Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006
Fréttir DV
Með
metamfetamín
26 ára Ólafsvíkingur hefur ver-
ið ákærður af Lögreglustjóranum
í Reykjavík fyrir að hafa þann 8.
nóvember 2005 haft undir hönd-
um, að Boðagranda í Reykjavík,
meira en 11 grömm af metamfet-
amíni sem hann ætlaði til dreif-
ingar. Þá er hann einnig ákærð-
ur fyrir að hafa um nokkurt
skeið fram til umrædds dags selt
óþekktum mönnum samtals 100
grömm af metamfetamíni að and-
virði 500 þúsund krónur. Munur-
inn á „hefðbundnu" amfetamíni
og metamfetamíni er í grunninn
sá að hið síðarnefnda er sterkara
og virknin önnur. Auk þess sem
það er dýrara.
Ekki númerið
hans Kára
„Það hefur ver-
ið mikið hringt og
það er enn verið
að hringja," segir :
EmmaBachmann íf “*§!•-'
Gissurardóttir
sem síðustu fimm
árin hefur svarað
ófáum símtöl-
um sem borist
hafa í farsímann hennar en eru
ætluð Kára Stefánssyni, forstjóra
Islenskrar erfðagreiningar. Á ár-
inu 2001 fékk Emma farsímanúm-
er sem Kári hafði áður. Margir
tengja við Kára. „Það virðist mest
vera hringt frá Bretlandi. Það eina
sem ég get sagt við þetta fólk er að
þetta sé ekki númerið hans Kára."
gHjMrji
11
Með dópí 10-11
Ríflega fertug kona sem búsett
er í Reykjavík hefur verið ákærð
af Lögreglustjóranum í Reykjavík
fyrir að hafa fíkniefni undir hönd-
um í mars á þessu ári. Samkvæmt
ákæru hafði lögreglan afskipti af
konunni í 10-11 við Austurstræti í
Reykjavík. í framhaldinu var farið
með hana á lögreglustöðina við
Hverfisgötu og fundust þá yfir tvö
grömm af hassi auk tæplega eins
og hálfs gramms af tóbaksblönd-
uðu kannabisefni.
Meðkókog vopn
Karlmaður á þrítugsaldri bú-
settur í Árbæ hefur verið ákærð-
ur af lögreglustjóranum í Reykja-
vík fyrir umferðar-, fikniefha- og
vopnalagabrot. Þannig er mál vaxið
samkvæmt ákæru að maðurinn ók
bifreið sinni eftir Fjarðarási í Árbæ
uns hann var stöðvaður af lögreglu.
Kom þá í ljós að hann var próflaus.
í framhaldinu var farið í húsleit á
heimili hans þar nálægt og fundu
lögreglumenn þá tæp fimm grömm
af amfetamíni, 22 grömm af kóka-
íni og einnig rafmagns- og gas-
vopn. Þess er krafist að ákærði verði
dæmdur til refsingar.
Fræga fólkið á íslandi er í stuði þessa dagana. DV hafði uppi
átta frægum konum sem eiga það sameiginlegt að vera allar
óléttar þótt þær séu komnar mislangt á leið.
tta bumbur
Leikkonan erkomm atta
mánuði á leið með sitt fyrsta
barn með ÓlafiAgii Egilssyni.
DV-mynd Vilhelm
Ingibjörg Þorvaldsdóttir
Athafnakonan í Habitat á
von á barni i byrjun desem-
ber með manni sinum Jóni
Arnari Guðbrandssyni.
DV-mynd Hörður
Guðrún Tinna Ólafsdóttir
Forsetadóttirin á von á
jólabarni með manni sinum
Karti Pétri Jónssyni.
DV-mynd Hörður
risan—
Friðrika Geirsdóttir Fjöl-
miðlakonan á von á sinu
fyrsta barni með Stefáni
Hilmari Hiimarssyni.
DV-mynd Valli
I
Frjósemin liggur í loftinu sem umlykur fræga fólkið á íslandi þessa
dagana. Leik-, söng- og athafnakonur eru óléttar úti um alíar trissur
og hamingjan svífuryfir vötnum. f það minnsta átta eiga það sameig-
inlegt að vera frægar og óléttar.
„Við eigum von ájólabarni," sagði
forsetadóttirin Guðrún Tinna Ólafs-
dóttir í samtali við DV í gær. Hún er
ein af átta frægum konum sem nú
bera barn undir belti og á von á öðru
barni sínu með manninum sínum
Karli Pétri Jónssyni um jólin.
„Það ríkir mildl tilhlökkun á heim-
ilinu," sagði Guðrún Tinna sem er eld-
hress og tekur sig vel út með kúluna.
Hún og Karl Pétur eiga fyrir fjögurra
ára dóttur aukþess sem níu ára sonur
Karls Péturs býr hjá þeim.
Óraunveruiegt
Leikkonan Estlier Talia Casey á
von á sínu fyrsta barni með manni
sínum Ólafi Agli Egilssyni, syni Eg-
ils Ólafssonar og Tinnu Gunnlaugs-
dóttur. Hún sagði við DV í gær að
hún væri komin átta mánuði á leið.
„Ég er mjög spennt en þetta er samt
hálfóraunverulegt. Mér líður mjög
vel en það er samt eins og lífið sé í
hálfgerðri biðstöðu núna," sagði
Esther Talia sem er nýflutt í íbúð í
Mjóstræti. „Við höfum verið í hreið-
urgerð undanfarið og það er allt að
verða klárt fyrir komu barnsins."
Óléttar en uppteknar
„Ég er komin fimm mánuði á
leið og heilsast mjög vel," sagði
Selma Björnsdóttir, söng- og leik-
kona, í samtali við DV í gær áður en
hún þurfti að drífa sig í upptökuver
í Keflavík. Hún stendur nú í ströngu
við að taka upp plötu sem á að koma
út um jólin. Selma á fyrir þriggja ára
strák með eiginmanni sínum, leikar-
anum Rúnari Frey Gíslasyni.
Sömu sögu er að segja af söng-
konunni Hildi Völu Einarsdóttur.
Hún er komin sjö og hálfan mánuð
á leið en var upptekin alla vikuna
við myndatökur iýrir umslagið á nýj-
asta diski hennar sem kemur út fyr-
ir jólin. „Þetta er alveg frábært. Mér
líður ofboðslega vel og hlakka mik-
ið til," sagði Hildur Vala en barnsfað-
ir hennar er tónlistarmaðurinn Jón
Ólafsson. Þau fundu hamingjuna í
Idol-keppni Stöðvar 2 fyrir rúmu ári.
Nína Dögg Filippusdóttir, eigin-
kona Gísla Arnar Garðarssonar, stend-
ur líka í ströngu en hún dvelur í Lond-
on þessa dagana við æfingar á nýju
leikriti. Nína Dögg er ólétt en lætur
það ekki á sig fá. Æskuvinkona Nínu
Daggar Margrét Iris Baldursdóttir á
einnig von á barni en hún á fyrir strák
með eiginmanni sínum, milljarða-
mæringnum Magnúsi Ármann.
Barn í byrjun desember
Athafnakonan Ingibjörg Þor-
valdsdóttir og stjörnukokkurinn Jón
Arnar Guðbrandsson, sem reka nú
saman Habitat eftir að hafa selt Oasis
til Baugs í byrjun ársins, eiga von á
sínu fýrsta barni saman. Jón Arnar
sagði í samtali við DV að Ingibjörg
væri komin um sex og hálfan mán-
uð á leið og mikil lukka ríkti á heim-
„Við eigum von á
jólabarni"
ilinu. Aðspurður hvort þau vissu um
kyn barnsins sagði Jón Arnar svo
vera en þau kysu að halda því fýrir
sig. Ingibjörg og Jón Arnar eiga fýrir
þrjú börn frá fyrri samböndum. Ingi-
björg á sex ára son en Jón Arnar á tvo
stráka. Jón Arnar sagði við DV að það
væri í nógu að snúast þessa dagana.
„Við erum á fullu í búðinni sem geng-
ur vel og bíðum síðan eftir því að
barnið komi í byrjun desember. Þetta
er alveg frábært," sagði Jón Arnar.
Villfafrið
Fjölmiðlakonan Friðrika Geirs-
dóttir er ólétt að sínu fyrsta barni
með Stefáni Hilmari Hilmarssyni,
fjármálastjóra hjá Baugi Group. Frið-
rika lét tilleiðast að koma í mynda-
töku af þessu tilefni en bað annars
um frið. „Ég hef fengið nóg af fjöl-
miðlum í bili. Nú vil ég bara fá frið,"
sagði Friðrika við DV.
oskar@dv.is
ittifg
HildurVala
Einarsdóttir
Söngkonan áað
eiga í byrjun
nóvember en
barnsfaðir hennar
er tónlistarmaður-
innJónÓlafsson.
DV-mynd Heiða
Nína Dögg Filippusdóttir og
Margrét fris Baldursdóttir
Leikkonan er óiétt að fyrsta
barni með Gisla Erni Garðars-
syni og Margrét Iris á von á sinu
öðru barni með milljarðamær-
ingnum Magnúsi Armann.
Mynd: Björn Blöndal
Selma Björnsdóttir
Söng- og leikkonan er
komin fimm mánuði á leið.
Hér sést hún ólétt árið 2003
þegar hún gekk með fyrra
barn hennarog leikarans
Rúnars Freys Gislasonar.