Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Qupperneq 32
52 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006
Helgin DV
Agnes Marinósdóttir
Upprennandi tónlistar-
kona og hönnuður.
o
Softlips: „Þessifæst!
Heilsuhúsinu og er
algjör skyldueign.
Ég er ekki fyrir gloss
heldur set ég
þennanyfirvaralit
eða varablýant og
varirnar verða
þrýstnar og mjúkar,"
segirAgnes og hlær.
„Svo er hann llka
náttúrulegur og ódýr."
Star bronzer frá Lancöme:
„Maðursetur bara plnkulltinn
dropa undir augun og á
kinnarnar og fær ótrúlega
frisklegt útlit. Mjög gottef
maðurermeð bauga
eða er eitthvað
sjúskaður. Algjör
draumurogdugar
alveg I ár. Eg
nenni aldrei að
eyða of
miklum tima I að
punta mig heldur
vel ég frekar
snyrtivörur sem gera mann frlsklegan á
augabragði," segir Agnes hress.
Lancöme-maskari: „Þessi lengir
augnhárin og maðurþarfbara nokkrar
strokur og þá eru augnhárin ofsalega fín
og dúkkuleg. Mjög flottur bæði hversdags
og fyrir gott glens."
Berjavaralitur: „Þettaer
ekki venjulegur varalitur
heldurmeira eins og
berjasaft. Gott er að setja
bara pinkulltið og
varirnar lita út eins og
maðurhafi veriðað
borða jarðarber. Mjög
djúsi og náttúrlegt."
Púður frá MAC: „Þetta er besta púður á Islandi, hvorki
meira né minna. Frísklegt og fjörugt. Kemur líka vel útað
nota það á hálsinn og á bringuna."
Agnes Marinósdóttir er nemi í Iðnskólanum í Hafnarfirði þar sem hún lærir
iðnhönnun. Von er á hennar fyrstu hönnun úr framleiðslu á allra næstu dögum.
„Já, ég hannaði tölvuborð fyrir tveimur árum úr plexigleri og smíðaði sjálf. Ég var
svo ánægð með árangurinn að mér datt í hug að jafnvel fleiri yrðu ánægðir með
svona borð.Tölvuborðið kemur í mörgum litum en það er fyrirtækið Format
lausnir sem framleiðir borðin." Fyrir einu ári ákváðu Agnes og vinkona hennar
Olga Jenný að hittast reglulega og búa til tónlist saman.„Þetta er ótrúlega
skemmtilegt áhugamál. Við spilum svona elektró gleðpopp sem ég kýs að kalla
pussy-popp," segir Agnes og hlær. Bandið heitir Beautiful Caos en hefur ekki enn
komið fram opinberlega.„Það er á dagskrá en vegna anna höfum við ekki getað
einbeitt okkur nægilega vel að þessu skemmtilega verkefni okkar. Hn það mun
gerast." Hægt er að fá tóndæmi af músík Agnesar á myspace.com/bcaous og skoða
virkilega flottar myndir af skvísunni á meðan hlustað er.
í ; . r . 'í J •' ' 1
1 Athafnakonan
Hrönn Marinósdóttir
er stjórnandi Alþjóð-
legu kvikmyndahátíð-
arinnar í Reykjavík
sem haldin hefur ver-
ið árlega frá 2004.
Hátíðin hefst í næstu
viku, 28. september, og
n AVTVtl 1 T T 1 7" T ”1 V* O /~\ I T 4- Vv r\
vfi -
Það krefst mikillar yfirsetu að skipuleggja kvikmyndahátíð líkt og
þá sem gengur í garð í næstu viku. Það þarf að velja myndir, bjóða
gestum, tryggja góða kynningu fyrir utan öll smáatriðin sem fylgja
hverri ákvörðun. Hrönn Marinósdóttir stjórnar þessu öllu, gerir
fátt annað, en gefur sér þó að sjálfsögðu tíma fyrir fjölskylduna.
„Ég var í MBA-námi við Háskól-
ann í Reykjavík og vann þar að mast-
ersritgerð um framkvæmd alþjóð-
legrar kvikmyndahátíðar á íslandi
og komst að því að það væri vel ger-
legt að halda hátíð af þessum kalíber
hér á landi," segir Hrönn aðspurð
hvernig henni datt í hug að koma
þessu viðamikla verkefni á koppinn.
Hrönn segist vera mikil áhugamann-
eskja um kvikmyndir. „Ég var komin
með nóg af einsleitu úrvali bíóhús-
anna hér á landi."
Með puttann á púlsinum
Hrönn þarf að fylgjast vel með
því nýjasta í kvikmyndaheiminum
hverju sinni og þá getur oft reynst
gott að bregða sér af landi brott og
skoða aðrar kvikmyndahátíðir. „Ég
fór á kvikmyndahátíðina í Berlín
sem haldin var í febrúar síðastliðn-
um. Þá stóðum við fyrir móttöku á
ströndinni í Cannes í maí þar sem
fjöldi fjölmiðlafólks, fulltrúar ann-
arra kvikmyndahátíða, kvikmynda-
leikstjórar og fleiri komu til okkar í
hádegismat og kynnti sér hátíðina.
Við sáum líka helling af áhugaverð-
um myndum sem margar hverjar
enduðu í prógramminu okkar í ár."
Gestir ráða vinsældum
Hin alþjóðlega kvikmyndahá-
tíð hefur getið sér gott orð fyrir fjöl-
breytni og myndaval sem ólíklegt er
að landinn mundi annars einhvern
tíma sjá. Hátíðin í ár er engin und-
antekning á því. Hrönn á þó erfitt
með að benda á eina mynd frekar en
aðra líklega til vinsælda. „Heimild-
armyndirnar um fótboltastjörnuna
Zidane og Guantanamo-fangelsið
munu eflaust trekkja að. Annars er
ómögulegt að segja til um það því
auðvitað eru það gestirnir sem ráða
úrslitum um það og það er ekki alltaf
svo fyrirsjáanlegt."
Borgin myrkvuð!
Á opnunarkvöldi hátíðarinnar,
28. september, verður slökkt á borg-
arljósunum í 30 mínútur. „Þetta er
hugmynd sem hefur legið í loftinu,
en Andri Snær Magnason var með
þeim fyrstu sem kom með hana.
Hann hafði fyrst stungið upp á þessu
árið 2000, en sama ár fékk stjörnu-
fræðingurinn Þorsteinn Sæmunds-
son þessa hugmynd. Þá gekk þetta
ekki í gegn, en starfsfólki okkar tókst
að sannfæra lögguna og borgina um
að þetta væri málið. Allt virðist hægt
ef viljinn er fyrir hendi!
Allir í bíó
Áhugamál Hrannar eru þó nokkur
en þau hafa flest setið á hakanum að
undanförnu. „Skemmtilegast finnst
mér að vera með stelpunum mínum
þremur og manninum mínum. Vinn-
an mín er auðvitað áhugamál mitt
og ég er mjög ánægð með það," segir
Hrönn og bætir því við að hún ætli að
halda áfram á þessari braut og gera
enn betur. „Möguleikarnir eru marg-
ir en aðalmálið núna er auðvitað að
gera þessa hátíð sem hefst í næstu
viku eins vel úr garði og hugsast get-
ur. Þetta verður fjör og ég hlakka mik-
ið til." Nú er bara að skella sér f bíó og
kynna sér þessa fjölbreyttu og áhuga-
verðu dagskrá á fllmfest.is.
berglind@dv.is
Bandarískur félagsfræöingur að nafni Paul C. Rosenblatt hefur gefið út bók sem fjallar um rannsókn hans á
því af hverju pör kjósa að deila rúmi - þrátt fyrir hrotur og sængurþjófnað makans.
Baráttan í bólinu
Ótal rannsóknir hafa verið gerð-
ar á svefnvenjum fólks en ástæður
fyrir því að pör kjósa að deila rúmi,
þrátt fyrir ýmsa galla þess, eru í raun
óljósar að mati dr. Rosenblatt. Próf-
essorinn heldur því fram að það sé
svo inngróið í menninguna að pör
deili rúmi að fólk skoði það ekki
gagnrýnum augum. Hann boðar þó
ekki afnám hjónarúmsins í bók sinni
Two in a Bed eða Tveir í rúmi, þvert
á móti. Hann vill aðeins vekja athygli
á þessum venjum og skoða hvort
jafnvel sé hægt að aðstoða fólk þegar
vandamálin skjóta upp kollinum.
Hjónarúmið heldur hjóna-
bandinu saman
„Þetta er ekki sjálfshjálparbók
heldur rannsókn á þeim algengu og
oft skondnu uppákomum sem eiga
sér stað í hjónarúminu." Fyrir bókina
tók dr. Rosenblatt viðtöl við 42 pör,
flest þeirra gift og gagnkynhneigð.
Niðurstöður rannsóknar hans leiddu
í ljós að helstu ástæður fólks fyrir því
að kjósa að deila rúmi voru nánd og
huggulegheit. Einhverjir sögðu kyn-
líf vera ástæðuna en þó ekki marg-
ir. Pörin sögðust spjalla mikið sam-
an í hjónarúminu og að mesta næðið
væri þar að finna fyrir hversdagsleg-
um áhyggjum. Rosenblatt segir að
sumir lítí jafnvel svo á að samskipti
í hjónarúminu væri það sem héldi
hjónabandinu saman.
Ekki sjálfsagt að sofa saman
Flestir þeir sem sátu fyrir svör-
um prófessorsins sögðust hafa þurft
þó nokkurn tíma til að venjast því
að deila rúmi með maka sínum.
Ágreiningur hafi komið upp í byrj-
un um hvert hitastigið í herberg-
inu ætti að vera, hvar rúmið ætti að
vera og hvernig búa ætti um rúmið.
Sjónvarpsgláp, lestur og át í rúminu
voru einnig nefnd sem óheppilegar
uppákomur og pirraði það nokkra
að maki þeirra skyldi sofa nakinn.
Einnig komu upp deilur um vekjara-
klukkur og hvort leyfa eigi börnum
eða gæludýrum að skríða upp í.
Vandamál viðurkennd
Eftir ákveðna byrjunarörðugleika
voru pörin sammála um að ákveð-
in rútína hafi farið í gang og stund-
ir í hjónarúminu orðnar ómissandi
þáttur í hjónabandinu. En eftir því
sem fólk eldist geta þó ýmis vand-
ræði komið upp sem trufla svefn
hins aðilans. Konum verður til dæm-
is oft mjög heitt á breytingaskeiðinu
og það getur haft áhrif á svefn mak-
ans. Karlmenn þurfa að fara oftar á
klósettið eftir því sem þeir eldast og
rápa þar af leiðandi mikið á nóttinni.
Andvökunætur og veikindi geta líka
spilað inn í. Dr. Rosenblatt hafnar þó
ekki hjónarúminu heldur vill hann
að þau vandamál sem kvikna oft í
hjónaherberginu verði viðurkennd
og þá getur fólk fengið ráðgjöf um
hvernig sé best að leysa úr þeim.