Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2006, Qupperneq 38
58 FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 2006
Helgin DV
Börn eru klár. Segja það sem þeim dettur í hug sem getur oft á tíðum verið afskaplega vandræðalegt. En þau eru svo sæt að þau komast upp með það
- svona oftast. Þegar blaðamaður gekk í garð á leikskólanum Tjarnarborg tóku fóstrurnar á móti honum opnum örmum. Æ, hvað lífið er gott þeg-
ar fólk er gott. Þegar kom svo að þvíað spjalla við börnin komu upp smá vandræði. Lítill uppreisnarpúki vaknaði í Ásgrími sem reyndi eftir fremsta
megni að koma afstað uppreisn á leikskólalóðinni. „Ekki tala við hana, ekki tala við hana" hrópaði hann og hljóp á milli allra hinna krakkanna. Þetta
virkaði á suma en forvitnin varð öðrum yfirsterkari og að lokum gafÁsgrímursig fram og skráði sig tilþátttöku. Já, samfélag barna er óútreiknanlegt.
Hlynur5ára
Hvaö finnstþérmikilvægast?„Selir. Ég fór
að sigla með frænda mfnum f Straumsfirði
I sumar og sá fullt afselum. Einu sinni lét
frændi minn bátinn hoppa og þá skvettist
vatnyfir bátinn og ég fékksaltlmunninn.
Það varekki gott. Við fundum þrjá dauða
unga og við krakkarnir fengum að grafa ■
þá. Þarna er mikið afæðarfuglum og við
tlndum dún í sæng. Svo fundum við llka
fálkafjaðrir-skrifarþú ekki það llka?“
sagði Hlynur sem fylgdist granntmeð
hvað fórá blað.
Ásgrímur 5 ára
Ásgrlmi finnst mikilvægast að borða.
„Grjónagrautur og græn súpa eru best.“
Hlustarþú á tónlist?Já, mjög mikið.
Uppáhaldslagið mitt heitir Autobahn. Það
heitir eftir einhverri götu I útlöndum."
Sara Isabelle 3 ára
Sara á spænska mömmu og fer oft til
Spánar. „Mér finnstskemmtilegast að leira.“
Ertu listakona? „Ég er bara þriggja ára,“
segirSara kimin. Söru fmnstlika gaman að
fara I leikhús „Hafíð bláa erskemmtilegt.“
Dagur 5 ára
„Mér fínnst mikilvægast að vera heima og
leika við litla bróður.“ Hvað erhann
gamall? „Hann er ekkert.“Er hannsem
sagt nýfæddur? „Já og það eru allir að
spyrja mig um hann.“
Sigríður Erla 3 ára
Sigríður veit ekki hvað henni fínnst vera
mikilvægast. En hún fór ísveit I sumar. „Eg
var hrædd við kusurnar." Sigríður er
nýbyrjuð I balletog fínnstþað mjög
skemmtilegt. „Svo á ég sjóræningjaskip
sem ég leik mérmeð þegar Helen vinkona
min kemur I heimsókn
Anton og Luka 5 ára
Tvlburarnir óaðskiljanlegu voru mjög hressir en svöruðu sko ekki
hverju sem er. „Okkur finnst mjög gaman að hlusta á tónlist. Við
eigum Latabæjargeisladisk." Tviburarnir eru svo heppnir að eiga
bróður sem er 9 ára:„Hann ereiginlega bara fjörgamall" segir
Luka, svo glotta þeir báðir. „Sjáðu, ég get hangið á einni hendi,"
segir Anton. „Ég llka," bætir hinn við, mjög gott strákar. Takið þið
lýsi? Já,“jarma þeir I einum kór.
María Mínerva 3 ára
María Mtnerva er nýflutt og var að byrja á Tjarnarborg. Henni fínnst
mikilvægast að borða. „Kjöt er best."En það er annað sem Mariu
fínnst merkilegt. „Ég á svona krossfísk. Rosalega flottan. Ég keypti
hann I rauðri búð. Þetta ersvona hálsmen," segir hin brosmilda Marla
Mlnerva.
búðarrekstur og allt sem þvl fylgir.