíl eftir í stæðum fyrir fatlaða
Fatlaðir og hreyfihamlaðir gátu
ekki lagt í stæði þeim ætluðum við
Bónusverslunina á Seltjarnarnesi í
vikunni. Ástæðan var ekki eins og
svo oft áður að tillitslausir borgarar
hefðu tekið stæði þeirra. Eða hvað?
Bíræfnir bílaþjófar tóku upp á því að
skilja feng sinn, Suzuki Vitara jeppa,
eftir í tveimur stæðum æduðum föti-
uðum. „Ég hefði notað stæðið hefði
þessi bíll ekki verið skilinn eftir í því,"
segir Sigurður Magnússon, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri ÍSÍ og upp-
hafsmaður íþróttastarfsemi fatl-
aðra á íslandi. „Svona gjörningur er
hreint út sagt hneisa gagnvart sam-
félaginu og þeim sem fatlaðir eru."
Omar Smári Ármannsson hjá lög-
reglunni í Reykjavík segir viðskilnað
bílaþjófa vera af margvíslegum toga.
„Sumir bílar eru skemmdir en aðrir
ekki. Það fer allt eftir því hvaða ein-
staklingur á hlut að máli. Það er þó
Furðu lostinn Sigurður Magnússon,
upphafsmaður íþróttastarfsemi fatlaðra var
tröu lostinn yflr aðkomunni fyrir utan Bónus
á Seltjarnarnesi þar sem stolnum bll hafði
verið lagt þvertyfir tvö stæði.
DV-myndGVA
ljóst að sá sem hefur stolið þessum legast að fá ástæður fyrir málinu hjá
bíl hefur ekki viljað taka tillit til fatl- þeim sem stálu bílnum.
aðra einstaklinga," segir hann en Galvaskir starfsmenn Bónuss á
bendir á að sennilega sé áreiðan- Seltjarnarnesi hringdu í Vöku og
létu draga bílinn á brott og upplýstu
um leið bílaþjófn-aðinn - svo til.
Því eigandi bíls-
ins hafði æti-
að að selja
tilteknum
einstaklingum
hann fyrir um
tveimur mánuð-
um en uppskar
ekki erindi sem erf
iði þegar bílnum
var stolið af sömu
aðilum. Hann var
því feginn að fá
hann aftur þegar
DV hafði uppi á
honum í gær.
gudmundur@dv.is