Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Síða 17
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 17
Stripphiti
á ráðstefnu
Það hitnaði heldur betur í kol-
unum á ráðstefnu um gróðurhúsa-
áhrifin í Sydney í Ástralíu. Ástæðan
var sú að skipuieggjendur ráð-
steínunnar ákváðu að létta aðeins
andrúmsloftið og bjóða gestunum
upp á nektardans. Hins vegar urðu
margir vísindamennimir rauðir og
þrútnir í framan af hneykslun enda
ráðstefhan borguð af hinu opin-
bera. Varð að hætta við strippið í
miðjum kh'ðum og vísa stúlkunum
út. Rebecca Gaie frá Miss Kitka’s
House of Burlesque, þaðan sem
stúlkurnar komu segist ekkert skilja
í þessu uppnámi, sýningin hafi ver-
ið smekkleg að hennar mati.
Gullfiskur í
fegrunaraðgerð
Gullfiskur sem syndir um í lít-
illi tjöm í Royal Museum of Scot-
land í Ed-
inborg var
sendur í
fegrunarað-
gerð eftír að
gestir safns-
ins kvörtuðu undan því hve ljómr
hann væri. Að sögn blaðsins The
Scotsman var einhvers konar æxli
á höfði fisksins og forráðamenn
safnsins ákváðu að láta skera það
í burtu þótt fiskinum virtist ekki
vera meint af þessu. Þegar að-
gerðin hófst kom í ljós að fjarlægja
varð annað auga fisksins. Aðgerð-
in var borguð með smápeningum
þeim sem gestir safnsins em vanir
að kasta í tjörnina.
Heimsmetá
brettum
Hópur brimbrettafólks í Suður-
Afríku telur sig hafa sett heims-
met í þessari íþrótt. Metíð felst í
mesta fjölda brimbrettafólks sem
riðið hefur á sömu öldunni. Þeir
sem skipulögðu metíð segja að 73
brimbrettaköppum hafi tekist að
standa uppréttir í 5 sekúndur á
sömu öldunni en fyrra metið var
44 manns. Heimsmetíð var gert
til styrktar sundvörðum á Muiz-
enberg-ströndinni nálægt Cape
Town. Einn þeirra misstí nýlega
annan fótinn í kjaftínn á hvítum
hákarli á þessu svæði.
Með þyrlu á bakinu
Franz Muellner, sterkasti mað-
ur Austurríkis, hefur sett nýtt met
eftir að 1,8 tonna
þyrla lenti á bak-
inu á honum.
Franz Muelln-
er hélt þyrlunni á
bakinu í næstum
mínúm og tryggði
sér þar með að komast í heims-
metabók Guinness. Heimsmetstil-
raun þessi var liður í heimsmeta-
degi Vínarborgar um síðustu helgi
en dagurinn var haldinn hátíð-
legur í Prater-garðinum. Með-
al annarra meta sem slegin voru
má nefna mesta fjölda af stráum í
kjaftínum þegar Marco Hort tókst
að koma 264 stráum fyrir í sínum
kjaftí en fyrra met var 259 strá.
Sidney Korshak var þekktur sem „maðurinn sem vissi öll leyndarmálin“ i Hollywood.
Nú áratug eftir andlát hans er að koma í ljós hversu ómetanlegur þessi skuggalegi lög-
fræðingur var fyrir toppana í borginni. í nýrri bók, Supermob, eftir Gus Russo er greint
frá því hvernig Sidney og mafíufélagar hans réðu öllu sem þeir vildu í kvikmyndaiðnað-
inum.
Gat ráðskast með stærstu
stjörnurnaraðvild
Sidney gat látið spilaskuldir barna hinna þekktu og ríku hverfa.
Hann gat útvegað kvikmyndaveri leikara sem enn var á samningi
hjá samkeppnisaðila, það var ekkert mál fyrir hann að útvega
hjákonum sínum góð hlutverk. Og Sidney gat látið allar vinnu-
deilur í kvikmyndaverunum hverfa.
Bók Gus Russo ber undirtitíl-
inn „Hvernig Sidney Korshak og
glæpafélagar hans urðu hinir huldu
valdamenn". Því það voru ekki bara
forstjórar kvikmyndaveranna og
stórstjörnur þess tíma sem Sidney og
mafi'ufélagar hans ráðskuðust með
að vild. Ronald Reagan átti þeim
að þakka sigur sinn í kosningum til
ríkisstjóra Kalifomíu. Og Reagan
mundi eftír þessum „greiða" þegar
hann var orðinn forsetí 1986. Reag-
an lét þurrka nafn Korshaks út úr
skýrslu embættis síns um skipulagða
glæpastarfsemi. Stjörnur á borð við
Kirk Douglas, Clark Gable, Warren
Beatty og Gregory Peck elskuðu Sid-
ney á meðan menn á borð við Steve
McQueen, Howard Hughes og Hugh
Heftíer lærðu það að ekki var hollt
fyrir þá að setja sig upp á mótí hon-
um.
Sammy Davis jr. og augað
Meðalþesssem ffamkemuríbók
Gus Russo er að Sidney Korshak batt
enda á ástarsamband Sammys Davis
jr. og Kim Novak en á þessum tíma,
sjötta áratugnum, þóttí síður en svo
viðeigandi að blökkumaður héldi við
hvíta konu, hvað þá stórstjörnu eins
og Novak. „Sidney bað Novak um að
líta á nokkrar myndir," segir Dana
Al Pacino Korshak fékk Pacino lausan frá
MGM til að leika I Guðföðurnum með þvl að
hóta MGM aðgerðum frá Teamsters-félaginu.
Wynter eiginkona fyrrverandi starfs-
félaga Sidneys í bókinni. „Sammy
hafði greinilega komið myndavélum
fyrir í svefnherbergi sínu og hafði
skjalasafn af myndum af sér í rúm-
inu með hvítum leikkonum. Novak
leit á myndimar og byrjaði að rífa
þær í sundur. Sidney sagði henni að
spara sér ómakið, hann hefði nega-
tífurnar. Síðan sagði
Sidney: „Við erum
að segja þér, ef hann
hættír þessu ekki mun
hann missa hitt augað
sitt.““ En Sammy var
eineygður.
Fékk Al Pacino í
Guðföðurinn
Sidney hótaði
MGM-kvikmynda-
verinu aðgerðum frá
Teamsters-verka-
lýðsfélaginu ef MGM
sleppti ekki takinu á
AI Pacino svo hann
gæti leikið í myndinni
Guðfaðirinn. Það gekk
eftír. Og Gus hefur
það eftír þáttastjórn-
andanum Steve Allen
Ronald Reagan Launaði
Korshak gamlan greiða
1986 þegar hann var
forseti.
* y 1 r fn r
fý' Sk'f • j
Sidney Korshak Þessi skuggalegi lögfræðingur og mafíufélagar hans réðu öllu sem þeir vildu
I Hollywood.
„Sammy hafði greini-
lega komið myndavél-
um fyrirí svefnherbergi
sínu og hafði skjala-
safn afmyndum afsér
í rúminu með hvítum
leikkonum. Novakleit
á myndirnar og byrjaði
að rífa þær í sundur"
að eiginkona hans, Jayne Meadows,
hafi móðgað mafíuforingja á frum-
sýningu. Allen segir að morguninn
eftir hafi þau hjónin fundið frampart
af hestí á verönd sinni.
Áhrif enn ídag
Þótt Sidney hafi verið jarðað-
ur fyrir áratug síðan gætí hann haft
áhrif enn í dag. í blaðinu New York
Daily News er fjallað um bók Gus
og meðal annars þær upplýsing-
ar sem þar er að finna um að Jerry
Kim Novak Korshak batt enda á
ástarsamband hennar og Sammys Davis jr.
Brown hafi þegið fjárstuðning frá
Korshak og mafíufélögum hans þeg-
ar hann bauð sig fram til rílcisstjóra
í Kaliform'u á áttunda áratugnum.
Jerry Brown er nú í baráttu fyrir því
að verða kosinn dómsmálaráðherra
fylkisins og gætu þessar upplýsing-
ar orðið honum fjötur um fót í kosn-
ingabaráttunni.
Gary Weddle gleymdi að raka sig í æsingnum eftir árásina þann 11. september
Enginn rakstur fyrr en bin Laden finnst
Gary Weddle kennari í bæn-
um Ephrata í Washington fylgdist
svo grannt með fréttunum í kjölfar
hryðjuverkaárásanna 11. september
fýrir fimm árum að hann gleymdi að
raka sig. Eftir vikutíma ákvað hann
að raka sig ekki fyrr en Osama bin
Laden hefði náðst eða verið drepinn.
Weddle hefur ekki snert við skeggi
sínu síðan en hann reiknaði með í
upphafi að bin Laden myndi nást á
mánuði eða svo.
Weddle sem nú er 46 ára gamall
er með skegg sem er fet á lengd og
byrjað að grána. Weddle er kennari
við grunnskólann í Ephrata og byrj-
ar hverja önn á því að útskýra fýrir
nemendum sínum hvernig á öllum
þessum skeggvexti standi.
„Ég finn enn tíl með þeim fjöl-
skyldum sem misstu ástvini sína,"
segir Weddle í samtali við blaðið The
Wenatchee World. „Ég tel ekki að
þessu máli sé lokið fýrr en þeir finna
þennan gaur. Ég þarf ekki að þekkja
persónulega þá sem misstu fjöl-
skyldumeðlim þann 11. september
til að skilja hve hörmulegt það var."
Donita, eiginkona Weddles, þol-
ir ekki skeggið en dætrum þeirra
þremur sem sækja menntaskóla í
East Wenatchee er sama og kærust-
um þeirra finnst þetta raunar „cool".
Weddle ætlar ekki að skerða skegg
sitt fyrr en bin Laden næst, jafnvel
þótt hann þurfi að taka það með sér
ígröfina. GaryWeddl eSkeggiðfserað
vera óáreittmeðan Osama
bin Laden gengur frjáls.