Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 Helgin DV Umgekkst eldri vini Kristín var góður námsmaður, en þótt hún hafi alltaf verið með hœstu einkunnir tók hún fullan þátt í félagslífinu. Við útskrift úr grunnskóla hlaut hún verðlaun þýska sendiráðsins fyrir fram- úrskarandi árangur í þýsku og sömu verðlaun á stúdentsprófi frá MH þremur árum síðar. „Hún var metnaðargjörn í framhaldsskóla og háskóla, bæði í námi og vinnu, en var jafnframt mjög fé- lagslynd," segir Hrund og Þorbjörg Helga bæt- ir við að í grunnskóla hafi Kristín leitað eftir félagsskap eldri vina í grunnskólanum. „Ekki vegna þess að hún væri í partístandi, heldur var hún bara siðferðilega þroskaðri en flestir í efstu bekkj- um grunnskólans." / Menntaskólan- um við Hamrahlíð var Birna Hreið- arsdóttir lögfræð- ingur einn kenn- ara Kristinar og man vel eft- ir henni, þótt fimmtán ár séu liðin frá því Kristín sat í tímum hjá henni. „Nem- endur eru óneitanlega misjafnlega minn- isstæðir," seg- ir Birna. „Krist- ín er einn af þeim nemend- um sem ég man sérstaklega vel eftir. Hún var afskaplega samviskusöm, kom í tíma full af áhuga íyrir við- fangsefnun- um og leysti öll verkefni vel af hendi án þess að virðast þurfa að hafa mik- ið fyrir því. Ég man að hún sat yfirleitt frek- ar framarlega í stof- unni, hún var alltaf brosmild og bauð af sér sérstakan þokka. Fyrir mig sem kenn- ara var hún drauma- nemandi, fylgdist oa hörkudugleg Kvikmyndaframleiöandinn Krlstln sést hér ásamt leikurunum Ingvari Sigurðssyni og Nönnu Kristlnu Magnúsdóttur og leikstjóranum Ragnari Bragasyni á frumsýningu myndarinnar Börn sem hún framleiddi en Ragnar leikstýrði. Þorbjörgu Helgu Vigfúsdótt- ur og við þessar œskuvin- konur sínar heldur Kristín , tryggu sambandi. „Bekkurinn okkar fylgd- ist að allan grunnskólann, var skemmtilegur og þar ríkti keppnisandi," segir Þorbjörj Helga. „Við hlustuðum mikið a tónlist og Kristín var mikið í dansi. Við vinkonurnar vorum dugleg- ar að gera símaat og áttum langar samræður um stráka. Við vorum ekki alveg sáttar við strangt upp- eldi, til dæmis hvað varðaði útivist- artíma. Okkur fannst foreldrar okk- ar setja okkur stífasta rammann af öllum, en núna virðum við það." Kristín Ólafsdóttir er leikstjóri og framleiðandi, kona sem stend- ur fyllilega fyrir sínu ein og sér. Hún er ekki aðeins „kona Björg- ólfs Thors" eða hluti af „ríkasta pari landsins" heldur hörkudug- leg og vinnusöm, ábyrgðarfull móðir, dóttir og systir og tryggur vinur. Þessi glaðlynda og ákveðna kona vill ekki vera kölluð Stína nema af fáum útvöldum, tekur sjálfa sig mátulega alvarlega en móðurhlutverkið mjög alvarlega og er sambland af heimsborgar- dömu og náttúrubarni. Ein besta vinkona hennar segir hana töff- ara með eigin stíl sem þori að klæða sig í lit og vera öðruvísi. Það er af sem áður var þegar Kristín Ólafsdóttir neitaði að fara í kjól og gekk um í gömlum fötum af frændum sínum. Kristín er búsett í London og í Reykjavík og rekur kvikmyndagerð- arfélagið Klikk Productions. Hún hefur framleitt þrjár kvikmyndir, nú síðast myndina Börn sem mik- il aðsókn er að þessa dagana. Hún fœddist í Reykjavík 6. júlí árið 1972, eldra barn hjónanna Guðrúnar Árnadóttur sálfrœðings og Ólafs H. Jónssonar, viðskiptafrœðings og handboltahetju. Yngri bróðir henn- ar er Arnar, sem var lengi gítarleik- ari hljómsveitarinnar Leaves. Kristín var glatt, kraftmikið og ákveðið barn að sögn þeirra sem til hennar þekkja og Gunnar ILansson, leikari og náfrœndi hennar, segir hafa hvinið í henni efhún var ekki ánœgð. „Hún var hins vegar mjög hörð af sér. Við áttum það sameigin- legt að vera mikil eyrnabólgubörn og það er enginn smáverkur sem fylgir eyrnabólgu, en Kristín lét á engu bera. Kristín var mjög sætur krakki, þannig að maður lét allt eft- ir henni." Forseti eða ráðherra Mamma Kristínar, Guðrún Árnadóttir sálfrœðingur, segir dótt- ur sína alla tíð hafa verið opna og ófeimna. ÖV NÆRMYND „Hún hefur alltaf verið áhuga- söm um alla skapaða hluti, forvit- in og fróðleiksfús. Henni fannst sérstakiega gaman að tala við sér eldra fólk, fannst það skemmtileg- ast af öllu, enda fræddi það hana um ólíklegustu hluti. Hún hef- ur alltaf borið mikla virðingu fyrir görnlu fólki'," segir Guðrún. Fróðleiksfýsninni Jylgdi meðal dnnars það að Kristín vissi fátt skemmtilegra en að láta lesa fyr- ir sig bækur og segja sér sögur. Ein frœnka sem passaði hana stund- um á fyrstu æviárunum segir Krist- ínu hafa verið snilling í að sjarmera fólk upp úrskónum. „Hún átti til dæmis að fara að sofa strax eftir auglýsingar sem fylgdu kvöldfréttunum. En þeg- ar hún var komin í rúmið horfði Kristín á mig með sínum stóru bláu augum og sagði: „Mamma og pabbi lesa alltaf fyrir mig þangað til ég sofna." Þegar klukkan var orðin ellefu og foreldrarnir komnir heim var ég enn að lesa fyrir hana!" Árni Páll Hansson kvikmynda- gerðarmaður og Kristín eru syst- kinabörn. Árni Páll segir, eins og „Hún tekur móðurhlut- verkið alvarlega og kastar ekki tilhendinni þar frekar en í öðrum verkum sem hún tekur sér fyrir hendur." Gunnar bróðir hans, að Kristín hafi alltafverið áberandi greind og skörp: „Hún hefur alltaf verið mikill grallari, en þegar við vorum yngri var ég alveg viss um að hún ætti eftir að verða forseti, sendiherra eða ráðherra." Dansaði og gerði símaat Fjölskyldan flutti til Þýskalands þar sem Ólafu'r keppti pieð þýsku handboltaliði. Kristín var fljót að aðlagast breyttum aðstæðum, lœrði þýskuna á undraverðan hátt og eignaðist góða vini. „Hún var kraftmikið og félags- lynt barn og elskaði að vera í leik- skóla og skóla. Hún var komin með magaverk af spenningi mán- uði áður en skólinn hófst," segir mamma hennar. „Hún hefur allt- af verið sjálfstæð og sjö ára fór hún ein í heimsókn til vina fjölskyld- unnar í Þýskalandi og dvaldi þar í nokkrar vikur." Kristín og Hrund Gunnsteins- dóttir blaðamaður hafa þekkst alla ævi og á æskuárunum man Hrund eftir Kristínu sem svaka skvísu. „Pabbar okkar voru saman í Mulningsvélinni svokölluðu í handbolta hjá Val og við Kristín eigum báðar minningar. um bún- ingsklefa karla eftir leiki." Eftir heimkomuna fór Kristín í Hvassaleitisskóla. Þar kynntist hún Heiðarleg,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.