Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Qupperneq 28
28 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006
Helgin DV
..;;i t.rCTa.'fail'W-J
ÍSBSÍÍíSwÍsömS'®
■■Wm
wwm
WÆwM
mm
*zmkm?£B$hw'
4 ýiýýj
Með kærastanum Árdis og Agnar búa saman á Akureyri.
DV-Mynd Bjarni Eiriksson.
Árdís Hulda Hendriksen er 24 ára öryrki sem hefur undirgengist erfiðar aðgerðir til að láta lengja sig. Árdís finnur mik-
inn mun eftir að hafa hækkað um niu sentimetra og segir að í dag sé til dæmis mun auðveldara að fá á sig föt. Hún mæl-
ir með að lágvaxið fólk kynni sér aðgerðina en hún mun líklega leggjast undir hnífinn i siðasta skiptið á næsta ári.
VÖN ÞVÍ AÐ FÓLK GLÁPI
Hulda hefur sjálf séð um að lengja eftir að beinin
hafa verið söguð í sundur. Hún segir að þrátt fyrir
lýsinguna sé það ekkert svo vont.
DV-Mynd úr einkasafni.
Ánægð með árangurinn Árdís Hulda var aðeins
136 sm áður en hún lagðist undir hnífinn en er
nú orðin 145 og vonast til að ná 150 sm áður en
yfir lýkur. DV-Mynd Extra.
Tvær aðgerðir eftir
„Ég vonast eftir að verða 150 til 152," segir Árdís
Hnlda sent á aðeins eftir að gangast undir aðgerðir
á lærum en lærin verða tekin hvort í sínu lagi. í við-
tali við DV í fyrra lýsti Árdís Hulda aðgerðunum. Ilún
segir þær ekkert sérstaklega sársaukafullar þrátt fyrir
óhugnanlegar lýsingar en beinin í fótleggjum henn-
ar eru söguð í sundur og pinnar settir á milli á með-
an beinin vaxa aftur saman. Hún sér svo sjálf um að
lengja. „Ég mun örugglega sjá sjálf um að lengja þegar
lærin verða tekin fyrir. Þetta hljómar skelfilega en er
að mínu mati þess virði. Svo kennir í ljós hvort ég jnirfi
á hjólastól, göngugrind eða bara hækjum að halda á
eftir. Þetta er mjög mikilll munur og ég á til dæmis
mun auðveldara að finna á ntig föt í dag en áður."
„Þetta hefur gengið vel en ég hef ekki hækk-
að frá því við spjölluðum síðast," segir Árdís Hulda
Hendriksen, 24 ára öryrki, en Árdís Hulda fæddist
dvergur en hefur gengist undir stórar aðgerðir til að
láta lengja sig. Áður en hún lagðist undir hnífinn var
hún aðeins 136 sm en hefur nteð aðgeröununr öðlast
níu sentimetra í viðbót og er því 145 sm á hæð í dag
og alsæl. Hún er þó hvergi hætt og mun hitta lækn-
inn sinn aftur í desentber og þá verður ákveðið hve-
nær haldið verður áfram.
í skóla eftir aðgerðir
Árdís Hulda er frá Reyðarfirði en býr í dag á Akur-
eyri með kærastanum sínum Agnari Péturssyni. Þar
sem hún er öryrki stundar hún ekki vinnu en ver tím-
anum með vinum og kærastanum auk þess sem hún
passar stundum fyrir systur sína. „Ég er á miklu flakki
á milli Akureyri og Reyðarfjarðar enda býr fjölskyldan
mín fyrir austan og það er aldrei að vita nema maður
setjist þar að í framtíðinni," segir hún og bætir við að
hún ætli að skella sér í skóla þegar aögeróunum lýk-
ur. „Ég veit ekld hvað ég ætla að læra en mig langar að
verða verslunarkona eða leikskólakennari."
IVlælir með þessu
Aðspurð hvort fólk horfi jafn mikið á hana í dag
og áöur en hún byrjaöi í aðgerðunum segir hún svo
vera. „Ég veit ekki hvort það breytist eitthvað þegar
ég verð búin í þessu en ég er orðin vön því að fólk
glápi. Stundum kvíöi ég fyrir aðgerðunum en stund-
um er ég spennt að klára þetta svo ég geti haldið
áfrant með líf mitt," segir hún og bætir aðspurö við
að hún mæli meö þessari aðgerö fyrir þá sem eru í
hennar sporum. „Allavega finnst mér um að gera fyr-
ir lágvaxið fólk að kynna sér þetta. Hg er mjög ánægð
með að hafa tekið þessa ákvörðun og líður mun bet-
ur í dag en áður."
indiana@dv.is