Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006 „Hún hefur mikinn áhuga á nán- ast öllu sem er að gerast í heiminum og er vel upplýst um stöðu mála," segir Sara Lind. „Hún hefur breitt hæfileikasvið, er skarpgreind og er bæði mjög skapandi og skipulögð, en það eru eiginleikar sem fara ekki endilega saman hjá fólki." Þorbjörg Helga segist meta einna mest í fari Kristínar hversu góð- ur hlustandi hún er og hvað hún sé skilningsrík á stöðu hvers og eins. „Það er mjög til eftirbreytni í þessu samkeppnissamfélagi þar sem allir eiga að vera eins og „meika það",“ segir Þorbjörg Helga. „Þótt hún geti orðið heit í um- ræðum, þá enda þær aldrei með leiðindum," segir Hrund. „Kristín er mikill húmoristi og er stöðugt að bæta sig sem manneskja." Guðrún móðir Kristínar segir hana alltaf hafa verið mjög fylgna sér. „Hún er mjög ábyrgðarfull og umhyggjusöm dóttir og systir og er mjög annt um að allri fjölskyldunni líði vel. Hún er vinur vina sinna og stendur með þeim gegnum súrt og sætt. Kristín hefur aldrei vílað fyr- ir sér að standa við hlið vina sinna, hvort sem það er á gleðistundum eða miður gleðilegum atburðum lífsins. Hún tekur á hlutum með festu og er með úrlausnir að leið- arljósi, en drekkir sér ekki í tilfinn- ingasemi. Hún er dugleg, úrræða- góð og er góður hlustandi." í gömlum fötum Klœðaburður Kristínar vekur at- hygli. Hún klceðist klassískum föt- um og er tignarleg. Nýverið birti tímaritið Hér & nú mynd af henni á hcelaháum, skcergrœnum skóm, sem konur áttu ekki orð til að lýsa aðdáun sinni á, en fataáhugi hef- ur ekki alla tíð verið efstur á lista hennar þótt Birna Hreiðarsdóttir, kennari Kristínar úr MH, minnist þess að Kristín hafi alltafverið mjög smekklega til fara og vel til höfð á menntaskólaárunum. „Þegar hún var barn vorum við foreldrar hennar „fátækir náms- menn" og nýttum okkur allt sem að okkur var rétt," segir Guðrún, mamma hennar. „Af þeim sökum var Kristín yfirleitt í gömlum föt- um af frændum sínum Gunnari og Árna Páli og var hreint ekki ánægð með það ef klæða átti hana í kjól! Núna hefur hún gaman af að klæð- ast fallegum fötum og má því segja að sem betur fer höfum við foreldr- arnir ekki fengið að ráða fatavali hennar mjög lengi. Hún hefur sýnt og sannað að hún er fullfær um það sjálf!" Hefur ekkert breyst Þótt líf Kristínar hafi tekið stakkaskiptum á síðustu árum og hún sé meira og minna búsett er- lendis og á ferð og flugi segja vinir hennar hana aldrei vanrœkja vin- áttuna. „Þótt það sé aldrei hægt að fylgj- ast með ferðaáætlunum hennar er alltaf auðvelt að ná í hana og hún er einhvern veginn alltaf til staðar fyr- ir mann, hvar sem hún er og hvað sem hún er að gera," segir Gísli Örn. „Það er alltaf gott að vera í kringum Kristínu. Hún er einlæg og sjálfri sér samkvæm og gefur ekkert annað frá sér en hlýju og væntum- þykju. Kristín er eins og vinir gerast bestir að mínu mati." Kristínu Ólafsdóttur er lýst sem blöndu af heimsborgara og nátt- úrubarni. Mamma hennar lýsir þeim þáttum á þennan hátt: „Þótt Kristín hafi mjög gaman af að ferðast til fjarlægra landa elsk- ar hún ekkert eins og íslenska nátt- úru. Þegar hún er heima á íslandi á sumrin vill hún helst vera úti á landi allan tímann. Hún hefur yndi af því að vera með fjölskyldunni í sveitinni, þar nýtur hún sín best." Forvitinn heimsborgari Hrund, vinkona hennar, segir Kristínu vera forvitinn heimsborg- ara. „Hún er forvitin um önnur lönd, fólk og menningu og hún fær útrás fyrir fróðleiksfýsn sína með ferða- lögum. En hún er mikill íslend- ingur í sér, vill helst hafa landið og fólkið sitt sem næst sér hvar sem Brosmild Að sögn viðmælenda biaðsins er alltafstutt Ibrosið hjá henni Kristínu. Mynd: Arnhold Sprout „Kristín var mjög sætur krakki, þannig að mað- ur lét allt eftir henni." hún er niður komin í henni ver- öld. Mér finnst Kristín ekkert hafa breyst og það er sama hvar í heim- inum ég hef hitt hana, hún er alltaf hún sjálf." Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir er sömu skoðunar. „Hún er náttúrubarn og borgar- barn og þessir tveir þættir stangast oft á í henni. Hún kemur oft heim til íslands, bara til að fara norð- ur eða í sumarbústað til að nálgast kyrrðina." Ragnar Bragason er sammála vinkonunum og segir Kristínu allt- af vera samkvcema sjálfri sér, hvar sem hún er: „Hún kemur bara til dyranna eins og hún er klædd, hvar sem hún er. Kristín hefur ekki sveiflu- kennda framkomu, er mjög sterkur persónuleiki og veit hvað hún vill. Því mun aldrei einhver einn staður, land eða borg, breyta henni." „Kristín er laus við orðafroðu og vífilengjur," segir Hrund. „Hún hef- ur hugsjónir og henni er ekki sama um náungann. Hún getur allt sem hún vill og er vinum sínum hreinn innblástur. Hún fer ekkert í grafgöt- ur með það ef hún hefur trú á öðr- um. Ef fólk veit ekki að Kristín er vel gefinn, hæfileikaríkur og hlýr per- sónuleiki, þá er hún misskilin af ís- lensku samfélagi!" Móðirin Kristín Kristín og Björgólfur Thor eiga eins og hálfs árs gamlan son, sem þau vilja halda utan við sviðsljós fjölmiðla. „Það var gaman að sjá Krist- ínu verða mömmu," segir Ragnar Bragason. „Ég veit ekki hvort það hefur breytt henni mikið, en allar konur verða opnari tilfinningalega við það að ganga með barn." „Auðvitað breyttist Kristín við að verða mamma!" segir Hrund vin- kona hennar. „Það breytast allir við að verða foreldrar. Við kynnumst nýrri vídd í okkur sjálfum og fyr- ir vikið gera aðrir það líka. Kristín tekur foreldrahlutverkið alvarlega og strákurinn er lukkunnar pamfíll að eiga hana sem móður." Gunnari frcenda hennar fannst gaman að sjá Kristínu verða mömmu. „Það er gaman að sjá hana sem móður. Bjöggi og Kristín eiga mjög vel saman, þau eru andlegir jafn- ingjar og eru bæði mikið ævintýra- fólk. Mér hefur alltaf þótt þau eiga sérstaklega vel saman," segir Gunn- ar og Árni Páll bróðir hans segist hafa vitað frá fyrstu kynnum Krist- ínar og Björgólfs að þau yrðu par. Við lofum mömmunni og ömm- unni, Guðrúnu Árnadóttur, að eiga lokaorðin í þessari Ncermynd af Kristínu Ólafsdóttur. „Kristín er yndisleg móðir," seg- ir Guðrún. „Hún tekur móðurhlut- verkið alvarlega og kastar ekki til hendinni þar frekar en í öðrum verkum sem hún tekur sér fyrir hendur." annakristine@dv.is NÝJAR PLÖTUR KOMNAR ÚT! DIANA KRALL ... DIANA KRALL FROM THIS MOMENT ON 12 Co °£luxe SCISSOR SISTERS TA DAH! U2 - Z00 TV: LIUE FROM SYDNEY DUD s e n a
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.